Gerðir kirkjuþings - 2009, Page 18
18
og fasteignafélagsins Eikar ehf. til ársins 2014. Samningaviðræður við leigusala um
lækkun húsaleigu eða brottfall leigusamningsins hafa ekki borið árangur.
Kirkjuþing beinir því til kirkjuráðs að lokaskýrslu um árangursmat í kirkjustarfi verði
komið í viðeigandi farveg í tengslum við endurskoðun á heildarþjónustu kirkjunnar.
Sjá þingsályktun í 5. máli kirkjuþings 2008.
Kirkjuþing telur æskilegt að starfshópur vinni áfram að mótun umhverfisstefnu þjóð-
kirkjunnar og að umhverfisverkefnum sem kynnt voru með skýrslu kirkjuráðs 2008.
Umhverfisstefna þjóðkirkjunnar verði til afgreiðslu á kirkjuþingi 2009.
Kirkjuráð fól starfshópnum að vinna að drögum að umhverfisstefnu þjóðkirkjunnar.
Tillaga til þingsályktunar um málið liggur fyrir kirkjuþingi nú.
Kirkjuþing ályktar að ráða þurfi upplýsingastjóra þjóðkirkjunnar í fullt starf og vísar
til tillögu nefndar um samband kirkju og fjölmiðla í því sambandi. Leitað verði leiða
til að forgangsraða í fjárhagsáætlun kirkjunnar þannig að finna megi þessu stað.
Kirkjuráð tók málið til umræðu við úthlutun og ákvað að fresta ráðningu upplýsinga-
fulltrúa í fullt starf að svo stöddu enda sinna verkefnisstjórar á guðfræði- og þjóðmála-
sviði og á upplýsingasviði verkefninu í hlutastarfi.
Í nefndaráliti allsherjarnefndar við skýrslu kirkjuráðs segir m.a:
Allsherjarnefnd leggur áherslu á að kynning mála á kirkjuþingi sé efld heima í héraði.
Nefndin tekur undir þær hugmyndir kirkjuráðs að haldnir séu aukahéraðsfundir eða
leiðarþing að hausti til kynningar á málum kirkjuþings. Beinir nefndin því ennfremur
til kirkjuráðs að það sendi próföstum orðsendingu þessa efnis fyrir héraðsfundi vorið
2009.
Í 6. máli kirkjuþings, tillaga að starfsreglum um þingsköp kirkjuþings, er í 14. gr.
kveðið á um sérstaka þingmálafundi þar sem skylt verður að kynna kirkjuþingsmál
áður en þau eru send forseta kirkjuþings.
Allsherjarnefnd telur tímabært að hefja endurskoðun á Stefnu- og starfsáherslum
þjóðkirkjunnar 2004-2010 í ljósri breyttra aðstæðna í íslensku samfélagi sem vísast
munu hafa mikil áhrif á kirkjulegt starf á næstunni.
Samkvæmt stefnuskjalinu er gert ráð fyrir að mat verði lagt á framkvæmd stefnunnar
og einstaka þætti hennar árin 2009-2010. Er það lokaáfangi stefnumótunarinnar.
Kirkjuráð lítur svo á að með vinnu við heildarskipan þjónustu kirkjunnar sem lýst er í
5. máli, tillögu til þingsályktunar um áfangaskýrslu um heildarskipan þjónustu
kirkjunnar, hafi verið lagt mat á stefnumótunina og er vísað til meginhugmynda sem
þar koma fram.
2. mál 2008. Fjármál þjóðkirkjunnar.
Kirkjuþing 2008 afgreiðir ársreikninga þjóðkirkjunnar fyrir árið 2007 um einstaka
sjóði, stofnanir og viðfangsefni þjóðkirkjunnar athugasemdalaust.
Rekstraráætlun fyrir árið 2009 um helstu viðfangsefni þjóðkirkjunnar, er í samræmi
við megináherslur kirkjuþings með hliðsjón af þeim fjárhagsramma sem þjóðkirkjan
býr við.
Í nefndaráliti fjárhagsnefndar er að finna ábendingar og tilmæli sem kirkjuráð taldi
sérstaka ástæðu til að fjalla um.