Sagnir - 01.06.1998, Blaðsíða 79

Sagnir - 01.06.1998, Blaðsíða 79
Aðferðir II voru aldrei óskaaðferð mín til þess að þjálfa sagnfræðilega framsetningu. Ég hef löngum verið þeirrar skoðunar að þessa og aðra verkkunnáttu í sagnfræði eigi sem mest að kenna í námskeiðum sem einnig snúast um ákveðin söguleg efni, þar á meðal í vinnu við lokaritgerðir til BA- og MA-prófs. Áður en Aðferðir II voru teknar upp setti ég fram hugmynd um að fella nærfellt allt aðferða- nám í sagnfræði inn í kjarna- námskeið í mannkyns- og Íslandssögu, þótt framsetning fengi raunar helst til lítið rúm í dæmi sem ég setti upp um framkvæmdina.6 En enginn hefur tekið undir þær tillögur ennþá, og engin ráðstöfun hefur verið gerð af hálfu sagnfræðiskorar til þess að bæta fram- setningarhlið námsins upp þann skaða sem hún hlaut þegar Aðferðir II voru lagðar niður. Með þeirri ráðstöfun, eins og hún var rökstudd á sínum tíma, afneitaði skorin því hlutverki sínu að kenna sagnfræðilega framsetningu, þótt auðvitað séu kennarar sífellt að gera það í ritgerðarleiðbeiningum sínum. Þess vegna byrja ég þessa grein á síðbúnum minningarorðum um Aðferðir II, ekki af því að ég vildi endurvekja það námskeið óbreytt. HVAð ER FRAMSETNING? Framsetning, miðlun og stíll eru loðin hugtök yfir nokkurn veginn það sama. Stíll er óþægilega tengt listrænni framsetn- ingu tungumáls til að henta því sem ég vil segja hér. Miðlun nær í rauninni yfir það sama og framsetning, en orðið beinir athygli meira að viðtakendum en ég kæri mig um í þetta sinn. Í því felst nánast sú hugmynd að sagan sé til áður en miðlar- inn kemur og miðlar henni, líkt og fjósamaður fer í hlöðu og sækir hey til að miðla kúnum. En í rauninni er ekki hægt að búa til sagnfræðilega þekkingu án þess að sníða henni um leið einhvern miðlunarbúning, ekki fremur en hægt er að byggja hús án þess að það hafi eitthvert form. Ég kýs orðið fram- setningu, af því að það er einna víðast að merkingu og nær einfaldlega yfir aðferð til að setja efni fram; nám í fram- setningu er þá nám í að velja og læra aðferðir. Þá geri ég ráð fyrir að hægt sé að velja á milli aðferða til að setja eitt og sama efnisatriði fram. Deilt er um hvort því sé þannig varið; umræðan um svokallaðan póstmódernisma í sagnfræði snýst í grundvallar- atriðum um þetta. Póst- módernistar véfengja að texti geti endurspeglað ytri veruleika; hann fjalli í rauninni aldrei um annað en sjálfan sig, og þá hlýtur efni hans að breytast um leið og framsetningu er breytt. Við getum sagt að þá sé litið á sagnfræðilegan fróðleik eins og lit; það er engin leið að lita hann án þess að hann breytist við það í annan lit.7 Þeir sem aftur á móti halda því fram að hægt sé að lýsa sögulegum ytri veruleika eins og hann var eða er, þeir komast varla hjá því að gera ráð fyrir að hugsanlegar séu fleiri ólíkar en sannar lýsingar á sama veruleikanum, og þá höfum við ólíkar framsetningar sama efnis. Í þessari grein kýs ég að vera and- póstmódernisti. Þar með er ég ekki að andmæla þeim sannleikskjarna sem póstmódernistar halda fram: texti um hest verður vissulega aldrei eins og hest- ur, enda væri þá erfitt að rúma hann í bókum og tímaritum. Varla mun vera hægt að finna nokkur tvö orð sem tákna hest og hafa nákvæmlega sömu merkingu: fákur, gæðingur, jór, hross, klár, bikkja. Þannig breytist merk- ing texta við minnstu orðalagsbreytingu. Hins vegar er mannkynið komið með langa reynslu af því að nota orð um hluti og hugmyndir og láta það ekki slá sig út af laginu þótt þau gefi ófullkomna mynd af merkingarmiðum sínum. Fræðigreinin sagnfræði byggist á þessari leikni, eins og önnur orðræða manna. Þetta er bara hluti af þeim vanda sem sagn- fræðingar verða alltaf að lifa með. Þess vegna held ég að það sé fræðilega réttlætanlegt að ræða um framsetningu eins og hún sé sérstakur hluti af iðju sagnfræðinga. INNIHALD NÁMSGREINARINNAR SAGN- FRÆðI Hér er ekki staður til að reifa það margrædda heimspekilega viðfangsefni, hvað fræðigreinin sagnfræði sé. Hins vegar er ástæða til að taka svolítinn útúrdúr og spyrja almennt hvað felist í fagkunnáttu sagnfræðinga. Hvað er það sem sagn- fræðingar kunna og þurfa að kunna, öðru fólki fremur? Ég kýs að sjá kunnáttu þeirra snúna saman úr fimm þáttum, en auð- vitað er sú greining álitamál. 1. Þekking er nauðsynleg, bæði á ein- stökum atriðum og yfir- gripsmiklum kenn- ingum um einkenni tímabila og sam- hengi sögulegra fyrirbæra. Það er að vísu of algengur mis- skilningur að sagnfræðingar séu einkum þeir sem vita allt um það sem var og gerðist í gamla daga. Störf sagn- fræðinga felast að miklu leyti í því að afla þekkingar til þess að beita henni í einhverju skyni. Blaðamaður sem er sett- SAGNIR ‘ 98 78 Er hægt að kenna sagnfræðilega framsetningu? Blaðamaður sem er settur í að skrifa fréttaskýringu um fornleifafund við Aðalstræti í Reykjavík, af því að hann hefur BA-próf í sagnfræði, hann fer auðvitað í fræðibækur og frumheimildir Þar með er ég ekki að and- mæla þeim sannleikskjarna sem póstmódernistar halda fram: texti um hest verður vissulega aldrei eins og hestur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105

x

Sagnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.