Peningamál - 01.07.2008, Blaðsíða 34
ÞRÓUN OG HORFUR
Í EFNAHAGS- OG PENINGAMÁLUM
P
E
N
I
N
G
A
M
Á
L
2
0
0
8
•
2
34
un. Þar sem erlendir starfsmenn virðast mikið til fara úr landi þegar
þeir missa vinnuna er gert ráð fyrir að minni eftirspurn eftir vinnuafli
komi ekki fram af fullum þunga í auknu atvinnuleysi framan af spá-
tímabilinu. Því er áætlað að atvinnuleysi verði um ½ prósentu minna í
ár en samkvæmt spánni sem birt var í síðustu Peningamálum. Gert er
ráð fyrir að atvinnuleysi aukist hratt í takt við minni umsvif í þjóðarbú-
skapnum og að það verði nálægt því sögulega hámarki sem það náði
um miðjan síðasta áratug í lok spátímabilsins.
Samdráttur kaupmáttar ekki jafn mikill frá árinu 1993
Launavísitala Hagstofu Íslands hefur hækkað lítillega meira en áætl-
að var í síðustu spá bankans. Virðist sem það stafi ekki af meiri
launaþrýstingi frá vinnumarkaði heldur hafi launahækkanir nýgerðra
kjarasamninga á almennum vinnumarkaði komið fyrr fram en áætlað
var. Tólf mánaða breyting kaupmáttar launa var neikvæð í apríl í fyrsta
skipti frá árinu 2000 og í maí nam samdráttur kaupmáttar 3,9% og
hefur hann ekki dregist jafn mikið saman frá haustmánuðum 1993.
Nýgerðir kjarasamningar félaga innan Alþýðusambands Íslands
(ASÍ), Bandalags starfsmanna ríkis og bæja (BSRB), Kennarasambands
Íslands (KÍ) og Bandalags háskólamanna (BHM) við ríki og sveitarfélög
fela í sér heldur meiri hækkun launa en gert var ráð fyrir í spánni sem
birt var í apríl. Samningarnir taka gildi í maí og júní og eru til tæplega
eins árs og verða því lausir stuttu eftir að kemur til endurskoðunar for-
sendna kjarasamninga stærstu aðila á almennum vinnumarkaði.
Meiri líkur á að reyni á forsenduákvæði samningsins
Forsenduákvæði samningsins eru tvö: að farið verði að draga úr
verðbólgu á seinni hluta þessa árs og í upphafi næsta árs og að kaup-
máttur á almennum vinnumarkaði haldist að minnsta kosti óbreyttur
á tímabilinu janúar til desember 2008. Samkvæmt verðbólguspá
Seðlabankans verður verðbólga töluvert umfram forsendur samnings-
ins á viðmiðunartímabili hans og því nánast óhugsandi að forsendur
kjarasamninganna haldi.
Eins og í síðustu spá er því gert ráð fyrir að reyni á forsendu-
ákvæði kjarasamninganna á næsta ári, en þó er ekki gert ráð fyrir að
það hafi í för með sér svo miklar launahækkanir að kaupmáttur launa
verði varinn. Kostnaðaráhrif endurskoðunarinnar í upphafi næsta
árs eru þó metin heldur meiri en í síðustu spá. Meiri launahækkanir
á þessu og næsta ári og minni framleiðni hafa í för með sér um 1½
prósentu meiri hækkun launakostnaðar á framleidda einingu í ár og
á næsta ári en í spánni sem birt var í apríl. Gert er ráð fyrir að launa-
kostnaður hækki hægar eftir því sem líður á spátímann, enda eykst
beinn kostnaðarauki vegna kjarasamninga hægar eftir því sem líður á
samningstímabilið. Einnig er gert ráð fyrir að dragi úr launaskriði með
auknu atvinnuleysi. Þróun launakostnaðar verður því í samræmi við
verðbólgumarkmið í lok spátímans gangi spáin eftir.
Veruleg endurskoðun kjarasamninga kallar á viðbrögð
peningastefnunnar
Launakostnaður gæti hins vegar hækkað meira en gert er ráð fyrir
í spánni ef hægar dregur úr spennu á vinnumarkaði. Verði reynt
0
1
2
3
4
5
6
‘09‘07‘05‘03‘01‘99‘97‘95‘93‘91
1. Grunnspá Seðlabankans 2008-2010.
Heimildir: Vinnumálastofnun, Seðlabanki Íslands.
Mynd VI-4
Atvinnuleysi 1991-20101
% af mannafla
PM 2008/2
PM 2008/1
Heimild: Hagstofa Íslands.
Mynd VI-5
Laun og kaupmáttur
Launavísitala Hagstofu
%
Launavísitala (%-breyting milli ára)
Kaupmáttur launa (%-breyting milli ára)
Launavísitala (%-breyting milli mánaða)
-10
-8
-6
-4
-2
0
2
4
6
8
10
12
14
16
‘08‘06‘04‘02‘00‘98‘96‘94‘92‘90
1. Grunnspá Seðlabankans 2008-2010.
Heimild: Seðlabanki Íslands.
Mynd VI-6
Launakostnaður á framleidda einingu
1999-20101
Breyting frá fyrra ári (%)
PM 2008/2
PM 2008/1
‘10‘09‘08‘07‘06‘05‘04‘03‘02‘01‘00‘99
0
2
4
6
8