Gerðir kirkjuþings - 2009, Page 19
19
1. Fyrirsjáanlegt er að meðaltekjuskattstofn einstaklinga milli áranna 2008 og 2009
lækki að raungildi og það muni hafa áhrif til lækkunar sóknargjalda árið 2010. Af
þessum sökum beinir fjárhagsnefnd því til kirkjuráðs að brýna fyrir sóknarnefndum að
gæta ýtrasta aðhalds á fjárhagsárinu 2009.
Kirkjuráð ritaði öllum sóknarnefndum bréf með hvatningu til fjárhagslegs aðhalds í
hvívetna.
2. Fjárhagsnefnd beinir því til kirkjuráðs að í fjárhagsáætlun 2009 verði lagðir fram
fjármunir til þess að styrkja söfnuði og prófastsdæmi vegna stuðnings þeirra við
almenning í efnahagsþrengingum.
Á fjárhagsáætlun kirkjumálasjóðs 2009 var ákveðið að leggja fram sérstaka fjárhæð til
þessa verkefnis.
3. Fjárhagsnefnd beinir því til kirkjuráðs að leggja fram fjárhagsáætlun til næstu fimm
ára varðandi skipulag þjónustu presta og djákna kirkjunnar sbr. áætlun um
prestsembætti 2009 sem var fylgiskjal með 2. máli kirkjuþings - fjármálum
kirkjunnar. Áætlunin verði lögð fyrir kirkjuþing 2009.
Kirkjuráð og biskupafundur héldu sameiginlegan fund þar sem rædd var fimm ára
áætlun um ráðstöfun prestsembætta og áætlun um hvar prestssetur skuli lögð til sam-
kvæmt samþykkt kirkjuþings 2008 um fjárfestingarstefnu kirkjunnar.
Í ljósi breyttra aðstæðna í fjármálum kirkjunnar er ekki lögð fram að svo stöddu
áætlun um stöðu prestsembætta og prestssetra næstu fimm árin.
4. Fjárhagsnefnd leggur til að á hverju kirkjuþingi verði eitt viðfangsefni kirkjunnar á
fjármála- og þjónustusviði tekið til sérstakrar umfjöllunar og kynningar. Á kirkjuþingi
2009 verði það Hjálparstarf kirkjunnar.
Kirkjuráð ræddi við forseta kirkjuþings um þessi tilmæli og verður sérstök kynning á
starfsemi Hjálparstarfs kirkjunnar hér á þessu kirkjuþingi.
5. Fjárhagsnefnd leggur til að í árlegum rekstrarreikningi kirkjumálasjóðs verði æsku-
lýðsmál sérstakur liður, ásamt sundurliðun í skýringum.
Kirkjuráð leggur fram í 2. máli yfirlit um kostnað vegna æskulýðsmála hjá kirkju-
málasjóði.
6. Fjárhagsnefnd ítrekar að unnið verði áfram að rafrænum skilum á ársreikningum
ásamt ársskýrslum sókna.
Ríkisendurskoðun samþykkir ekki að nægjanlegt sé að skila ársreikningum rafrænt og
hefur þeim því verið skilað árituðum. Ársreikningsformið er aðgengilegt á vef þjóð-
kirkjunnar.
3. mál 2008. Starfsreglur um breyting á starfsreglum um skipulag kirkjunnar í héraði
nr. 1026 / 2007.
Starfsreglurnar hafa verið sendar til birtingar í B-deild Stjórnartíðinda.
4. mál 2008. Þingsályktun um áfangaskýrslu nefndar um endurskoðun á lögum um
stöðu, stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar nr. 78/1997.
Annarri umræðu um málið á kirkjuþingi var frestað til 28. nóvember 2008.
Kirkjulaganefndin kom saman eftir frestun kirkjuþings, fór yfir ábendingar kirkju-
þings, gerði nokkrar lagfæringar á frumvarpinu og fór yfir athugasemdir. Málið var
sent til prófasta og héraðsnefnda, Djáknafélags Íslands og Prestafélags Íslands til