Peningamál - 01.07.2008, Blaðsíða 32
ÞRÓUN OG HORFUR
Í EFNAHAGS- OG PENINGAMÁLUM
P
E
N
I
N
G
A
M
Á
L
2
0
0
8
•
2
32
VI Vinnumarkaður og launaþróun
Merki um minnkandi spennu á vinnumarkaði eru enn ekki orðin skýr
í gögnum, þótt fréttir berist af uppsögnum. Atvinnuleysi er hverf-
andi og innflutningur vinnuafls var enn töluverður í maí. Samdráttur
í útgáfu kennitalna bendir þó til þess að draga muni úr innflutningi
vinnuafls og atvinnuleysi gæti aukist hratt á seinni hluta ársins. Reyna
mun á forsenduákvæði kjarasamninga á næsta ári, en í grunnspánni er
ekki gert ráð fyrir því að niðurstaða endur skoðunarinnar hafi í för með
sér verulegan viðbótarlaunakostnað. Afleiðingar þess eru hins vegar
skoðaðar í fráviksspá.
Samdráttur vinnumagns
Heildarvinnustundum fækkaði á fyrsta fjórðungi þessa árs samkvæmt
niðurstöðum vinnumarkaðskönnunar Hagstofu Íslands, í fyrsta skipti frá
því á síðasta fjórðungi ársins 2004. Styttri vinnuvika skýrir fækkun heild-
arvinnustunda en fólki á vinnumarkaði fjölgaði einnig óverulega miðað
við það sem verið hefur undanfarin þrjú ár. Á seinni hluta síðasta árs dró
verulega úr fjölgun heildarvinnustunda miðað við það sem var á árunum
2005-2006 vegna styttri vinnuviku þótt fólki við vinnu fjölgaði verulega.
Skýringa á styttri vinnutíma virðist hafa verið að leita á framboðshlið-
inni þar sem þeir sem unnu minna í viðmiðunarvikunni en þeir gera að
staðaldri sögðust gera það vegna þess að þeir tóku eitthvert frí í viðmið-
unarvikunni. Veruleg aukning kaupmáttar launa og ráðstöfunartekna
undanfarin ár og sterk staða launafólks vegna langvarandi umframeft-
irspurnar eftir vinnuafli hefur líklega ýtt undir frítöku. Svipuð þróun var
undanfari viðsnúnings á vinnumarkaði á árinu 2001; þ.e.a.s. fækkun
vinnustunda en fjölgun fólks í vinnu. Árið 2002 fækkaði svo bæði vinnu-
stundum og fólki við vinnu á sama tíma og atvinnuleysi jókst.
Enn ekki skýr merki um viðsnúning á vinnumarkaði ...
Tölur um innflutning vinnuafls benda ekki til að fækkun heildarvinnu-
stunda á fyrsta fjórðungi ársins hafi stafað af minni eftirspurn eftir
vinnuafli. Fyrstu fjóra mánuði ársins voru nýskráningar starfsmanna
fleiri en á sama tímabili árið á undan. Í maí voru nýskráningar hins
vegar færri en á sama tímabili í fyrra. Innflutningur vinnuafls var þó
enn mikill í maí og endurskráningar erlendra starfsmanna fleiri það
sem af er ári en á sama tíma í fyrra. Skráð atvinnuleysi stóð í stað það
sem af er ári, nálægt 1%.
… en vísbendingar um að dregið hafi úr eftirspurn …
Tölur um útgáfu kennitalna benda þó til að dregið hafi úr vinnuaflseftir-
spurn. Um fimmtungi færri kennitölur til 18 ára og eldri voru gefnar út
fyrstu fimm mánuði ársins en á sama tíma í fyrra. Þar sem starfsmaður
þarf kennitölu til að fá vinnu má gera ráð fyrir að áfram dragi úr skrán-
ingu erlendra starfsmanna hjá Vinnumálastofnun á næstu mánuðum.
… og að atvinnuleysi gæti aukist hratt á haustmánuðum
Upplýsingar frá vinnumiðlunum, Vinnumálastofnun og aðilum vinnu-
markaðarins benda einnig til að minni eftirspurn komi fljótlega fram
í auknu atvinnuleysi. Tilkynningum um uppsagnir starfsmanna virðist
Heimild: Hagstofa Íslands.
Mynd VI-1
Breytingar á vinnuafli
2004-2008
1. ársfj. 2004
2. ársfj. 2004
3. ársfj. 2004
4. ársfj. 2004
Breyting frá sama fjórðungi fyrra árs
1. ársfj. 2005
2. ársfj. 2005
3. ársfj. 2005
4. ársfj. 2005
1. ársfj. 2006
2. ársfj. 2006
3. ársfj. 2006
4. ársfj. 2006
1. ársfj. 2007
2. ársfj. 2007
3. ársfj. 2007
4. ársfj. 2007
-3
-2
-1
0
1
2
3
4
5
6
7
Meðal-
vinnutími (klst.)
Heildar-
vinnustundir (%)
Fjöldi starfandi
(%)
1. ársfj. 2008
Heimildir: Vinnumálastofnun, Þjóðskrá.
Mynd VI-2
Útgáfa kennitalna og erlendir starfsmenn
skráðir hjá Vinnumálastofnun
Nýir starfsmenn á vegum starfsmannaleigna (v. ás)
Skráðir nýir starfsmenn frá ESB-8 (v. ás)
Ný tímabundin leyfi (v. ás)
Ný tímabundin leyfi á nýjum vinnustað, framlengd
tímabundin leyfi og starfsmenn frá ESB-8 áður á
vinnumarkaði (v. ás)
Útgáfa kennitalna til erlendra ríkisborgara 18 ára
og eldri (h. ás)
Fjöldi, viðbót í hverjum mán.
0
200
400
600
800
1.000
1.200
1.400
1.600
0
400
800
1.200
1.600
2.000
2.400
2.800
3.200
20082007200620052004
Fjöldi, viðbót í hverjum mán.