Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.08.2011, Blaðsíða 61

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.08.2011, Blaðsíða 61
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 4. tbl. 87. árg. 2011 57 Ritrýnd fræðigrein SCIENTIFIC PAPER Fjölþjóðlegu niðurstöðurnar sýndu að óheilbrigð húð var algengari hjá garnastómaþegum (66%) og DET stig þeirra fleiri en ristilstómaþega (p=0,004). Tíðni húðvandamála var 57% hjá einstaklingum með ristilstóma og 61% hjá einstaklingum með þvagstóma. Einstaklingar með tímabundið stóma voru með fleiri DET stig en einstaklingar með varanlegt stóma (p=0,012). Ástand húðar versnaði eftir því sem lengra var liðið frá aðgerð (p=0,021), að meðaltali 0,02 DET stig fyrir hvert ár og með hækkandi aldri, (p=0,025), að meðaltali 0,01 DET stig fyrir hvert ár. Þeir sem notuðu eins hluta stómabúnað (p=0,024) voru með lægri DET stig en þeir sem notuðu tveggja hluta stómabúnað og þeir sem notuðu flata plötu voru með lægri DET stig en þeir sem notuðu kúpta plötu (p=0,002). Sá þáttur sem hafði hvað mesta fylgni við ástand húðar var leki hægða undir plötu (p<0,0001). Einstaklingar sem sögðust alltaf eða oft upplifa leka voru með hærri DET stig en þeir sem sögðust aldrei eða sjaldan upplifa leka. (Tafla 2). Ástand húðar reyndist betra í viðtali 2 (meðaltal DET stiga 1,6±2,1), (p<0,0001). Tengsl voru milli fleiri DET stiga í viðtali 1 og betra ástands húðar í viðtali 2 (p<0,0001). Fyrir hverja hækkun á DET stigum í viðtali 1, lækkuðu stigin um 0,55 í viðtali 2. Eftir því sem meiri munur var á lekavandamálum milli viðtala batnaði ástand húðar meira (p<0,0001). Ástand húðar batnaði mest (DET ­2,3) hjá þeim sem skiptu úr flatri plötu í kúpta. Eftir því sem lengra var liðið frá aðgerð var minni bati á ástandi húðar milli viðtala (­0,01 DET fyrir hvert ár frá aðgerð). Af þeim stómaþegum sem greindir voru með óheilbrigða húð í viðtali 1, töldu 49% íslenskra þátttakenda og 47% allra þátttakenda sig ekki eiga við húðvandamál að stríða. Eftir því sem ástand húðar var alvarlegra jukust líkur á að þátttakendur teldu sig eiga við húðvandamál að etja. Helmingur þátttakenda sem höfðu DET=4 töldu sig hafa húðvandamál og 70% þeirra sem höfðu DET=7. Í hópi þátttakenda með alvarleg húðvandamál voru 88% meðvitaðir um að ástand húðar væri ekki eðlilegt. Lífsgæði Í fyrsta viðtali var meðaltal Stóma QoL stiga fyrir alla þátttakendur 58,1 (±10,2, spönn 11,5­89,0). Karlar höfðu hærra meðaltal 59,6) en konur (56,6), (p<0,001) og Stóma QoL stigunum fjölgaði um 0,05 fyrir hvert aldurs ár (p=0,0004). Eftir því sem lengra var liðið frá aðgerð mældist Stóma QoL stigin fleiri, 0,09 stig fyrir hvert ár frá aðgerð (p=0,002). Ekki reyndist munur á Stóma QoL stigum eftir tegund stóma eða hvort um tímabundið eða varanlegt stóma var að ræða. Hjá íslenskum þátttakendum voru meðaltal Stóma QoL stiga í fyrsta viðtali 63,1 (±8,6, spönn 42,5­82,8). Meðaltal lífsgæða stiga hvers þáttar í Stóma QoL spurningalistanum fyrir íslenska þátttakendur, skipt eftir tegund stóma, má sjá á mynd 2. Tafla 2. Áhrif leka undir plötu, á ástand húðar og lífsgæði (viðtal 1). Leka stig Tíðni leka (%) Meðaltal DET-stiga Meðaltal QoL-stiga Alltaf 4 3,63 52,6 Oft 15 3,8 53,6 Stundum 38 2,71 57,8 Sjaldan 30 1,88 59,5 Aldrei 13 1,73 62,5 Mynd 2. Meðaltal lífsgæðastiga fyrir hverja fullyrðingu í Stóma QoL­spurningalistanum fyrir íslenska þátttakendur, skipt eftir tegund stóma (viðtal 1). 0 0,5 1,5 2,5 3,5 Jákvæð áhrif á lífsgæði 41 2 3 Ristilstóma Garnastóma Ég verð áhyggjufullur þegar pokinn er fullur Ég hef áhyggjur af því að pokinn losni Mér finnst ég þurfa að vita hvar næsta salerni er Ég hef áhyggjur af því að pokinn lykti Ég hef áhyggjur af því að það komi hljóð frá stómanu Ég þarf að hvíla mig á daginn Stómapokinn takmarkar val á fötum sem ég get klæðst Ég er þreyttur á daginn Vegna stómans upplifi ég mig ókynþokkafulla/n Ég sef illa á nóttunni Ég hef áhyggjur af því að það skrjáfi í pokanum Ég blyggðast mín fyrir líkama minn vegna stómans Það væri erfitt fyrir mig að vera að heiman yfir nótt Það er erfitt að leyna því að ég er með stómapoka Áhyggjur af að það að ég er með stóma reynist mínum nánustu byrði Ég forðast líkamlega snertingu/nánd við vini mína Vegna stómans finnst mér erfitt að umgangast annað fólk Ég er smeykur við að hitta ókunnugt fólk Ég er einmanna þrátt fyrir að vera innan um annað fólk Áhyggjur af að fjölskyldu minni finnist vandræðalegt að vera í kringum mig
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.