Glóðafeykir - 01.04.1979, Page 62
62
GLÓÐAFEYKIR
Ragnarssyni húsgagnasmið og Ingimundur, bóndi í Ketu (nú bílstj. á
Sauðárkr.), var kvæntur Baldvinu Asgrímsdóttur, en missti hana í
broddi lífs (sjá Glóðaf. 1970, 11. h. bls. 64). Litla stúlku á öðru ári,
Gyðu Pálsdóttur, tóku þau Ketuhjón í fóstur og ólu upp sem eigið
barn; hefur hún framazt vel og nú um hríð verið ljósmóðir við stórt
sjúkrahús í Svíþjóð.
Árni í Ketu var meðalmaður á vöxt, stórskorinn nokkuð ásýndum
en sviphreinn og festulegur. Hann var einstakur eljumaður, sívinn-
andi alla ævi og mátti um hann segja flestum fremur, að honum félli
aldrei verk úr hendi. Hann var greindur maður og bókhneigður,
óvenju sjálfstæður í skoðunum, djarfmáll, einarður og hispurslaus.
Hann var kirkjuvinur og kristindóms, en frjálslyndur og víðsýnn í
trúarefnum, laut andanum en ekki bókstafnum. Árni var mætur
maður og féll háaldraður með hreinan skjöld.
Aðalbjörg Gísladóttir, bústýra í Miðhúsum í Blönduhlíð, lézt þ. 8. maí
1973.
Hún var fædd að Minni-Ökrum í Blönduhlíð 10. marz 1899, dóttir
Gísla bónda Þorfinnssonar og konu hans
Guðrúnar Jónsdóttur; var hún alsystir Árna
frá Miðhúsum, sjá Glóðaf. 1972, 13. h. bls,
54.
Ársgömul fluttist Aðalbjörg með foreldr-
um sínum að Miðhúsum. Þar ólst hún upp í
foreldrahúsum í stórum og glaðværum syst-
kinahópi, og þar átti hún heima alla ævi.
Einn vetur var hún við hússtjórnarnám í
Reykjavík, annars löngum heima þar í Mið-
húsum, enda tengd föðurleifð sinni og
frændgarði órofa böndum. Árið 1920 hóf
hún þarbúrekstur meðjóni bróður sínurn, er
elztur var þeirra Miðhúsabræðra, og var síðan lengstum innan stokks
hjá honum, en hvorugt þeirra giftist né átti börn. Systurson sinn, Gísla
Jónsson, síðar bónda í Miðhúsum, tók hún ársgamlan í fóstur 1927, er
móðir hans lá banaleguna, og gekk honum í móðurstað.
Þau systkinin, Aðalbjörg og Jón, bjuggu góðu búi í Miðhúsum,
enda bæði vinnusöm og verkamikil. Gestrisni var frábær og systkinin
samvalin og samhent um alla hluti. Þar var glaðværð og glettni lá í
lofti, hlý og hávaðalaus, og þar leið öllum vel innan væggja.
Begga í Miðhúsum, en svo var hún löngum nefnd, var í tæpu
Aðalbjörg Gísladóttir.