Glóðafeykir - 01.04.1984, Blaðsíða 40

Glóðafeykir - 01.04.1984, Blaðsíða 40
40 GLÓÐAFEYKIR Guðný Hallgrímsdóttir hreppstjóra og bónda á Fremstafelli o.v., Ólafssonar, en kona Hallgríms og móðir Kristjönu var Sigríður Jónsdóttir bónda á Veturliðastöðum, Bjarnasonar. Kona Friðfinns og móðir Trausta var Guðrún Sigurðardóttir bónda á Draflastöðum í Fnjóskadal, Þorsteinssonar frá Veisu (Illugastaðaætt). Voru þeir systrasynir, Geirfinnur Trausti og Sigurður skólastjóri á Hólum, síðar búnaðarmálastjóri. Var Trausti greindur maður og garpur mikill, Kristjana hljóðlát gæðakona. Friðbjörn ólst upp með foreldrum sínum og fyrst í Fremstafelli, þar sem þau bjuggu 1885 - 1891, þá á Hálsi í Fnjóskadal til 1893, er þau fóru búi sínu að Garði í sömu sveit og sátu þá jörð til 1905. Á / því ári fluttist fjölskyldan vestur hingað að ___ . Hólum í Hjaltadal, öll nema yngsta barnið, rp0 Sigurður, sem var í fóstri hjá frænda sínum, Sigurði hreppstjóra á Halldórsstöðum í Kinn. Tók Trausti við skólabúinu á Hólum. Mun það hefa verið að ráði Sigurðar frænda hans, er skipaður hafði verið skólastjóri Æm bændaskólans 1902. Rak Trausti stórbú á Friðbjörn Traustason staðnum til 1914, sleppti þá búi, fór árið eftir að Hofi, næsta bæ, bjó þar til 1920, er Friðbjörn tók við búi. Trausti lést 11/7 1921 (f. 18/5 1862), en Kristjana, kona hans, dó 18/12 1925 (f. 2/1 1859). Friðbjörn vann að búi foreldra sinna á Hólum og síðan á Hofi. Bjó á Hofi 1920 - 1930, brá þá búi, hvarf aftur að Hólum, átti þar heima alla stund síðan og löngum við Hóla kenndur, varð snemma samgróinn staðnum og undi naumast annars staðar stundinni lengur. Friðbjörn lauk búfræðiprófi frá Hólaskóla 1907. Naut eigi frekari skólagöngu, en varð eigi að síður vel að sér um margt, enda fjölgefinn og starfhæfur ágætlega, óvenju vandvirkur og skyldurækinn við hvaðeina, sem við fékkst og á hvaða sviði sem var, hvort heldur var skepnuhirðing eða skjalasýsl, einstakur snyrtimaður um allan frágang, skrifaði skýra og fagra rithönd allt til efsta dags. Það var því eigi kyn þótt til þess væri kjörinn af sveitungum og öðrum að inna af hendi margvísleg störf í almanna þágu. Hann var hreppstjóri og sýslunefndarmaður, svo sem verið hafði faðir hans, - hreppstjóri frá 1918 - 1930, er hann sagði af sér, sýslunefndarmaður 1932 - 1946 og jafnframt endurskoðandi sýslureikninga, hreppsnefndarmaður og
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Glóðafeykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.