Gerðir kirkjuþings - 2009, Side 23
23
Lögð eru fram með skýrslu þessari drög að framkvæmdaáætlun fræðslustarfs frá skírn
barns til 18 aldurs ásamt drögum að námskrám kirkjunnar fyrir barna- æskulýðs og
fermingarfræðslu sem samdar hafa verið af dr. Gunnari Finnbogasyni, sr. Maríu
Ágústsdóttur, Dagnýju Höllu Tómasdóttur, Magneu Sverrisdóttur, sr. Hans Guðberg
Alfreðssyni og Ásdísi Björnsdóttur. Framkvæmdaáætlunin miðar að því að setja fram
þarfagreiningu skírnarfræðslunnar og er hún sem slík sameiginlegt verkefni sókna,
prófastsdæma og fræðslusviðs Biskupsstofu. Framkvæmdaáætlun vegna fræðslustarfs
kirkjunnar er sístætt verkefni sem þarfnast stöðugrar endurskoðunar og uppfærslu við.
Heildstæð námskrá skírnarfræðslunnar verður lögð fram til samþykktar á kirkjuþingi
2010.
13. mál 2008. Starfsreglur um breyting á starfsreglum um presta nr. 735/1998.
Starfsreglurnar hafa verið sendar til birtingar í B-deild Stjórnartíðinda.
14. mál 2008. Samþykkt um staðfestingu stofnskrár fyrir Stofnun dr. Sigurbjörns
Einarssonar, rannsókna- og fræðaseturs í trúarbragðafræðum og guðfræði.
Á kirkjuþingi 2008 var staðfest stofnskrá fyrir Stofnun dr. Sigurbjörns Einarssonar,
rannsókna- og fræðaseturs í trúarbragðafræðum og guðfræði sem skal hafa aðsetur í
Kapellu ljóssins á Keflavíkurflugvelli. Kirkjuráð skipaði í apríl s.l. eftirtalda í stjórn:
Boga Ágústsson, sem formann og Salvöru Nordal sem jafnframt gegnir stöðu vara-
formanns, auk þess dr. Arnfríði Guðmundsdóttur, dr. Magnús Þorkel Bernharðsson og
dr. Sigurjón Árna Eyjólfsson. Skipunin gildir í fjögur ár.
Stjórn Stofnunar dr. Sigurbjörns Einarssonar hélt fyrsta stjórnarfund þann 22. október
s.l. Stjórnin ákvað að hefja vinnu að undirbúningi málþings um verkefni stofnunar-
innar og ganga til samninga um verkefni við Háskóla Íslands og aðrar stofnanir.
Einnig var ákveðið að huga að skipan fagráðs. Ekki verður ráðinn forstöðumaður á
árinu 2010.
15. mál 2008. Þingsályktun um breytta skipan sókna, prestakalla og prófastsdæma.
Þingsályktun kirkjuþings 2008 fjallaði um niðurlagningu á Kálfafellsstaðarprestakalli
í Skaftafellsprófastsdæmi og Holtsprestakalli í Rangárvallaprófastsdæmi við starfslok
núverandi sóknarpresta. Þá var lagt til að Hraungerðis- og Selfossprestaköll sameinist
í eitt prestakall með tveimur prestum. Tillögurnar voru til umfjöllunar á biskupafundi
og síðan sendar til umsagna.
Vísað er til 3. máls kirkjuþings 2009.
16. mál 2008. Þingsályktun um skiptingu jarðarinnar Mosfells, Kjalarnessprófasts-
dæmi.
Kirkjuþing 2008 samþykkti að jörðinni Mosfelli, Mosfellsbæ, Kjalarnessprófasts-
dæmi, yrði skipt þannig að prestssetrið yrði 1,9 ha landspilda umhverfis prests-
bústaðinn á Mosfelli og nefnist Mosfell I er yrði áfram prestssetur prestakallsins. Það
sem eftir stendur af jörðinni nefnist Mosfell II. Afmörkuð verði hæfileg lóð úr
Mosfelli II umhverfis Mosfellskirkju sem tilheyri kirkjunni.
Málið er í vinnslu hjá fasteignasviði kirkjuráðs.
19. mál 2008. Þingsályktun um niðurfellingu á gjaldtöku fyrir fermingarfræðslu og
skírn.
Kirkjuþing 2008 samþykkti að leggja til við dóms- og kirkjumálaráðherra að niður-
felling á gjaldtöku fyrir fermingarfræðslu og skírn komi til framkvæmda eigi síðar en
1. janúar 2010.
Ályktunin var send dóms- og kirkjumálaráðherra og kjararáði.