Glóðafeykir - 01.04.1979, Síða 66
66
GLOÐAFEYKIR
Baldey Reginbaldsdóttir, húsfr. á Sævarlandi á Laxárdal ytra, lézt þ.
15. maí 1973.
Hún var fædd að Látrum í Aðalvík vestra 22. ágúst 1898. Foreldrar
hennar voru Reginbald Erlendsson og kona
hans Bjargey Sigurðardóttir. Faðir Baldeyjar
lézt skömmu áður en hún fæddist. Þriggja
ára gamalli var henni komið í fóstur til
Guðmundar Sigurðssonar, móðurbróður síns
og konu hans, er bjuggu í Aðalvík. Ólst hún
upp hjá þeim til 16 ára aldurs, en fluttist þá
norður í Húnavatnssýslu, að Bergstöðum í
Svartárdal.
Á Bergstöðum og ýmsum bæjum þar í
grennd dvaldist Baldey um sinn. A þeim ár-
um kynntist hún eiginmanni sínum, er síðar
varð, Vilhelm Lárussym frá Skarði í Göngu-
skörðum. (Sjá þátt um hann í Glóðaf. 1972, 13. h. bls. 61). Þau gengu í
hjónaband árið 1923 og stofnuðu sama ár heimili á Gili í Borgarsveit,
en töldust þó eigi búendur. Þaðan fluttust þau að Heiðaseli (Dalsá) í
Gönguskörðum og bjuggu þar í 6 ár. Fóru þaðan að Skarði fyrst, þá til
Sauðárkróks og loks að Sævarlandi 1935, sem nánar greinir í þættin-
um um Vilhelm. Þar eru og talin börn þeirra hjóna, 3 dætur og 2 synir.
Baldey missti mann sinn árið 1963. Eftir það bjó hún á Sævarlandi,
meðan lifði, með börnum sínum þrem: Sigurði, Regínu og Guðmundi.
„Baldey Reginbaldsdóttir var í meðallagi há, ljós yfirlitum, jafnan
glöð og hress í máli, gerðarleg kona“. (Þátturinn ritaður að mestu af
Gunnst. hreppstj. Steinss.).
Knstján C. Magnússon, skrifstofum. á Sauðárkróki, lézt þ. 3. júní 1973.
Hann var fæddur á Sauðárkr. 29. ágúst árið 1900. Foreldrar:
Magnús verzlunarm. Guðmundsson smiðs á Sauðárkr., Guðmunds-
sonar bónda á Yzta-Gili í Langadal, Sveinssonar, og kona hans Hildur
Margrét Pétursdóttir Eriksens, dansks skipstjóra, er fórst við Skotland
1873. Unnusta hans og móðir Margrétar var Lára Sigfúsdóttir bónda í
Gilsárvallahjáleigu í Borgarfirði eystra. Giftist hún síðar Þorvaldi
Einarssyni. Settust þau að á Sauðárkróki, er byggð var þar að rísa, og
hefur sama ættin, þrír liðir, búið þar hátt í öld, að undanskildum
fjórum árum.
„Kristján ólst upp í foreldrahúsum, á menningarheimili, þar sem
listir voru í hávegum hafðar, ekki hvað sízt sönglist og leiklist“. (K.B.).
Baldey Regmbaldsdóttir.