Glóðafeykir - 01.04.1984, Side 10
10
GLÓÐAFEYKIR
Hvað er kaupfélag?
Á vetri s.l. efndi Kaupfélag Skagfirðinga til ritgerðasamkeppni
meðal unglinga í héraðinu um efnið „Hvað er kaupfélag?” Alls bárust
tólf ritgerðir og voru verðlaun veitt þremur þeim er bestar þóttu.
Fyrstu verðlaun hlaut íris Fjólmundsdóttir, Hofsósi, vöruúttekt
fyrir kr. 5.000. Önnur verðlaun komu í hlut Guðrúnar Árnadóttur,
Eyhildarholti, vöruúttekt fyrir kr. 3.000 og þriðju verðlaun fékk
Guðrún Björnsdóttir, Ketu, vöruúttekt fyrir kr. 2.000. Auka-
viðurkenningu hlutu þær Edda Traustadóttir og Hjördís Edda
Broddadóttir.
Dómnefnd skipuðu þeir sr. Hjálmar Jónsson, Guðmann Tobíasson,
deildarstjóri og Hjalti Pálsson, bókavörður.
Glóðafeykir birtir nú þrjár þessara ritgerða - þær er verðlaun hlutu.
1. verðlaun
íris Björg Fjólmundsdóttir
Ég hafði ætlað mér að hitta vinkonu mina en hún var þá ekki heima
þegar til kom, ég sneri frá vonsvikin, óráðin í hvert halda skyldi,
bleytuslabb var á götunum en veður milt, enda komið fram í apríl.
Allt í einu datt mér í hug að líta inn til gömlu konunnar á Horninu,
vissi af reynslunni að þar var gott að koma, gestrisni og heimilishlýju
húsráðanda þekktu allir. Stuttu seinna var ég komin inn í stofu hjá
gömlu konunni, þar var allt í sniðum, fágað og hreint og góðgæti á
borðum.
Sjálf var gamla konan furðu hress og ánægð að sjá og virtist ekki
kvíða komandi dögum, ég vissi þó að hún var orðin gömul og hafði
auk þess misst manninn sinn fyrir nokkrum mánuðum. Gamla konan
sýndi mér margt fallegt sem hún átti, undraðist ég hvað hún gat keypt,
þar sem ég vissi ekki til að hún hefði aðrar tekjur en sín ellilaun, og ég