Þjóðmál - 01.06.2010, Side 75
Þjóðmál SUmAR 2010 73
menn halda öllum rétti til að fá atbeina sak
sóknara til að fara yfir og ákæra, ef þurfa þykir,
lögreglumenn sem eru að reyna að hemja slíka,
ef þolanda þykir of hart á sér tekið . En þeir
borgarar sem þurfa að lúta störfum þessarar
sérstöku rannsóknarnefndar, sem þó getur beitt
þá margvíslegum þvingunarúrræðum, jafn vel
fangelsishótunum, eru fyrirfram sviptir marg
víslegum réttindum sem framantaldir brota
menn eða ætlaðir brotamenn halda að fullu .
Einhverjar skýringar hljóta að vera á þessari
sérstöku umgjörð og óvenjulegu friðhelgi,
þótt þær liggi ekki í augum uppi . Eða hvort
skyldi vera sanngjarnara, að þeir sem á fáeinum
klukkutímum þurfa að bregðast við stærstu
spurn ingum, séu eltir með smásmyglislegum
stjórn sýslusjónarmiðum, á meðan þeir sem
hafa heilt ár til að vanda sig og taka sér þann
tíma sem þeir þurfa, jafnvel lengri en lög leyfa,
séu eftir sömu lögum fast að því friðhelgir? En
hitt er augljóst, fyrst svona er í pottinn búið og
borgarar, sem sæta sérstakri athugun, og eru
um leið sviptir margvíslegum borgaralegum
réttindum gagnvart opinberri nefnd, að þá
verður sú nefnd á móti að sýna sérstaka aðgát .
Hún verður að gæta allra meðalhófsreglna af
enn meiri festu en þó er ætíð nauðsynlegt . Hún
má ekki fara offari í neinu og vera með getsakir
byggðar á geðþótta og litaðri afstöðu einstakra
nefndarmanna . Því miður bendir margt í bréfi
nefndarinnar til mín til þess að slíkum sjónar
miðum hafi nefndin brugðist . En hún hefur þó
enn tækifæri til að bæta úr .
Árétta verður að nefndin getur ekki látið eins
og þeir sem hún biður um skýringar frá hafi haft
alla þá sömu vitneskju og nefndin hefur nú .
Hún hefur haft heilt ár til að sanka þeim að sér
og með ótakmörkuð úrræði til að gera það . Þótt
bréf nefndarinnar til mín virðist bera það mjög
með sér að hún hafi alls ekki gætt nægjanlega
að framangreindum atriðum, þá verður að
byggja á því, þar til annað sannast, að hún hafi
fullan hug á að gera það, þegar sjónarmið mín
og skýringar liggja fyrir . Þær eru þó ekki eins
tæmandi og ég hafði fullan hug á að tryggja
vegna hins óvenjulega stutta tíma sem veittur
var til andmæla og gerði manni, sem gegnir
jafnframt fullu umfangsmiklu starfi mjög
örðugt fyrir um viðfangsefni sitt .
Nefndin verður að hafa í huga að Seðla
bank anum bar að leitast við að tryggja að
peningakerfið í landinu gæti gengið hnökra
laust . Þetta er viðamikið og snúið verkefni við
venjulegar aðstæður, en óhætt er að segja að
starfsfólk bankans hafi unnið stórvirki ásamt
því fólki sem kallað var fyrirvaralaust inn í
bankann til aðstoðar . Nánast allt bankakerfið
hrundi á einni viku . Seðlabankanum tókst
samt að tryggja að innra peningakerfið virkaði
nánast að öllu leyti, þrátt fyrir stórbrotið
áfall sem enginn gat haft reynslu af . Íslenskir
korthafar út um allan heim fundu vart að
neitt hefði gerst . Seðlabankinn ábyrgðist
innistæður allra greiðslukorta, hann ábyrgðist
innflutning á alls kyns nauðsynjum, svo sem
eins og olíuvörum . Unnið var dag og nótt í
bankanum, langt umfram allar venjulegar
skyldur starfsmanna .
Það er enginn vafi á að við þessar aðgerðir
allar gæti vel hugsast að bankastjórnina hafi í
sumum efnum skort lagaheimildir til verka . Og
eins er hugsanlegt að einhver stjórnsýsluákvæði
hafi verið brotin . Vera má að of fá bréf hafi
verið skrifuð, réttir starfshópar hafi ekki verið
boðaðir til fundar samkvæmt leiðbeiningum í
rauðum, bláum og jafnvel gulum bókum og
þar fram eftir götunum . Sjálfsagt kann að vera
rétt að nefnd fari nánar út í slík áhugaverð
álita efni . En bankastjórnin og starfsfólk bank
ans má hins vegar vera stolt og hnarreist yfir
fram göngu sinni þessa dagana .
Annað aðalverkefni Seðlabankans er að
varðveita gjaldeyrisvarasjóð landsmanna .
Á rétta verður að nefndin getur ekki látið eins og þeir sem hún
biður um skýringar frá hafi haft
alla þá sömu vitneskju og nefndin
hefur nú . Hún hefur haft heilt ár
til að sanka þeim að sér og með
ótakmörkuð úrræði til að gera það .