Gerðir kirkjuþings - 2009, Page 22
22
magnstekna sjóða kirkjunnar samkvæmt áætlun sem kirkjuráð leggur árlega fyrir
kirkjuþing.
Ekki var talið tímabært að leggja til hliðar fjármuni á þessu ári þar sem fjárframlög
voru skorin niður. Nauðsynlegt er að allt tiltækt fjármagn sé fyrir hendi vegna
kreppunnar og einnig vegna brýnna framkvæmda á prestssetrum svo og vegna
greiðslu skulda.
Þá skal og mynda í kirkjumálasjóði sérstakt viðfangsefni til þess að stuðla að aukinni
prests- og djáknaþjónustu. Kirkjuráð leggur árlega fram áætlun á kirkjuþingi um hve
stórum hluta sölutekna af fasteignum og fjármunatekjum Jöfnunarsjóðs og kirkju-
málasjóðs skal varið til þjónustunnar.
Kirkjuráð hefur undanfarin ár lagt til hliðar fjármuni úr kirkjumálasjóði til prests- og
djáknaþjónustu. Í ljósi efnahagsþrenginga og vegna hagræðingarkröfu ríkisins munu
þeir fjármunir verða nýttir til að geta haldið uppi prests- og djáknaþjónustu í prófasts-
dæmunum.
Þjóðkirkjan varðveitir kirkjur, prestssetur og aðrar eignir, sem styðja þjónustu hennar
og markmið. Áhersla er lögð á að samræmis sé gætt innan landssvæða um hvar prests-
setur eru lögð til embætta presta. Ávallt skal meta aðstæður og virða sérstök söguleg
eða menningarleg rök.
Áætlun um hvar prestssetur skuli lögð til er í vinnslu. Sjá umfjöllun um í 2. mál
kirkjuþings 2008.
10. mál 2008. Þingsályktun um skipun starfshóps til að móta starfsreglur fyrir
kirkjuþing unga fólksins.
Kirkjuþing 2008 ályktaði að fela kirkjuráði að skipa starfshóp til að móta starfsreglur
fyrir kirkjuþing unga fólksins sem haldið verði árlega. Jafnframt fái fulltrúi kirkju-
þings unga fólksins rétt til setu á kirkjuþingi með málfrelsi og tillögurétti.
Starfshópurinn skoði einnig hvort stofnun æskulýðsnefndar þjóðkirkjunnar geti orðið
skipulagi og æskulýðsstarfi til framdráttar.
Kirkjuráð skipaði starfshóp um málin sem skilaði tillögum til kirkjuráðs. Auk þess
fóru embættismenn og kirkjustarfshópur kirkjuráðs yfir tillögurnar. Kirkjuráð leggur
fram í 10. máli kirkjuþings 2009 tillögur að starfsreglum um æskulýðsþing kirkjunnar.
11. mál 2008. Þingsályktun um æskulýðsstarf í kirkjunni.
Kirkjuþing samþykkti að vísa málinu til biskups Íslands til frekari skoðunar. Málið
fjallar um nefnd til að endurskoða skipulag barna- og unglingastarfs á vegum
þjóðkirkjunnar. Skoðað verði sérstaklega að stofna æskulýðsnefnd þjóðkirkjunnar.
Kirkjuráð skipaði í sumar nefnd til að fjalla sérstaklega um æskulýðsstarfið í
prófastsdæmum. Í nefndinni eru sr. Gísli Jónasson prófastur og sóknarprestur í
Breiðholtsprestakalli, sr. Stefán Már Gunnlaugsson sóknarprestur á Hofi í Vopnafirði
og Dagný Halla Tómasdóttir, framkvæmdastjóri ÆSKR. Áfangaskýrsla nefndarinnar
fylgir skýrslu þessari.
12. mál 2008. Þingsályktun um fræðsluáætlun fyrir börn og unglinga.
Kirkjuþing 2008 samþykkti að fela biskupi Íslands að gera áætlun um fræðslu um
kristna trú og starf meðal barna og unglinga á grunni fræðslustefnu þjóðkirkjunnar,
jafnt í söfnuðum landsins sem á öðrum vettvangi. Framkvæmdaáætlun ásamt árlegri
kostnaðaráætlun verði lögð fyrir kirkjuþing 2009.