Glóðafeykir - 01.04.1984, Blaðsíða 46
46
GLÓÐAFEYKIR
Soffía giftist síðar Stefáni bónda í Hvammi í Hjaltadal, Sigurgeirssyni,
(sjá Glóðaf. 1967, 7. h. bls. 36).
Jón, faðir Kristjönu, tók holdsveiki. Ólst hún upp með móður sinni
og fylgdi henni að Hvammi, varð því Stefán Sigurgeirsson stjúpfaðir
hennar. Arið 1913 giftist hún Stefáni Jónssyni bónda að Hringveri í
Viðvíkursveit o.v. Jónssonar, bónda á Skuggabjörgum í Deildardal
o.v., Jónssonar, og konu hans Guðrúnar Stefánsdóttur bónda á Þverá
í Blönduhlíð, Jónassonar, en kona Stefáns og móðir Guðrúnar var
Guðbjörg Tómasdóttir bónda að Nautabúi á Neðribyggð. Var
Guðrún annáluð gæðakona. Attu þau hjón, Guðrún og Jón, þrjá sonu
auk Stefáns: Hallgrím, bónda á Hringveri, Jón, bónda að Enni í
Viðvíkursveit, drukknaði í fiskiróðri á Skagafirði 1923, rösklega
fertugur, og Þorgeir, prest og prófast í Nesprestakalli á Norðfirði
austur og er enn á lífí, þegar þetta er skrifað.
Þau Kristjana og Stefán reistu bú á Hringveri sama árið og þau
giftust, en fóru búi sínu árið 1915 vestur að Sæunnarstöðum og bjuggu
þar og á Hafursstöðum í sömu sveit þar til er Stefán lést árið 1932. Þau
eignuðust 5 börn, eitt dó í æsku, en upp komust: Soffía, búföst á
Blönduósi, Pétur, Unnur og Bergþóra, öll búföst í Reykjavík.
Nokkrum árum eftir lát eiginmanns síns fluttist Kristjana aftur til
Skagafjarðar, fyrst til Hofsóss en þaðan til Sauðárkróks. Þar hélt hún
heimili með Óskari Þorleifssyni frá Kjalarlar.di (sjá Glóðaf. 1974, 15.
h. bls. 82).
„Kristjana var í meðallagi há vexti, gjörfuleg kona á alla lund, hafði
hýrlegt yfírbragð, glaðlynd en fremur hlédræg. Vann öll sín störf af
alúð og skyldurækni. Hún stundaði fískvinnu allt fram á elliár.” (St.
Magn.).
Björn Skúlason, verkamaður á Sauðárkróki, lést hinn 11. júní 1975.
Hann var fæddur í Mjóadal á Laxárdal fremra 7. desember 1893,
sonur Skúla járnsmiðs, síðar á Blönduósi, Benjamínssonar, og
Ingibjargar Hjálmarsdóttur, sem þá var vinnukona í Mjóadal. Var
hún dótturdóttir Sigurðar Arnasonar, bónda og hreppstjóra í
Höfnum á Skaga, en til hans rekja þeir Hafnamenn ættir sínar.
Fram um fermingaraldur ólst Björn upp á vegum móður sinnar,
fyrst hjá þeim merku hjónum Guðmundi Erlendssyni og Ingibjörgu
Sigurðardóttur í Mjóadal, síðar á Auðólfsstöðum í Langadal, í
Vatnshlíð á Skörðum o.v. í Bólsstaðarhlíðarbreppi. Eftir það fluttust
þau mæðgin hingað til Skagafjarðar. Vann Björn fyrir sér á ýmsum