Glóðafeykir - 01.04.1979, Síða 59
GLÓÐAFEYKIR
59
að eiga hann að vini, enda margir, sem léttu honum lífið eftir að heilsa
og kraftar voru þrotnir“. (St. Magn.).
Ólafur kvæntist ekki né átti börn.
Sigurbjöm Gunnlaugsson, fyrr bóndi á Bústöðum í Austurdal, lézt þ.
10. des. 1972.
Hann var fæddur að Barði í Fljótum 26. apríl 1911. Var faðir hans
Gunnlaugur Sigfússon, síðast bóndi að Ásgeirsbrekku í Viðvíkursveit,
Dagssonar hreppstj. og bónda á Karlsstöðum í Ólafsfirði, Bjarnason-
ar, en móðir Ólöf Sigurðardóttir, þá kaupakona á Barði.
Sigurbjörn ólst upp með móður sinni og stjúpföður, Steinþóri Þor-
steinssyni, en hún var seinni kona hans. Bjuggu þau í Héðinsfirði og
síðar í Ólafsfirði. Fullorðinn maður bjó Sigurbjörn um nokkurt árabil
í Hólkoti í Ólafsfirði, og var þá bústýra hans og sambýliskona Ólafía
Pálsdóttir bónda á Brúarlandi í Deildardal, Þorgilssonar, og konu hans
Guðfinnu Ástu Pálsdóttur bónda á Auðnum í Ólafsfirði, Jónssonar.
Árið 1950 fóru þau búi sínu að Bústöðum og bjuggu þar til 1960, voru
síðan eitt ár á Grindum í Deildardal, en hurfu eftir það til Sauðár-
króks; var þá Sigurbjörn þrotinn að heilsu og rúmfastur og reis eigi
síðan úr rekkju. Lá í heimahúsum unz Ólafía lézt árið 1969, en eftir
það lengstum hjá fósturdóttur sinni, Bryndísi Þorbergsdóttur. Ólafía
v'ar mikil dugnaðarkona og atorku, sem hún og átti kyn til, og annaðist
Sigurbjörn af stakri fórnfýsi og prýði í hinum langvinnu veikindum
hans. Þau áttu ekki börn saman, en ólu upp tvö fósturbörn, áður-
nefnda Bryndísi, ættaða úr Ólafsfirði, og Anton Hjaltason, bróðurson
Ólafíu. Son átti Sigurbjörn, Guðmund; hann er sjúklingur í Kópavogi.
Saga Sigurbjarnar Gunnlaugssonar er eigi margþætt né stórbrotin.
Hann mun aldrei hafa verið heill heilsu og bar útlit hans og fram-
ganga þess jafnan nokkur merki, var og orðinn farlama maður áður en
náð hafði fimmtugsaldri. ,,Þó \rar hann ávallt viðræðugóður, hress og
hispurslaus í tali og fósturbörnum sínum var hann mjög góður og
nærgætinn“. (Heim.: St. Magn.).
Anna Einarsdóttir, húsfr. á Sauðárkróki, lézt þ. 3. marz 1973.
Hún var fædd í Tumabrekku í Óslandshlíð 9. júní 1891. Voru
foreldrar hennar Einar Jónsson, Kaprasíussonar, og kona hans Júlíana
Jónsdóttir, ættuð vestan af Ströndum. Var Anna alsystir Ástvalds, sjá
Glóðaf. 1969, 9. h. bls. 43.
Anna ólst upp á ýmsum stöðum austan Héraðsvatna og hafði lítið af
foreldrum sínum að segja; var um hríð hjá Sigurði Ólafssyni og