Sagnir - 01.06.1998, Page 5

Sagnir - 01.06.1998, Page 5
„Á þessum árum, til ársins 1699, þegar höfundur samdi rit sitt, hafði fátækt og eymd þjáð landsfólkið í sífellt ríkara mæli, svo að hörmungar fyrri ára voru taldar leikur einn hjá því, sem yfir dundi þetta ár“.11 Og víst er að ástandið á 18. öldinni var ekki til að auka mönnum bjartsýni. Ritið fjallar „um þau málefni, er snerta endurbætur á búskap og framfarir landsins“.12 Í innganginum er greint frá því hversu landgæðum hafi hrakað á liðnum öldum og vitnað drjúgum í fornsögurnar því til stuðnings.13 Auk þess er lögð áhersla á hina miklu deyfð og sljóleika sem einkenndi allt mannlíf og „höfundurinn telur þetta skaðlega framtaksleysi vera þjóðarógæfu og hana ekki litla.“14 Orsakir þessa ástands eru einkum taldar tvær: Vankunnátta forfeðranna í að koma skipan á samfélagið15 og almennt agaleysi í bústjórn og uppeldi.16 Ef við lítum fyrst á seinni orsökina, þá er hún einmitt dæmigerð fyrir þá sem trúa því að allt þróist sífellt á versta veg. Uppreisnargjarn æskulýður og þvermóðskufull vinnuhjú hafa nánast á öllum tímum sögunnar vaðið uppi, ærukærum (og íhaldssömum) foreldrum og embættismönnum til eilífs hugarangurs. Fyrri orsökin er athyglisverðari. Það er ljóst að þótt landgæðin hér til forna hafi gefið höfundum glýju í augun, þá er því ekki svo farið með þjóðveldið: Það virðist því svo, að elstu forfeður vorir hafi ekki hugsað um velferð niðja sinna [...] og öll viðleitni þeirra beinst að því að geta lifað sjálfir, án nokkurs yfirboðara og farið sínu fram gagnvart hverjum sem var.17 Þó að hér verði aftur aðeins vart þeirrar þversagnar sem einkennir skrif Arngríms í Crymogæu, tóku höfundar Um viðreisn Íslands mun eindregnari afstöðu með konungsvaldi og gegn hverskyns „sjálfræði“ almúgans en hann. Einmitt í þeirri afstöðu má tengja saman þessar tvær meginorsakir fyrir hörmungarástandi landsins. Það er því hægt að álykta sem svo að þótt fortíðardýrkun sé lítt áberandi í ritinu þá fer þeim mun meira fyrir samtímaósómanum. Ef við lítum nú á hina bókina sem Jón gaf út um þetta leyti, Ferðabók Eggerts og Bjarna eftir Eggert Ólafsson, þá koma einnig skýrt fram í henni áhyggjur yfir bágu ástandi samfélagsins. En höfundur taldi fólksfækkun til sveita og hnignun land- búnaðar helstu orsakir.18 Auk þess agnúaðist hann út í fiskveiðar19 og taldi fólk til sveita jafnan líta betur út og tala hreinna mál en það sem við sjávar- síðuna byggi.20 Hér var sleginn tónn í þjóðmálaumræðu landsins sem átti eftir að hljóma fram á þennan dag. Hið heilbrigða sveitalíf fortíðarinnar var sett fram sem andstæða hins spillta sam- tímalífernis við sjávarsíðuna. Eða eins og Eggert segir: „Því verður ekki móti mælt, að fyrrum stunduðu íslenskir bændur hið rétta starf sitt.“21 HALLÆRISTAL HANNESAR BISKUPS Eggert Ólafsson og Jón Eiríksson teljast báðir upplýsingar- menn. Það gerir líka Hannes Finnsson biskup sem ritaði bók þá er ber hinn eftirminnilega titil Mannfækkun af hallærum á síðasta áratugi 18. aldar. Þó þeir fyrrnefndu dragi vissulega upp ófagra mynd af samtímanum gengur Hannes þó skrefi lengra því hann vill segja fortíðardýrkuninni stríð á hendur: Til að mínka víl hjá þeim, sem meina, að aldregi hafi í fyrndinni verið svo harðt sem í þeirra tíð, eður að þessara tíða harðindi séu svo stór, að landið geti aldrei komizt aptur til batnaðar [...] vil eg fátt eitt minnast á þau markverðustu hallæri hér á landi.22 Svo ritaði hann í upphafi verksins og í framhaldinu fór hann í gegnum sögu landsins frá því byggð hófst og sýndi lesendum fram á að hallæri hafði alltaf gengið yfir Ísland en „ekkert land í Norðurálfunni er svo fljótt að fjölga á ný manneskjum og bústofni sem það, og er því eigi óbyggjandi.“23 En þó að raunsæi öðru fremur einkenni skrif biskups, lét hann hinar fornu heimildir stýra mati sínu er hann segir að „forfeður vorir, enir fyrstu innbyggjarar landsins, tóku réttari stefnu en þeir síðari allt til vorra daga, heldur að mæta örbirgðinni og varna henni að falla en að bíða hennar“.24 Varðandi samtímaósómann þá agnúaðist Hannes, rétt eins og Eggert, út í sjávarsíðuna25 og hann bergmálaði Jón Eiríksson er hann sagði: „Af langviðrum og lagaleysi mun land vort eyðast, er spakmæli.“26 Að auki hafði hann langa tölu um skaðsemi vergangs sem hann taldi orðið stjórnlítið á seinni öldum.27 Að ofansögðu er því ljóst að þótt Mannfækkun af hallærum sé í heildina litið raunsætt rit, má finna í því gamalkunnar hugmyndir um versnandi heim. Eitt af því sem einkennir þessi þrjú rit upplýsingar- mannanna er minni fortíðardýrkun en fram kemur hjá Arngrími í Crymogæu, meiri áhersla er lögð á samtíma- ósómann, enda ritaðar á hátindi einveldistímans. Þetta má einnig tengja við versnandi árferði. Ef við lítum til þess að fortíðardýrkunin óx til muna undir lok 19. aldar er hagur þjóðar vænkaðist, getum við þá ekki ályktað sem svo að í 4 Valdimar Stefánsson SAGNIR ‘ 98 Varðandi samtíma- ósómann þá agnúaðist Hannes, rétt eins og Eggert, út í sjá- varsíðuna Fiskimenn við Hafnarfjörð kveinka sér yfir ófrjálsu einlífi áður en þeir halda út á miðin. Frá 1772.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105

x

Sagnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.