Glóðafeykir - 01.04.1984, Blaðsíða 37
GLÓÐAFEYKIR
37
Fallnir félagar
Ingvar Jónsson, bóndi,á Hóli í Tungusveit lést 13.nóv. 1974. Hann var
fæddur að Hóli 27. september 1894 og átti þar heima alla ævi.
Foreldrar: Jón bóndi á Hóli Jónsson, bónda á Irafelli í Svartárdal,
Ásmundssonar bónda þar, Ásmundssonar,
og kona hans Margrét Björnsdóttir síðast
bónda í Kolgröf á Efribyggð, Gottskálks-
sonar, en kona Björns í Kolgröfvar Jóhanna
Jóhannsdóttir.
Ingvar óx upp með foreldrum sínum þar á
Hóli. Var faðir hans traustur höldur og
forsjáll bóndi, safnaði fyrningum, þótt Hóll
teldist eigi heyskaparjörð í þá daga, og
hjálpaði nágrönnum sínum um hey, er
harðindi surfu að. Hans missti við snemma
árs 1911, en ekkjan bjó áfram með aðstoð
sonar þeirra hjóna til 1917. Haustið 1911 hóf
Ingvar nám í Hvítárbakkaskóla og var þar í tvo vetur. Nýttist honum námið
vel og reyndist honum farsælt vegarnesti á langri leið. Árið 1916 fór
hann að búa á Hóli, tók alfarið við föðurleifð sinni á næsta ári og bjó
þar samfleytt alla stund síðan, þótt sonur hans væri fyrir nokkru
tekinn við mestum umsvifum. Ingvar var ágætur bóndi, svo sem verið
hafði faðir hans og þeir ættmenn fleiri, kostaði kapps um að fara vel
með allar skepnur og hafa af þeim sem drýgstan arð. Hann var
umbótamaður og ræktunar, reisti öll hús af grunni, færði út hið
ræktaða land jarðarinnar meira og minna á hverju ári að kalla, studdi
heilum huga hvers konar félagslega viðleitni til umbóta í búnaði.
Ingvar var hlédrægur maður og vatt sér undan að gegna opinberum
störfum sem frekast mátti, enda þótt mörgum væri betur fallinn til
þeirra hluta. Hann komst þó ekki með öllu hjá að taka að sér
trúnaðarstörf, var t.a.m. formaður Búnaðarfélags Lýtingsstaðahrepp
um árabil, deildarstjóri Lýtingsstaðadeildar Kaupfélags Skagfirðinga
nokkur ár, fulltrúi á aðalfundum félagsins um langt skeið.
Ingvar Jónsson var tvíkvæntur. Árið 1917 kvæntist hann Mörtu
Helgadóttur bónda á Ánastöðum Björnssonar og seinni konu hans
Irtgvar Jónsson