Glóðafeykir - 01.04.1979, Qupperneq 60

Glóðafeykir - 01.04.1979, Qupperneq 60
60 GLÓÐAFEYKIR Margréti systur hans. en þau bjuggu nokkur ár um og fvrir aldamótin í Langhúsum (nú Asgarður) í Viðvíkursveit. Kringum 1914 réðst hún í vist til Stefáns bónda Sigurðssonar og konu hans Hjörtínar Hannesdóttur á Þverá í Blönduhlíð. Með þeim hjónunt og börnum þeirra ólst upp Sigurður, sonur Stefáns, er hann átti með Sigurlaugu Baldvinsdóttur, áður en hann kvæntist Hjörtínu. Felldu þau hugi saman er stundir liðu, Sigurður og Anna, reistu bú að Rein í Hegranesi 1916 og bjuggu þar 3 ár. Arið 1919 gengu þau í hjónaband og fóru í húsmennsku að Syðri-Hofdölum, bjuggu í Hjaltastaðakoti (nú Grænamýri) í Blönduhlíð 1921-1922, eftir það í húsmennsku í Merkigarði í Tungusveit 1 ár, í Torfmýri í Blönduhlíð 1923-1925 og loks á Húsa- bakka hinum ytri í Seyluhreppi önnur tvö ár; þaðan lá svo leiðin til Sauðárkróks, og þar stóð heimili þeirra æ síðan. Svo sem hér má sjá, voru þau Anna og Sigurður á sífelldum hrak- hólum hinn fyrsta áratug sjálfsmennsku sinnar, enda sárfátæk þótt hvorugt þeirra skorti dugnað. Og á Sauðárkróki var heldur eigi að miklu að hverfa á þeim árum. Húsakynnin, sem fjölskyldan varð að hírast í fyrstu árin, voru eigi háreist né glæsileg — og raunar eigi íbúðarhæf. En þar var allt þrifið og fágað, svo sem léleg húsakynni framast leyfðu, og snyrtimennska í allri umgengni. Þar var hlýtt og gott að vera, höfðingslund og gestrisni húsráðenda meiri og einlægari en í margri háreistri höll. Og smám saman gekk hagur þeirra hjóna fram. Þau keyptu sér lítið hús. Þar komu þau sér vel fyrir og þar leið þeim vel. Þau eignuðust 4 sonu. Elztur var Kári, viðskiptafr., framkv.stj. í Reykjavík, látinn fyrir allmörgum árum, Stefán skipstj. á Sauðárkr., dáinn 1966, Indriði, f. skipstj. í Reykjavík og Hreinn, forstj. á Sauðárkr. Anna Einarsdóttir var góð meðalkona á vöxt og ágætlega á fót komin. Hún var dökkhærð, móeygð, vel farin í andliti, fríðleikskona og glæsileg á yngri árum. Hún var höfðingi í lund, hetja í raun, lét ekkert á sig ganga, ekki fátækt framan af árum, ekki missi ástfólginna og efnilegra sona á bezta skeiði, ekki heilsubrest á efri árum. Hún var hamhleypa til allra verka, annáluð fyrir afköst við heyvinnu á yngri árum, sívinnandi alla ævi og lærði aldrei að hlífa sjálfri sér. Hún var mikil mannkostakona, trygglynd og vinföst, hljóðlát löngum og há- Anna Einarsdóttir.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Glóðafeykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.