Glóðafeykir - 01.04.1984, Blaðsíða 55
GLÓÐAFEYKIR
55
myndarleg í sjón, svipmikil, hýrleg og brá oft fyrir glettni í svipnum.
Hún var viðræðugóð og hafði ánægju af að fá til sín gesti til að rabba
við yfir kaffibolla. Hún ofmetnaðist ekki af skáldfrægð sinni, en var
alltaf sama yfirlætislausa alþýðukonan.”
Sigmundur Þorkelsson, verkamaður á Sauðárkróki varð bráð-
kvaddur 24. ágúst 1975 og var þá við laxveiðar austur í Þingeyjarþingi.
Hann var fæddur á Daðastöðum á Reykjaströnd 18. febrúar 1911.
Foreldrar: Þorkell bóndi þar og síðar á
Ingveldarstöðum syðri í sömu sveit Jóns-
son, bónda á Egg í Hegranesi, Guðmunds-
sonar bónda á Sleitustöðum í Kolbeinsdal,
Einarssonar, og kona hans Anna Sigríður
Sigurðardóttir bónda í Kjartansstaðakoti á
Langholti, Stefánssonar bónda þar o.v.,
Sigurðssonar, en kona Sigurðar í Kjartans-
staðakoti og móðir Önnu Sigríðar var Anna
Guðmundsdóttir bónda í Lýtingsstaðakoti
hinu efra í Tungusveit, Jónssonar. Kona
Jóns á Egg og móðir Þorkels, föður
Sigmundar, var Sigríður Pálsdóttir bónda og
hreppstóra á Syðri-Brekkum í Blönduhlíð, Þórðarsonar.
Sigmundur ólst upp með foreldrum sínum, einn í hópi 9 systkina,
fyrst á Daðastöðum til 10 ára aldurs og síðan á Ingveldarstöðum.
Þorkell, faðir þeirra systkina, lést árið 1929. Bjó Anna Sigríður áfram á
jörðinni með sonum sínum uns Sigmundur tók við búi 1933 og bjó á
Ingveldarstöðum til 1944, er þeir bræður ásamt með móður sinni fluttu
til Sauðárkróks, þar sem systkinin öll festu bú, þau sem lifandi vöru,
en einn bræðranna, Stefán, var þá látinn fyrir allmörgum árum.
Yngstu bræðurnir, Sigmundur og Haukur, héldu heimili með móður
sinni og fóstursystur, Margréti Jóhannsdóttur. Móðir þeirra dó árið
1959, en Margrét lést 1972 (sjá Glóðaf. 1977, 18. h. bls. 49).
A Sauðárkróki stundaði Sigmundur margháttuð störf. Hann var
hneigður til veiðiskapar, bæði á sjó og landi. Á yngri árum var hann
mörg vor við fuglaveiði og eggjatöku í Drangey, gekk til rjúpna á
vetrin, greip í laxveiðar á sumrin og hafði af óskorað yndi. Allmörg ár
var hann aðstoðarmaður Þórðar P. Sighvats rafvirkjameistara við
raflagnir og símaviðgerðir, mörg haust skytta á sláturhúsi
K.S.,leiksviðsmaður hjá Leikfélagi Sauðárkróks nokkur ár og
Sigmundur Þorkelsson