Sagnir - 01.06.1998, Qupperneq 46
SAGNIR ‘ 9845
íslenskra króna að láni hjá
bönkunum tveimur. Lánið
var til 25 ára og voru nafn-
vextir þess 4,5%, en í raun
nokkuð hærri þar eð lánið var
veitt með 2,5% afföllum.
Skyldi lánið vera afborgunar-
laust í þrjú ár, á meðan
virkjunin væri reist og starf-
semi hennar ýtt úr vör en
síðan greitt niður með jöfnum
greiðslum misserislega næstu
22 árin. Bærinn veitti veð í
Rafmagnsveitunni og Sogs-
virkjuninni sjálfri auk þess sem ríkissjóður ábyrgðist skilvísar
endurgreiðslur. Vakti lánsveitingin töluverða athygli í
Svíþjóð og slógu sænsk blöð jafnvel upp fréttum af henni á
forsíðu.59
Íslensk blöð höfðu ekki síður mikinn áhuga á málinu
og sló eitt helsta málgagn borgarstjóra, Ísafold og Vörður, því
upp að lánskjörin væru með eindæmum góð og mun betri en
Íslendingarnir höfðu látið sig dreyma um.60 Þetta mun þó
ofmælt, ef marka má þær hugmyndir sem Jón Þorláksson setti
sjálfur fram í viðræðum sínum við breska fjármálamenn fyrr
á árinu, en þá stakk hann einmitt upp á 4,5% vöxtum til að
minnsta kosti tuttugu ára, afborgunarlaust í þrjú til fimm ár.61
Sjálfur taldi Jón Þorláksson skýringuna á hinum
farsælu málalokum í Stokkhólmi þá að sænskir bankar hafi
hreinlega verið svo yfirfullir af peningum að til hreinna vand-
ræða hafi horft.62 Mun það ekki hafa verið fjarri sanni, enda
gætti enn áhrifa heimskreppunnar í fjármálakerfi veraldar-
innar, þar sem flestar þjóðir voru að draga saman seglin og því
fremur skortur á fjárfestingarmöguleikum en fjármagni.
Íslendingar höfðu aftur á móti þá sérstöðu að keppast um
erlent lánsfé til framkvæmda.
Eitt af vandamálunum sem
fylgdi hinni miklu fjármuna-
söfnum sænsku bankanna, voru
lágir vextir sem af henni leiddu.
Innlánsvextir í sparisjóðum voru
ekki nema 2% á ári og var þó ekki
tekið nema við smáum upphæðum á
slíka reikninga. Vextir á hlaupa-
reikningum voru hins vegar enn lægri,
eða rétt um 0,5%.63 Var því ekki að
undra þótt sænskir fjármálamenn
hefðu augun opin fyrir fjárfestingar-
kostum á borð við Sogsvirkjun.
Ljósafossstöð var tekin í notkun
27. október 1937 og var þá langstærsta
einstaka framkvæmd sem Íslendingar
höfðu ráðist í. Kostnaðaráætlun
verksins stóðst í öllum meginatriðum,
en vaxta- og lánakostnaður reyndist
aðeins hærri en til stóð, meðal annars
vegna þess að vextir af innistæðufé á virkjunartímanum í
dönskum og íslenskum bönkum reyndust lægri en áætlað
hafði verið. Reyndist nauðsynlegt að verja öllu láninu til
virkjunarframkvæmdanna, en til hafði staðið að nota hluta
þess til að greiða niður óhagstæðari lán sem tekin höfðu verið
vegna stækkunar Elliðaárstöðvar á árinu 1933, en nauðsynlegt
hafði verið að ráðast í þá stækkun til að brúa bilið áður en unnt
var að virkja í Soginu.64
Þegar á hólminn var komið reyndust ákveðnir þættir í
rekstraráætlunum virkjunarinnar ótraustir. Ekki hafði verið
reiknað með að verð á raforku til neytenda lækkaði eftir að
stöðin kæmist í notkun, en vegna pólitísks þrýstings og til að
auka markaðshlutdeild rafmagnsins var gefin út ný og lægri
gjaldskrá, þar sem stórum orkunotendum, s.s. veitingastöðum
og mötuneytum voru tryggð sérstaklega góð kjör. Sú gjald-
skrá var hins vegar afnumin í júní 1939, en þá um vorið hafði
gengi krónunnar verið fellt með þeim afleiðingum að skuldir
Sogsvirkjunar hækkuðu til muna.65
Viðbúið er að rekstur virkjunarinnar hefði lent í
verulegum ógöngum, ef ekki hefði komið til aðstoð
reykvískra húsmæðra. Rafmagnsveita Reykja-
víkur, Raftækjaeinkasala ríkisins og fyrir-
tækið Rafha í Hafnarfirði stóðu fyrir söluá-
taki á Rafhaeldavélum og bauðst
viðskiptavinum Rafmagnsveitunnar að
kaupa þær með sérstökum afborgunar-
skilmálum. Var niðurstaðan svo góð, að á
Íslenskt fullveldi í 80 ár
Sogsvirkjun
flestar þjóðir voru að draga
saman seglin og því fremur
skortur á fjárfestingarmöguleikum en
fjármagni. Íslendingar höfðu aftur á
móti þá sérstöðu að keppast um
erlent lánsfé til framkvæmda.
Glaðbeittir vinnumenn við segulhjól í rafal.
Bein útsending frá skiptistöðinni í Elliðaárdal þar sem verið er að hleypa rafmagni á bæjarkerfið þann 25. október 1937. Frá vinstri:
Haraldur Guðmundsson atvinnumálaráðherra, Steingrímur Jónsson rafmagnsstjóri, Pétur Halldórsson borgarstjóri og
Guðmundur Ásbjörnsson forseti bæjarstjórnar.