Glóðafeykir - 01.04.1984, Qupperneq 70
70
GLÓÐAFEYKIR
1949 gerðist hann rafveitustjóri á Sauðárkróki og gegndi því starfi til
dauðadags, hafði og eftirlit með raflínulögnum fyrir Héraðs-
rafmagnsveitur ríkisins 1950- 1959. Hann var ritari Félags íslenskra
rafvirkja 1944 - 1945. Formaður Iðnaðarmannafélags Sauðárkróks
1952 - 1968, formaður í stjórn samkomuhússins Bifrastar á
Sauðárkróki 1953 - 1958. Enn er þess að geta, að Adolf sat í stjórn
Sambands íslenskra rafveitna 1960, 1962 og aftur 1972 til dánardags,
forseti Iðnþings Islendinga 1962; forseti
Rotaryklúbbs Sauðárkróks 1960-1961, starf-
aði í Frímúrarareglunni af miklum áhuga,
sat i stjórn Norræna félagsins á Sauðárkróki,
einnig í stjórn Stangveiðifélags Sauðárkróks.
Er Sjónvarpið hóf göngu sína gerðist Adolf
þegar fréttaritari þess á Sauðárkróki og um
leið kvikmyndatökumaður, enda kunnáttu-
maður á þá hluti. Nokkur síðustu árin sat
hann í sóknarnefnd Sauðárkrókssafnaðar og
vann þar með öðrum ágætt starf að
gagngerum endurbótum á Sauðárkróks-
kirkju, svo að loknum þeim framkvæmdum
var kirkjan sem annað hús, er inn var sest.
Þessi upptalning á trúnaðarstörfum, sem Adolf Björnsson gegndi -
mun þó eigi fulltalið -, sýnir gerla, hvílikt manntraust hann hafði, enda
var maðurinn starfhæfur í besta lagi og mjög áhugasamur um þau mál
flest, er fram horfðu, og þó sérstaklega á sviði iðnaðar og raforkumála.
Hann var mikill baráttumaður fyrir vatnsvirkjunum á Norðurlandi
vestra, fékk því til vegar komið að flutt var á Alþingi og samþykkt
frumvarp um virkjun Reykjafoss í Svartá og hafði undirbúið það mál
svo rækilega, m.a. með jarðvegsrannsóknum og í framhaldi af því
margvíslegum athugunum, að verkið var tilbúið til útboðs, er
opinberir aðilar drógu að sér hendur; olli það Adolf eigi litlum
vonbrigðum. Nokkru áður en hann lést var hann skipaður til að taka
sæti í stjórn Norðurlandsvirkjunar.
Adolf var mikill kappsmaður, enda þótt fumlaus væri og flýtti sér
hægt. Að hverju, sem Adolf gekk, sýndi hann öryggi og festu, hljóp
aldrei frá hálfnuðu verki, þótt fyrir kæmi að öndvert blési. Hann
stjórnaði Rafveitu Sauðárkróks af mikilli prýði, bæði um fjárhag og
framkvæmdir og sýndi í hvívetna mikla forsjálni, gætti þess t.a.m. alla
jafna að hafa lokið raflögnum um ný bæjarhverfi er til þurfti að taka,
Adolf Bjömsson