Peningamál - 01.07.2008, Síða 36

Peningamál - 01.07.2008, Síða 36
ÞRÓUN OG HORFUR Í EFNAHAGS- OG PENINGAMÁLUM P E N I N G A M Á L 2 0 0 8 • 2 36 VII Ytri jöfnuður Viðskiptajöfnuðurinn var neikvæður um tæpa 57 ma.kr. á fyrsta fjórð- ungi ársins 2008. Hafði hallinn dregist saman um 34 ma.kr. frá fyrri ársfjórðungi en var mun meiri en á sama ársfjórðungi í fyrra. Mest munaði þar um 38 ma.kr. minni halla á þáttatekjujöfnuði, en tekjur jukust vegna jákvæðrar ávöxtunar hlutafjár erlendis. Þjónustuhallinn minnkaði um 6 ma.kr., en vöruskiptahallinn jókst hins vegar um 10 ma.kr. frá fyrri ársfjórðungi. Miklar sveiflur einkenna ársfjórðungsleg uppgjör viðskiptajafnaðar. Því verður að túlka niðurstöður einstakra ársfjórðunga af mikilli varúð. Áhrif gengislækkunar krónunnar á greiðslujöfnuð verða ekki komin fram að fullu fyrr en síðar á árinu. Dregur úr innflutningi Þróun óreglulegra liða í vöruskiptum hafði ekki mikil áhrif á vöru- skiptahallann á fyrstu þrem mánuðum ársins. Inn- og útflutningur skipa og flugvéla, sem oft veldur miklum sveiflum, var hverfandi. Slík viðskipti skýrðu hins vegar að hluta lítinn vöruskiptahalla á fyrsta fjórðungi síðasta árs. Þróun á jöfnuði þáttatekna var mun jákvæðari en búist var við á fyrsta ársfjórðungi, einkum sökum betri ávöxtunar hlutafjár erlendis. Raunvöxtur útflutnings vöru og þjónustu á fyrsta ársfjórðungi var í samræmi við spá Seðlabankans, en magnaukning innflutnings vöru og þjónustu var töluvert minni. Það skýrist einkum af mun minni innflutningi skipa og flugvéla, sem er mjög óreglulegur, en á sama tíma í fyrra. Samkvæmt gögnum um vöruviðskipti í apríl og maí hefur dregið hraðar úr innflutningi á öðrum ársfjórðungi en gert var ráð fyrir í aprílspánni. Útflutningur á öðrum ársfjórðungi stefnir hins vegar í að aukast mun meira en spáð var. Því er útlit fyrir hagstæðari vöru- skiptajöfnuð á öðrum ársfjórðungi en þeim fyrsta. Á fyrsta ársfjórðungi var halli á þjónustuviðskiptum um 0,4 ma.kr. minni en á sama tíma í fyrra. Þótt halli á þjónustuviðskipt- um hafi lítið breyst á milli ára jukust bæði þjónustutekjur og -gjöld verulega. Þjónustutekjur af erlendum ferðamönnum jukust mikið á fyrsta ársfjórðungi m.v. sama tíma árið áður, þrátt fyrir litla fjölgun ferðamanna það sem af er ári. Ferðaútgjöld Íslendinga erlendis jukust einnig verulega. Halli þáttatekjujafnaðar dregst saman Jöfnuður þáttatekna var neikvæður um 20,2 ma.kr. á fyrsta ársfjórð- ungi, sem er töluvert minna en á síðasta ársfjórðungi 2007 þegar hann var neikvæður um 58,2 ma.kr. en mun meira en ársfjórðungana þar á undan. Helsta skýringin eru auknar tekjur af ávöxtun erlends hlutafjár í eigu Íslendinga. Ávöxtun hlutafjár var neikvæð um 13,1 ma.kr. á síð- asta ársfjórðungi ársins 2007, þegar tap var á rekstri fyrirtækja í eigu innlendra aðila erlendis og endurfjárfestur hagnaður því neikvæður, en tap bókfærist sem neikvæður endurfjárfestur hagnaður. Á fyrsta ársfjórðungi ársins 2008 var ávöxtun hlutafjár hins vegar jákvæð um 29,7 ma.kr. Ávöxtunin var að mestu leyti fólgin í s.k. endurfjárfestum hagnaði, sem var 23,8 ma.kr. á fyrsta ársfjórðungi 2008. Mynd VII-1 Undirþættir viðskiptajafnaðar1 1. ársfj. 1995 - 1. ársfj. 2008 Ma.kr. 1. Rekstrarframlög talin með þáttatekjum. Heimildir: Hagstofa Íslands, Seðlabanki Íslands. -100 -80 -60 -40 -20 0 20 Vöruskiptajöfnuður Þjónustujöfnuður Þáttatekjujöfnuður ‘07‘05‘04‘03‘02‘01‘00‘99‘98‘97‘96‘95 ‘06 ‘08 Mynd VII-2 Vöruskiptajöfnuður Mánaðarlegar tölur á föstu gengi Ma.kr. Heimildir: Hagstofa Íslands, Seðlabanki Íslands. Vöruskiptajöfnuður Vöruskiptajöfnuður án skipa og flugvéla -30 -25 -20 -15 -10 -5 0 5 10 200820072006200520042003 Mynd VII-3 Hreinar vaxta- og arðgreiðslur og hrein erlend staða þjóðarbúsins Árlegar tölur 1990-2007 % af VLF Heimildir: Hagstofa Íslands, Seðlabanki Íslands. Hreinar vaxta- og arðgreiðslur (h. ás) Hrein erlend staða (v. ás) 0 -20 -40 -60 -80 -100 -120 -140 0 -5 -10 -15 -20 -25 -30 -35 ‘07‘05‘03‘01‘99‘97‘95‘93‘91 % af útflutningstekjum
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90

x

Peningamál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Peningamál
https://timarit.is/publication/1144

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.