Glóðafeykir - 01.04.1984, Blaðsíða 11
GLÓÐAFEYKIR
11
leiddi talið að þessu.
„Ég á nóga peninga,” sagði gamla konan, „kaupfélagið sér um það!”
„Kaupfélagið” át ég eftir skilningslaus. „Já, kaupfélagið,” endurtók
gamla konan og hækkaði röddina. „Það er nýbúið að borga mér út
stofnsjóðinn mannsins míns, og það ekki svo lítinn pening.” Af því að
ég sagði ekkert, hélt gamla konan áfram: „Þú ert svo ung góða mín, að
það er ekki von að þú vitir mikið um þessi mál. Kaupfélög eru
starfrækt á þann hátt, að verði ágóði af rekstrinum, greiða þau arð til
félagsmanna í svonefndan stofnsjóð sem geymist svo á vöxtum hjá
félaginu. Hvað stofnsjóðurinn verður hár að krónutölu fer eftir
viðskiptum viðkomandi félagsmanns við kaupfélagið, eftir því sem
þau eru meiri, því hærri stofnsjóður. Við höfum alltaf verslað við
kaupfélagið hérna og mikið lengst af því fjölskyldan var stór.
Stofnsjóðurinn er svo borgaður út eftir settum reglum, t.d. þegar fólk
er orðið gamalt, eins og ég, þess vegna fékk ég þessa peninga núna og
þeir koma sér svo sannarlega vel. En það er eins og sumt fólk skilji
það aldrei,” bætti gamla konan við, ,,að það borgar sig alltaf að versla
við kaupfélag.” Eftir að heim kom fór ég að hugleiða það sem gamla
konan hafði verið að segja mér um rekstur kaupfélaga, til viðbótar því
litla sem ég hafði áður heyrt og lesið um sama efni.
Kaupfélag er fyrirtæki sem rekur verslun og ýmiskonar
þjónustustarfsemi eftir ástæðum, félagsmaður getur hver sá orðið sem
er búsettur á félagssvæðinu og er fjárráða. Félagið kappkostar að
útvega félagsmönnum góðar vörur með hagstæðum kjörum og einnig
að taka til sölumeðferðar framleiðsluvörur félagsmanna, efla
vöruvöndun og heilbrigða viðskiptahætti. Kaupfélag er ekki rekið í
gróðaskyni, heldur með hag fólksins fyrir augum, þar er fullkomið
lýðræðisskipulag þar sem allir hafa aðeins eitt atkvæði og þar-með
jafnan rétt án tillits til efnahags eða mannvirðinga. I kaupfélagi er
fjármagnið þjónn fólksins og óskiptanlegar eignir félagsins verða
aldrei færðar brott úr því héraði þar sem eignanna var aflað, þær koma
því fólkinu til góða á viðkomandi félagssvæði og fullyrða má að öflugt
kaupfélag er besta tryggingin fyrir farsæld einstakra byggðarlaga á
landinu. Verði hagnaður af rekstri kaupfélagsins fá félagsmenn
greiddan arð í hlutfalli við magn viðskipta, stundum beint í
viðskiptareikning, en þó oftast í svonefndan stofnsjóð, sem verður
séreign félagsmanna hjá kaupfélaginu og er þar á vöxtum, á sama hátt
og innistæða í banka. Stofnsjóðurinn er svo borgaður út eftir
ákveðnum reglum og við vissar aðstæður, t.d. við andlát, brottflutning