Glóðafeykir - 01.04.1984, Page 38

Glóðafeykir - 01.04.1984, Page 38
38 GLÓÐAFEYKIR Margrétar Sigurðardóttur, en missti hana skömmu eftir bamsburð í septembermánuði það hið sama ár. Hafði hún fætt tvíbura, stúlkubam, er dó stuttu eftir fæðingu og dreng, er skírður var Jón, komst upp en dó aðeins 24 ára gamall, mikill efnismaður og hafði þá lokið búfræðiprófi frá Hólaskóla. Aftur kvæntist Ingvar árið 1929 og gekk þá að eiga Ragnheiði Pálsdóttur síðast bónda á Selá á Skaga, Jónssonar hreppstj. á Hóli í Sæmundarhlíð, Jónssonar, og konu hans Sigríðar Magnúsdóttur hreppstj. á Halldórsstöðum í Laxárdal í Þingeyjarþingi, Asmunds- sonar. Lifir hún mann sinn. Börn þeirra eru 4: Rósmundur, bóndi á Hóli, Marta, húsfreyja á Flateyri vestur, Björg Pálína, húsfreyja í Kaupmannahöfn og Margrét húsfreyja á Mælifellsá ytri á Efribyggð. Ingvar á Hóli var meir en meðalmaður á vöxt og svaraði sér vel, rauðkhirkinn á hár, rjóður í andliti, fullur að vöngum, hýr á svip, hlýr í viðmóti. Hann var greindarmaður og víða heima, gestrisinn og góður heim að sækja, prúður maður í háttum, orðstilltur og orðvar, svo að frá bar. Hann var mikill mannkostamaður, enda vinsæll og vammlaus á alla grein. Gísli Ragnar Magnússon, bóndi á Bergstöðum í Borgarsveit, lést 2. desember 1974. Hann var fæddur í Axlarhaga í Blönduhlíð 30. maí 1896. Foreldrar: Magnús bóndi í Torfmýri í Blönduhlið Hannesson, síðast og lengst bónda í Axlarhaga, Þorlákssonar bónda á Ystu- Grund, Jónssonar bónda á Hóli í Tungu- sveit, Magnússonar, og kona hans Jakobína Gísladóttir hreppstjóra og bónda á Herjólfs- stöðum á Laxárdal ytra o.v., Jónssonar bónda á Fjalli í Kolbeinsdal, Pálssonar, og kona hans Ragnheiður Eggertsdóttir bónda á Skefilsstöðum. Var Ragnheiður alsystir Jóhönnu, konu Jóns Þorsteinssonar á Sauðárkróki, (sjá nánar í þætti Jóns í Glóðafeyki 1969, 9. h. bls 52). Þeir voru bræðrungar, Magnús faðir Ragnars og Magnús hreppstjóri Gíslason á Frostastöðum (sjá 5. h. Glóðafeykis bls. 29 og ennfremur þátt Stefáns í Djúpadal hér á eftir. Ragnar ólst upp með foreldrum sínum í Torfmýri, en skömmu eftir Gísli Ragnar Magnússon

x

Glóðafeykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.