Glóðafeykir - 01.04.1984, Blaðsíða 15
GLÓÐAFEYKIR
15
mikið að uppbyggingu og framförum í landinu eins og kaupfélögin. í
kaupfélögunum er réttur allra jafn, það er að hver maður hefur eitt
atkvæði án tillits til þess hvort hann er fátækur eða ríkur.
Skilyrði fyrir inngöngu eru aðeins þau að viðkomandi hafi náð 15
ára aldri. Allir félagsmenn hafa rétt til að sitja fundi félagsins sem
haldnir eru árlega í hverri deild, en félagssvæðinu er skipt í deildir og er
oftast hvert sveitarfélag ein deild. Á deildarfundina kemur
kaupfélagsstjórinn og segir frá rekstri og starfsemi félagsins og þar
gefst félagsmönnum kostur á að láta í ljós álit sitt og hugmyndir um
störf félagsins. Á deildarfundum eru einnig valdir fulltrúar til að sitja
aðalfundi félagsins og þar eru líka valdir deildarstjórar sem eru
nokkurskonar tengiliðir í starfseminni, til dæmis í sveitum hafa
deildarstjórarnir það með höndum að skipuleggja sauðfjárslátrun á
haustin, hverjir eiga að slátra hvern dag, hvað mikið í einu og svo
framvegis.
Mörg kaupfélög hafa látið menningamál til sín taka og hafa í því
augnamiði stofnað ýmsa sjóði er veita styrki til ýmissa félaga og
einstaklinga er vinna að þeim málum. í sumum kaupfélögum eru
innlánsdeildir þar sem fólk getur ávaxtað sparifé sitt með sömu
kjörum og í bönkum. Margt hefur breyst síðan nokkrir bændur komu
saman austur í Þingeyjasýslu og stofnuðu fyrsta kaupfélagið. Þá hefur
það sannast að samtakamáttur hinna mörgu er það, sem best dugar
þegar takast þarf á við erfiðleikana. Það er eins og með mennina sem
voru að velta steininum, einn gat ekki neitt en þegar allir lögðust á eitt
gekk verkið vel.
Þannig hafa kaupfélögin starfað og þannig ætluðust stofnendur
þeirra til að þau störfuðu til hagsbóta fyrir alla landsmenn.