Peningamál - 01.07.2008, Page 40

Peningamál - 01.07.2008, Page 40
ÞRÓUN OG HORFUR Í EFNAHAGS- OG PENINGAMÁLUM P E N I N G A M Á L 2 0 0 8 • 2 40 Hagstofa Íslands notar þriggja mánaða hlaupandi meðaltal til að mæla markaðsverð húsnæðis. Áhrifin af lækkun húsnæðisverðs eru því nokkurn tíma að skila sér í mældri verðbólgu auk þess sem lítil velta gerir mælingar á fasteignaverði vandasamari þar sem stuðst er við svo fáa kaupsamninga. Einnig eru áhrif íbúðaverðslækkunar vegin upp af áhrifum hækkunar raunvaxta á húsnæðisliðinn. Þau hafa numið rúmri prósentu sl. tólf mánuði en fara nú minnkandi. Greidd húsaleiga hefur hækkað um rúm 16% sl. tólf mánuði og hefur undanfarna mánuði hækkað meira en kostnaður vegna eigin húsnæðis. Háir vextir, skertur lánsfjáraðgangur og mikil verðbólga gera húsnæðiskaup síður fýsileg og auka því eftirspurn eftir leiguhúsnæði. Það gæti leitt til þess að húsaleiga hækki enn frekar. Aftur á móti eykst einnig framboð leigu- húsnæðis við þessar aðstæður þegar illa gengur að selja húsnæði. Aukinn kostnaður vegna viðhalds húsnæðis hefur einnig dregið úr hjöðnun húsnæðisverðbólgunnar. Áhrif gengislækkunar krónunnar á verðlag innfluttrar vöru voru hröð og mikil Gengi krónunnar lækkaði verulega í mars og aftur í júní en í millitíð- inni var gengisflökt nokkuð mikið. Að meðaltali var gengi krónunnar 14% lægra á öðrum fjórðungi þessa árs en á fyrsta ársfjórðungi og um miðjan júní var það tæplega 30% lægra en á sama tíma fyrir ári. Meginskýringin á meiri verðbólgu undanfarna mánuði en spáð var í síðustu Peningamálum eru miklu meiri og hraðari gengis áhrif en búist var við og söguleg fordæmi gáfu til kynna. Verðlag innfluttrar vöru hefur hækkað um rúmlega 15% sl. tólf mánuði, þar af u.þ.b. 9½% síðan í mars.2 Ýmsar ástæður geta legið að baki þessum miklu gengisáhrifum (sjá rammagrein VIII-1). Gengisbreytingin er mjög mikil og lakar horf- ur á að hún gangi fyllilega til baka í bráð. Ef kaupmenn telja að geng- islækkunin sé að mestu leyti varanleg eru þeir líklegri til að hleypa henni í auknum mæli út í verðlag. Gífurleg hækkun orku- og hrávöruverðs á heimsmarkaði hefur síðan magnað áhrifin. Hráolíu- og matvælaverð hefur aldrei verið hærra og hefur matvöruverð hér á landi hækkað um 16½% sl. tólf mánuði og eldsneytisverð um rúm 42%.3 Innlendur kostnaður vegur nokkuð þungt í verðlagningu innfluttrar vöru. Ýmis innlendur kostnaður, t.d. launa- og húsnæðiskostnaður hækkaði veru- lega í fyrra, en sterkt gengi krónu vó á móti. Kostnaðurinn kemur því ekki fram fyrr en gengið fellur umtalsvert. Þegar stöðugar hreyfingar eru á verðlagi kann verðskyn neytenda einnig að dofna ásamt því að verðbólguvæntingar aukast. Það auðveldar fyrirtækjum að koma auknum kostnaði út í vöruverð. Samspil þessara og fleiri þátta kann að hafa leitt til þess að áhrif gengislækkunarinnar á verðlag urðu meiri en söguleg reynsla gaf vísbendingu um. Mikill þrýstingur á verðlag þjónustu Þjónustuverðbólga hefur aukist mikið undanfarna mánuði. Í júní hafði verðlag almennrar þjónustu hækkað um 9% frá því fyrir ári, 2. Síðastliðna tólf mánuði hefur verð innfl uttrar mat- og drykkjarvöru hækkað um 23% og verð nýrra bíla og varahluta um 17%. 3. Hér er átt við almennt matvöruverð þ.e. bæði innlenda framleiðslu og innfl uttar vörur. 0 5 10 15 20 2008200720062005200420032002 12 mánaða breyting vísitölu (%) Heimild: Hagstofa Íslands. Mynd VIII-4 Verðlagsþróun: húsnæði og þjónusta janúar 2002 - júní 2008 Húsnæði Almenn þjónusta Opinber þjónusta 80 100 120 140 160 180 200 220 240 ‘08‘07‘06‘05‘04‘03‘02‘01‘00‘99‘98‘97 Mars 1997 = 100 Mynd VIII-5 Innflutningsgengi og verðlag innfluttrar vöru mars 1997 - júní 2008 Heimild: Hagstofa Íslands. Bensín Innfluttar vörur án áfengis og tóbaks Nýir bílar og varahlutir Dagvara Gengisvísitala fyrir vöruinnflutning -8 -6 -4 -2 0 2 4 6 8 10 12 14 16 18 20082007200620052004200320022001 Mynd VIII-6 Vöruverð janúar 2001 - júní 2008 Heimild: Hagstofa Íslands. 12 mánaða breyting vísitölu (%) Innfluttar vörur án áfengis og tóbaks Innlendar vörur án búvöru og grænmetis Dagvara

x

Peningamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Peningamál
https://timarit.is/publication/1144

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.