Glóðafeykir - 01.04.1984, Side 68

Glóðafeykir - 01.04.1984, Side 68
68 GLÓÐAFEYKIR Svo einkennilega vildi til, að Magnús var að ganga til fundar við stjórn Héraðsskjalasafnsins að kvöldi dags til þess að ræða við hana um tilhögun vísnakeppninnar, er hann hneig niður örendur, rétt kominn á leiðarenda. Magnús Bjarnason var í lægrapieðallagi á vöxt,hvatlegur í sporiog gekk jafnan hratt; fríðleiksmaður í sjón, svipurinn ávallt hýr og glaðlegur, prúður maður í hvívetna og einstakt snyrtimenni. Hann fylgdist af áhuga með öllum félagsmálum og stefnum, er hátt bar hverju sinni. Hann var greindur maður og vel að sér á marga grein, einkum í sögu og þjóðlegum fróðleik, merkur maður og hinn besti drengur. Jón Björnsson, verkstjóri á Sauðárkróki, varð bráðkvaddur 13. nóvember 1975. Hann var fæddur á Ytri-Húsabakka í Seyluhreppi 9. janúar 1916, sonur Björns bónda þar, Pálmasonar bónda s.st., Björnssonar bónda og hreppsstjóra að Asgeirsbrekku í Við- víkursveit, Pálmasonar, og konu hans Sigurbjargar Jónsdóttur Ósmanns hins þjóðkunna ferjumanns í Utanverðunesi, Magnússonar bónda þar, Arnasonar, og konu hans Sigurbjargar Guðmundsdóttur. Jón Ósmann, faðir Sigurbjargar á Húsa- bakka, drukknaði í Vesturósi Héraðsvatna 24. apríl 1914, en faðir Ingibjargar, konu Pálma á Húsabakka og tengdamóður Sigurbjargar, Grímur bóndi Grímsson á Egg í Hegranesi, drukknaði í Héraðsvötnum - Vesturvötnum - skammt fyrir utan Ytri- Húsabakka, 29. júlí 1972; heitir það síðan Grímsáll. Jón missti foreldra sína er hann var innan við fermingaraldur, móður sína 1927 og föður sinn 1929. Fór hann þá til systkinanna í Utanverðunesi, Magnúsar og Sigurbjargar, en þau systkin og Sigurbjörg á Húsabakka, móðir Jóns, voru systkinabörn. I Nesi var hann viðurloða til fullorðinsára,en vann þó einnig annars staðar, er nær dró tvítugsaldri, bæði á Sauðárkróki og Siglufirði. Heima í Nesi stundaði hann allmjög veiðiskap, bæði á sjó og landi, og var hin mesta aflakló, bæði á fugl og fisk. Helst með honum rík hneigð til veiðimennsku alls konar alla ævi. Snemma bar á því, að Jón væri

x

Glóðafeykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.