Glóðafeykir - 01.04.1984, Qupperneq 8

Glóðafeykir - 01.04.1984, Qupperneq 8
8 GLÓÐAFEYKIR sem litu á sig hver og einn, sem smáfugl í baráttunm við ófrelsi og rangsnúna viðskiptahætti. En þeir vissu líka að smáfuglinn á ókennilegt afl, og það afl var komið frá þeim lífgjafa er skapaði mann og fugl. Tækist þeim að sameina krafta sína - sameina mátt hinna mörgu til félagslegra átaka, var víst að starf þeirra bæri ávöxt. Og það tókst. Þau félagslegu fræ, sem sáð var að Þverá í Laxárdal fyrir eitthundrað árum bárust brátt um landið. Stofnuð voru fleiri kaupfélög, síðan samband kaupfélaganna og enn fleiri kaupfélög og samvinnufélög. Því gleðjumst við í dag yfir þeim vexti og þroska er samvinnufélögin hafa náð. Starf þeirra er nú svo gildur þáttur í athöfn og önn samfélagsins að hagur þeirra verður eigi skilinn frá þjóðarhag. Erindi okkar hingað í dag er meira en að minnast frumherja og gleðjast yfír glæstum árangri samvinnustarfsins. Við hljótum einnig að fagna því að við megum sjálf taka þátt í starfi dagsins, taka þátt í að efla það sem fyrir er, og leggja grunn að nýju. Ósk okkar og von er ætíð sú að okkur auðnist að skila af okkur eilítið betra búi en við tókum við. Það mun okkur takast, ef við minnumst í verki hugsjóna samvinnunnar, umjafnrétti manna, samfylgd í kjörum ogsamstarf við lausn verkefna til hagsbóta þeim er að vinna og þeirra er síðar eiga að njóta. Eg hef ekki nefnt hér nöfn frumherja eða forystumanna. Það er viljandi gert svo að mál verði ekki of langt. Þó vil ég gera á undantekningu og nefna til sögunnar einn Þingeying. Jón Sigurðsson bóndi í Ysta-Felli var eldheitur hugsjóna og samvinnumaður. Hann ferðaðist um landið fyrir samvinnufélögin og flutti fyrirlestra - fræðslu og kynningarstarf. Einhverju sinni var Jón að koma af fundi frá Laugum ásamt fleiri sveitungum sínum. Er þeir félagar voru komnir norðvestur á Fljótsheiðina, brast á þá iðulaus norðan stórhríð, svo varla var ratandi. Jón fór fyrir hópnum. Félagar hans heyrðu þá að Jón tók að tauta eitthvað fyrir munni sér og er þeir lögðu við hlustir greindu þeir, í gegnum stórhríðargnýinn þessi orð: „ísland er besta land í heimi, ísland er besta land í heimi.” Þessi orð sýna okkur hversu óhemju sterk tilfinningabönd, sá sem þau mælti, átti við land sitt. Þau sýna okkur einnig, að þessi maður vissi vel að yfir er blár himinn þótt fenni um jörð, annars hefði hann naumast getað mælt svo í stórhríðinni. En því nefni ég þetta, að mér finnst sem tilfinningabönd manna við land sitt og þjóð hafi nokkuð
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Glóðafeykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.