Glóðafeykir - 01.04.1979, Blaðsíða 53

Glóðafeykir - 01.04.1979, Blaðsíða 53
GLÓÐAFEYKIR 53 Seyðisfirði. Hann kom til Sauðárkróks í ársbvrjun 1889 til að draga skipið á flot. En verðið var hátt og bændur auralitlir eftir uppboðið á vörunum úr Lady Bertha, sem menn höfðu boðið vel í. Hinn 4. desember 1888 boðaði Ólafur Briem til fundar á Sauðár- króki. Til hans komu þessir fulltrúar: Úr Viðvíkurdeild: Séra Zóphónías Halldórsson, Viðvík. Úr Lýtingsstaðadeild: Eyjólfur Hansson, Valadal. Úr Hóladeild: Hermann Jónasson skólastjóri, Hólum. Úr Sauðárdeild: Vigfús Guðmundsson, Sauðárkróki. Úr Staðardeild: Jón Jónsson Hafsteinsstöðum. Úr Rípurdeild: Jónas Jónsson, Hróarsdal. Tvö mál voru lögð fyrir fundinn: 1.) pöntunarfélagshúsið og með- ferð þess og 2.) framhald pöntunarinnar. Þessi fundur er haldinn í nafni pöntunarfélagsins og skráður í gjörðabók þess. Það er samt ljóst af henni, að húsmálið var aukaatriði. Ýmsar uppástungur komu raunar fram, en samþvkkt að fresta allri ákvarðanatekt til fjölmennari fundar. Framhald pöntunarinnar var aðalmál fundarins. Það hefur verið talið pöntunarfélaginu óviðkomandi og er ekki skráð í gjörða- bókina. Þó er ljóst, hvað rætt hefur verið. I lok fundargerðarinnar segir: „Þessu næst var talað um á hvaða tíma haganlegast þætti að halda þann aðalfund fyrir fjelag þetta, er fyr hefur verið minnst á að halda þvrfti, og var ákveðinn einmánuður til þess eptir nánari ákvæðum fjelagsstjórnarinnar og á Sauðárkrók.“ Þetta er sem * sé undirbúningsfundur fyrir stofnun Kaupfélags Skagfirðinga. Þjóðólfur birtir einnig frétt um það í janúar árið eftir, að Skagfirðingar ætli að snúa sér til Zöllners með viðskipti sín næsta ár. Síðasti fundur pöntunarfélagsins var haldinn 23. apríl 1889. Þar var aðeins eitt mál á dagskrá, pöntunarfélagshúsið. V. Claessen stakk upp á því, að það yrði skilið frá pöntunarfélaginu og hluteigendur í því kysu sérstaka stjórn, sem gæti síðan ráðstafað húsinu. Þessi uppá- stunga var samþykkt og kosin þriggja manna stjórn: Ólafur Briem, Valgard Claessen, og Ólafur Sigurðsson í Ási. Húsfélagið hélt aðal- fund 11. júní, og komu þar flestir fulltrúarnir. Félaginu voru sett lög í 10 greinum. Samkvæmt þeim var atkvæðisréttur bundinn við hluti, en ekki einstakling eins og í lögum pöntunarfélagsins. Sama dag var Kaupfélagi Skagfirðinga leigt hálft húsið að beiðni séra Zóphóníasar Halldórssonar. Hinn helminginn falaði Pétur Pétursson á Gunn- steinsstöðum til afnota fyrir Coghillsfélagið og fékk hann. Næstu ár voru haldnir fundir í félaginu, sem eftir aðskilnaðinn var
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Glóðafeykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.