Þjóðmál - 01.06.2010, Síða 109

Þjóðmál - 01.06.2010, Síða 109
 Þjóðmál SUmAR 2010 107 að þeir þyrðu ekki að fylgja vopnum sínum . Allar hvítar þjóðir eru hraustar á vígvelli . En siðferðisleg hugprýði í borgaralegu lífi, í sam­ búð manna, á þingum og þjóðsamkomum eða í framkvæmd laga og réttar, er ein hin sjald gæfasta dyggð í þessum heimi . Og hér á landi er hún áreiðanlega afar sjaldgæf, enda á hún við rammari reip að draga hér en víðast annars staðar, því að fámennið veldur því, að vér erum næstum því allir annaðhvort frænd ur eða kunningjar . Hið siðferðislega hugleysi er einkum að því leyti alveg furðulegt fyrirbrigði, að það kennir mönnum oft að hræðast það, sem engin ástæða er til að óttast í raun og veru . Mönnum, sem hvorki gera að blikna né blána t .d . í sjávarháska, fellur allur ketill í eld, ef þeir eiga að segja náunga sínum sannleika, sem þeir halda að honum komi illa . Menn láta náung ann kúga sig til allra skapaðra hluta, til þess að ganga öðru vísi klæddir en þeim sjálfum er þægilegast, til þess að lifa lífinu allt öðru vísi en þeim sjálfum hentar og til þess að láta í ljós aðrar skoðanir á mönnum og málefnum en þeir í raun og veru hafa . Menn láta náungann gera allt þetta, því að í raun og veru gerir náunginn það ekki sjálfur . Óljós beygur og hræðsla við vanþóknun annarra stjórna orðum og gerðum langflestra manna . Menn halda oft langar ræður, ekki til þess að lýsa sínum eigin skoðunum, heldur til þess að mæla fram með skoðunum, sem þeir halda að aðrir menn hafi . Hið ógeðslega og löðurmannlega dekur við þjóð ar viljann, sem venjulega er alls ekki til, er m .a . sprottið af þessum rótum . Er nú óhugsandi, að íslenzkir kjós endur, eða að minnsta kosti einhver dálítill hluti þeirra, losni einhvern tíma úr þessari sjálf heldu? Því að ekki vantar það, að margir vor á meðal eru glögg skyggnir á bresti stjórnar farsins og draga ekki dul á það í fárra manna hóp . En þá er á hólminn kemur og mestu varðar, á mann fund­ um eða á kjördegi, þá er sem þeir verði málhaltir og rænulausir, svo að þeir koma að engu liði . Það er hin mesta nauðsyn að finna einhver ráð til þess að stappa stálinu í slíka menn . Þeim þarf að skiljast, að þeir eru öðrum mönnum sekari, að hin pólitíska óáran stafar að miklu leyti af lítilmennsku sjálfra þeirra . Því að heilbrigt og einart almenningsálit gæti læknað marga þá kvilla, sem oss stendur nú mestur stuggur af . Ef kjósendur þess þingmanns, sem fyrstur gerðist of nærgöngull við ríkissjóð, hefðu haft manndóm og menningu til þess að svifta hann þingmennskunni við næsta tækifæri, þá hefðu færri dregið fúlgur í bú sín úr ríkissjóði en raun hefir á orðið . Ef kjósendur hefðu sýnt bæði í orði og gerð, að þeim stæði ekki á sama, hvað borið væri á borð fyrir þá, þá mundi margur forhertur stjórnmálalygari hafa haft betri gát á tungu sinni og penna . Kjósendur hefðu og fyrir löngu getað afstýrt óðagoti löggjafarinnar, ef þeir hefðu gert fulltrúum sínum skiljanlegt, að hin hamslausa lagasmíð væri hvorki þinginu til sæmdar né landinu til gagns . Og svona mætti halda lengi áfram . Alþingi er ekkert annað en spegilmynd af kjósendum landsins, og ekkert er vissara en að vér verðum að búa við sama sukkið, þangað til að kjósendaliðið vitkast, – þangað til einurð og andlegt hreinlæti þjóðarinnar verður meira en nú . Ég þykist nú vita að mér verði svarað, að valt sé að byggja á andlegum framförum al­ menn ings, því að hann sé venjulega seinn í svif unum . En þá spyr ég: til hvers eru þá allar tillög urnar um breytingar á stjórnarlögunum, ef maður má ekki reyna að treysta því, að þekking og siðferðisþrek almennings fari vaxandi . Ég hygg að oss mundi koma að litlu haldi, þó að vér smíðuðum oss svo fullkomna stjórnarskrá, sem föng eru til, ef tómlæti, siðferðislegt hirðuleysi og pólitísk fáfræði alls almennings á alltaf að vera á sama stigi sem nú . Mikilli þjóð getur haldizt svo vel á lélegri stjórnarskrá, að öllum hennar málum sé vel borgið, en öll vopn snúast í höndum lítil­ sigldrar og stefnulausrar þjóðar á móti sjálfri henni . Hitt tel ég sjálfsagt, að öll slík ákvæði, sem ætla má að komið geti að haldi, séu sett inn í stjórnarskrána . T .d . ætti hún að banna þingmönnum að þiggja nokkurt embætti eða launað starf, sem stjórn eða þing ræður yfir .
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132

x

Þjóðmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.