Glóðafeykir - 01.04.1984, Blaðsíða 26
26
GLÓÐAFEYKIR
um Helga Rafn. Hann var góður félagi, sem gott var að starfa með;
samstarf við hann var ætíð gott á stjórnarfundum, skýrslur hans allar
og málflutningar einkenndust af skýrleika og góðum skilningi,
framsögn hans öll var skilmerkileg og greindarleg. Helgi Rafn var
framfarasinnaður og vildi hag og heiður Kaupfélags Skagfirðinga í
hvívetna. Hann hafði forystu um ýmislegt, sem til framfara horfði fyrir
félagið, og átti þátt í ýmsum framkvæmdum á þess vegum. Má þar til
nefna, að hann átti mikinn hlut að því máli að byrjað var á að koma
upp verslunarhúsi og aðalstöðvum kaupfélagsins í nýju stórhýsi, sem
nú er í smíðum. Þá skal þess og getið, að nú standa yfir miklar
endurbætur og stækkun á húsakynnum og vélakosti Fiskiðju
Sauðárkróks. Fleira mætti nefna, þótt fleira verði eigi greint hér.
Helgi Rafn var gæddur andlegum hæfileikum í besta lagi. Hann var
líkamlega vel á sig kominn og hafði til að bera hlýlegt viðmót og
geðþekka framkomu. Hann var mikill atorkumaður, málafylgju-
maður góður oft og einatt, er á þurfti að halda, og gat verið þungur á
bárunni. Að mínum dómi hafði hann til að bera farsæla hæfileika í
starfi sínu sem kaupfélagsstjóri, og tel ég félagið eiga mikils í að missa
við sviplegt fráfall hans.
Eftirlifandi kona Helga Rafns er Inga Valdís Tómasdóttir, sem
hann kvæntist árið 1957. Hún er dóttir hjónanna Tómasar
Sigvaldasonar loftskeytamanns í Reykjavík og Magneu D.
Sigurðardóttur, og er hún hin mætasta kona, enda hefir hjónaband
þeirra Helga og Ingu verið farsælt og gott. Þeim varð 5 barna auðið, og
eru þau eftirtalin: Trausti Jóel, f. 21. okt. 1958, Rannveig Lilja, f. 6.
mars 1960, Tómas Dagur, f. 26. okt. 1961, Guðrún Fanney,f. 28. nóv.
1963, og Hjördís Anna, f. 8. ág. 1966.
Þungur harmur er nú kveðinn að fjölskyldunni, og vil ég votta því
mæta fólki djúpa samúð mína. Og Helga Rafni vil ég af alhug þakka
dýrmæt störf hans fyrir K.S. og mun þeirra lengi verða minnst að
verðleikum í héraðinu.
Útför Helga Rafns Traustasonar fór fram frá Sauðárkrókskirkju
þriðjudaginn 5. janúar 1982, að viðstöddu miklu fjölmenni, og var hún
kostuð af Kaupfélagi Skagfirðinga í virðingar- og þakkarskyni við
hinn látna.
Jóhann Salberg Guðmundsson.