Glóðafeykir - 01.04.1979, Side 61
GLOÐAFEYKIR
61
vaðalaus, vann öll sín störf í kyrrþey; hefur sá og löngum verið háttur
íslenzkra húsmæðra og störf þeirra eigi ávallt metin sem skyldi, af því
að hljótt hefur verið um þau út á við, þótt þjóðnýt hafi verið og
blessazt ungum og öldnum betur en mörg þau, sem meira hafa auglýst
verið.
Árni Sigurðsson, f. bóndi í Ketu í Hegranesi, lézt þ. 29. marz 1973.
Hann var fæddur að Landamóti í Kaldakinn 17. sept. 1881. Voru
foreldrar hans Sigurður bóndi Pálsson, merkur maður og kunnur
norður þar, greindur vel og skáldmæltur, og
kona hans Hólmfríður Kristbjörg Árnadóttir
bónda á Hóli í Kinn. Var Árni albróðir Páls í
Keldudal, sjá Glóðaf. 1974, 15. h. bls. 64.
Árni ólst upp á ættarslóðum til fullorðins-
ára, var m.a. um hríð á sínum unglingsárum
á Stóruvöllum í Bárðardal, því mikla mynd-
ar- og menningarheimili. Hann stundaði
nám í Hólaskóla og þeir bræður þrír sam-
tímis; luku þeir allir búfræðiprófi vorið 1906,
Páll elztur, þá Árni og Kristján yngstur (f.
1888, d. 1970), síðar kennari og bóndi á
Brúsastöðum í Vatnsdal. Fjórði bróðirinn,
Jón, er löngu látinn. Systur voru tvær: Margrét, dáin fyrir mörgum
árum, var gift Stefáni söðlasmið Stefánssyni, síðast á Brúnastöðum í
Tungusveit, og Kristín, ekkja síra Hermanns Hjartarsonar, prests á
Skútustöðum og skólastj. á Laugum.
Eigi hurfu þeir bræður til langdvalar á æskuslóðum eftir að skóla-
vist lauk á Hólum. Festu þeir sér allir ból hér vestra, í Skagafirði og
Húnaþingi. Árið 1915 kvæntist Árni Sigurlaugu Guðmundsdóttur bónda á
Innstalandi á Reykjaströnd, Sigurðssonar, og konu hans Ingibjargar
Björnsdóttur (sjá þátt um Sigurlaugu í Glóðaf. 1974, 15. h. bls. 81).
Hófu þau þegar að búa í Glaumbæ á Langholti og síðan í Brekku hjá
Víðimýri, sitt árið á hvorum stað, en 1917 keyptu þau jörðina Ketu í
Hegranesi, fóru byggðum þangað og bjuggu þar óslitið til 1950, er þau
seldu jörð og bú í hendur Ingimundi syni sínum og Baldvinu konu
hans. Aldrei var auður í garði þeirra hjóna, en jafnan bjuggu þau
snotru búi og bættu jörð sína stórum að ræktun og húsakosti.
Sigurlaug, kona Árna, lézt 21. júlí 1968. Börn þeirra hjóna eru þrjú:
Sigurpáll, kaupmaður í Lundi hjá Varmahlíð og bóndi á ípishóli,
kvæntur Hildi Kristjánsdóttur, Hólmfríður, húsfr. í Svíþjóð, gift Reyni
Mynd birtist
í næsta blaði