Gerðir kirkjuþings - 2009, Side 26
26
stofnanir og starfsfólk kirkjunnar um land allt til að styrkja þjónustu og rekstrar-
grundvöll.
Kirkjuráð skipaði starfshóp til að fara yfir fram komnar tillögur um málefni
fjölskylduþjónustunnar og jafnframt að skoða hvort tímabært væri að setja nýjar
starfsreglur um starfsemina. Starfshópurinn taldi, í ljósi breyttrar stöðu fjölskyldu-
þjónustunnar, þörf á að setja nýjar starfsreglur. Helstu tillögur starfshóps í þeim eru að
ráða eigi prestsvígðan forstöðumann, að fjölskylduþjónustan heyri faglega undir
biskup Íslands en rekstrarlega undir kirkjumálasjóð að skipað verði fagráð í stað nú-
verandi stjórnar, að samdar verði nýjar starfsreglur og að biskup Íslands gefi út reglur
um handleiðslu.
Kirkjuráð leggur fram á kirkjuþingi 2009 tillögur að starfsreglum á grundvelli vinnu
starfshópsins.
9. mál 2009. Tillaga til þingsályktunar um umhverfisstefnu þjóðkirkjunnar.
Kirkjuþing 2007 ályktaði að fela kirkjuráði að skipa starfshóp sem móti umhverfis-
stefnu er yrði leiðarljós í umhverfisstarfi í söfnuðum þjóðkirkjunnar. Áliti yrði skilað
til kirkjuþings 2008. Kirkjuráð skipaði starfshóp um málið er skilaði tillögum að
umhverfisstefnu ásamt greinargerð og fylgdu tillögurnar skýrslu kirkjuráðs 2008.
Kirkjuráð taldi rétt að fá frekari umfjöllun um málið áður en það yrði lagt fram sem
mál á kirkjuþingi og var samþykkt á kirkjuþingi 2008 að fela starfshópnum að vinna
áfram að mótun umhverfisstefnu þjóðkirkjunnar og að umhverfisverkefnum og yrði til
afgreiðslu á kirkjuþingi 2009.
Í starfshópnum voru sömu nefndarmenn og áður, sr. Elínborg Sturludóttir, sóknar-
prestur í Stafholtsprestakalli, Margrét Björnsdóttir, kirkjuþingsfulltrúi, Ingibjörg Elsa
Björnsdóttir, jarðfræðingur og umhverfisfræðingur, Jóna Bjarnadóttir, umhverfis-
stjórnunarfræðingur og sr. Halldór Reynisson, verkefnisstjóri á Biskupsstofu sem
leiddi starf hópsins.
10. mál 2009. Tillaga að starfsreglum um æskulýðsþing kirkjunnar.
Biskup Íslands boðaði til kirkjuþings unga fólksins í tengslum við kirkjudaga 2001 og
aftur á kirkjudögum 2005. Á afmælisári kirkjuþings 2008 var enn boðað til
kirkjuþings unga fólksins daginn fyrir setningu kirkjuþings. Segja má að með þessu
hafi fengist reynsla sem styður að því að kirkjuþing unga fólksins verði fest í sessi
sem reglubundinn þáttur í kirkjustarfinu. Hér er m.a. lagt til að heitinu verði breytt til
aðgreiningar frá reglubundna kirkjuþingi og valið heitið æskulýðsþing kirkjunnar.
11. mál 2009. Tillaga að starfsreglum um breyting á starfsreglum um rekstrarkostnað
prestsembætta og vegna prófastsstarfa nr. 819/ 1999
Með tillögum þessum eru lagðar til breytingar á greiðslu rekstrar- og aksturskostnaðar
presta. Tillaga þessi miðar að því að mæta óumflýjanlegri hagræðingarkröfu sem
þjóðkirkjan stendur frammi fyrir í ljósi efnahagsþrenginga þjóðarinnar. Lækkun
rekstrarkostnaðar embættanna er liður í þeim aðgerðum sem kirkjan þarf að grípa til.
Lagt er til að húsaleigustyrkur til allra presta í landinu verði afnuminn úr grunni árlegs
rekstrarkostnaðar.
Rétt þykir að reglur um embættisklæði, þ.e. hempa og kragi, verði endurskoðaðar en
hempa kostar nú um 500 þús. kr .