Þjóðmál - 01.06.2010, Page 104
102 Þjóðmál SUmAR 2010
Engin stjórnartilhögun, sem ennþá hefir verið reynd manna á meðal, hefir gefizt
vel nema um sinn . Viðleitni manna til að ráða
fram úr hinu mikla vandamáli um rétt og
skyldur einstaklingsins gagnvart þjóð félaginu
og þjóðfélagsins gagnvart ein stakl ingnum er
ennþá á tilraunastigi og verður það ef til vill til
eilífðar . Að vísu eiga sumar þjóðir þau tímabil
í sögu sinni, er stjórnartilhögunin virðist hafa
fallið sem vel skor ið fat að þjóðlíkamanum, og
þá hefir allur hag ur þjóðfélagsins staðið með
slíkum blóma, að endurminningin um það
hefir orðið ein hin dýrasta eign þeirra kynslóða,
er síðan hafa lifað . En slíkar gullaldir hafa
jafnan verið skammæjar, öfl þjóðfélagsins hafa
færzt aftur úr jafnvægi óðar en nokkurn varði
og hinn gamli hildarleikur hafizt að nýju .
Langt fram eftir nítjándu öld hélzt trúin á
þingræðið meðal frjálslyndra manna í öllum
löndum Norðurálfu . Meðan þjóð irn ar voru að
sleppa undan hrömmum ein valds stjórn anna,
sáu þær blasa við sér undra lönd, þar sem frelsi
og jöfnuður ríkti í skjóli þjóðkjörinna þinga,
sem hefðu ekkert annað en heill þjóðfélagsins
fyrir augum . Þessi sterka trú á framtíðina gaf
mönnum að vísu kraft til þess að sprengja af
sér fjötra fortíðar inn ar, en nú virðist oss hún
óneitanlega talsvert barnaleg eftir allt, sem
síðan hefir á dagana drifið . Sumir frumherjar
hinnar miklu frakknesku byltingar héldu því
fram, að þjóðin gæti aldrei svikið sjálfa sig, hún
mundi aldrei senda aðra fulltrúa á þing en þá,
sem ynnu að heill hennar og heiðri . Hver væri
sjálfum sér næstur, og það væri óhugs andi, að
nokkur þjóð vildi verða sjálfri sér til tjóns eða
meins . Rousseau, hinn mikli draumóramaður,
var þó skarp skyggn ari um þetta efni . Hann lýsti
þingræðinu á Englandi svo, að þar væru mörg
hundruð harðstjóra í stað eins . Kjósendur
hefðu þar að vísu mikinn veg og völd – á
kjör degi, en á milli kjördaga væru þeir einskis
virði . En þessi orð hans voru að engu virt, þó
að kenningar hans hefðu hin mestu áhrif á
byltinguna að öðru leyti . Og löngu síðar mun
Carlyle hafa staðið nokkurn veginn einn uppi,
er hann kvað upp hinn þunga áfellisdóm sinn
yfir meiri hluta valdinu, sem allt þingræði hvílir
á . Hann sagði, að það væri ein hin fáránlegasta
og fjarstæðasta hugsun, sem nokkurn tíma
hefði fæðst í mannsheila, að afl atkvæða ætti að
Árni Pálsson
Þingræðið á glapstigum
Eftirfarandi grein Árna Pálssonar prófessors (1878–1952) birtist í tíma ritinu Vöku
árið 1927 . Árni var í ritnefnd Vöku ásamt nokkrum öðrum helstu menntamönn
um landsins . Segja má að grein Árna sé sígild umfjöllun um vanda stjórnmála
í lýð ræð isríkjum . Ekki síst á hún erindi til okkar nú þegar traust almennings á
stjórn málamönnum er í lágmarki . Árni fylgdist grannt með stjórnmálabaráttu
síns tíma og fór meðal annars í framboð fyrir Sjálfstæðisflokkinn .