Glóðafeykir - 01.04.1984, Blaðsíða 63
GLÓÐAFEYKIR
63
æ síðan. Lifir Hrefna mann sinn. Tveir eru synir þeirra hjóna: Ólafur,
starfsmaður hjá K.S. á Sauðárkróki og Friðbjörn, verkstjóri á
Keflavíkurflugvelli.
Jón Friðbjarnarson var smiður góður, enda þótt ólærður væri;
stundaði hann smíðar allmjög framan af árum auk annarra starfa
ýmissa; vann um hríð hjá Fiskiðju Sauðárkróks hf., varð fyrir því slysi
að lenda með annan handlegginn í færibandi svo að margbrotnaði og
var honum höndin ónýt að mestu eftir það. En Jón var eigi þess konar
maður að hann legði árar í bát og léti reka sem verkast vildi. Hann varð
sér úti um vinnu þótt fatlaður væri, var mörg ár bæjarpóstur á
Sauðárkróki, umsjónarmaður kartöflugeymslu á staðnum o.fl., kom
sér upp vænum fjárstofni og annaðist af mikilli umhyggjusemi og
natni.
Jón vann mikið að félagsmálum ýmsum. Verkalýðsmál voru honum
hugfólgin; var hann um stund formaður verkamannafélagsins Fram á
Sauðárkróki og gjaldkeri félagsins um árabil; þá sat hann og um eitt
skeið í stjórn A.S.Í. Á síðari árum vann hann ótrauður að málefnum
fatlaðra og lamaðra.
Jón Friðbjarnarson var grannvaxinn meðalmaður á velli, liðlegur í
hreyfingum og léttur á fótinn, grannleitur, geðþekkur á svip,
fríðleiksmaður í sjón. Hann var greindur maður, vel að sér um margt
og viðræðugóður, frábærlega gestrisinn sem og bæði þau hjón. Honum
var í brjóst lagin einlæg samúð með öllum þeim, sem ipinni máttar
voru, vinsæll maður, hjartahlýr og barngóður, svo að börn öll hændust
að honum, trúleiksmaður einstakur og hverju starfi vel borgið, því er
honum var falið.
Kjartan Haraldsson, bifreiðastjóri á Sauðárkróki, lést 22. október
1975.
Hann var fæddur á Frostastöðum í Blönduhlíð 18. september 1928,
sonur Haralds bónda þar,nú áBakka íViðvíkursveit, Jóhannessonar
bónda í Grundarkoti í Blönduhlíð, Bjarnasonar bónda í Borgargerði á
Norðurárdal, Bjartmarssonar (sjá þátt um Jóhannes í Glóðafeyki
1972, 13. h. bls. 65) og konu hans Önnu Bergsdóttur bónda á Hofsá í
Svarfaðardal.
Kjartan óx upp með foreldrum sínum, fyrst á Frostastöðum fram
um fermingaraldur og síðan á Unastöðum í Kolbeinsdal. Hann
stundaði nám við héraðsskólann á Laugarvatni veturinn 1947 - 1948,
sótti námskeið í meðferð vinnuvéla, stundaði vélavinnu við