Gerðir kirkjuþings - 2009, Síða 29
29
Ingólfsdóttir og rektor skólans er dr. Kristinn Ólason. Aðsókn að Skálholtsstað hefur
aukist jafnt og þétt og hafa tekjur staðarins aukist nokkuð. Nú er lokið öllum
undirbúningi vegna nýbyggingar í Skálholti en framkvæmdinni hefur verið frestað um
sinn eins og öðrum nýframkvæmdum á vegum kirkjuráðs vegna óvissu um
fjárhagsafkomu þjóðkirkjunnar.
Tónskóli þjóðkirkjunnar
Tónskóli þjóðkirkjunnar starfar samkvæmt starfsreglum um kirkjutónlist á vegum
þjóðkirkjunnar nr. 768/2002. Skólinn starfar eftir námskrá sem kirkjuráð samþykkir.
Stjórn skólans er skipuð sr. Jóni Helga Þórarinssyni sem er formaður, Guðnýju
Einarsdóttur og Ólöfu Kolbrúnu Harðardóttur.
Nefndir og starfshópar sem kirkjuráð skipar
Samkvæmt 11. gr. starfsreglna um kirkjuráð nr. 817/2000, er meginreglan sú að
kirkjuráð skipar í þær nefndir sem ráðið skal skipa í, þrjá menn og þrjá til vara til
fjögurra ára. Skal skipað frá og með 1. júlí árið eftir kirkjuþingskjör. Samkvæmt því
bar að skipa í nefndirnar á árinu 2007 og var það gert eins og grein var gerð fyrir í
skýrslu kirkjuráðs á kirkjuþingi 2007. Nokkrar breytingar hafa orðið á nefndaskipan
síðan þá.
Strandarkirkjunefnd
Í nefndinni eru: Ragnhildur Benediktsdóttir formaður, samkvæmt tilnefningu kirkju-
ráðs. Varamaður hennar er Sigríður Dögg Geirsdóttir fjármálastjóri Biskupsstofu.
Samkvæmt tilnefningu sóknarnefndar Strandarsóknar, sr. Baldur Kristjánsson sóknar-
prestur í Þorlákshafnarprestakalli, Jóhanna Eiríksdóttir húsfreyja í Vogsósum er
varamaður hans. Samkvæmt tilnefningu héraðsnefndar Árnesprófastsdæmis, sr. Jón
Ragnarsson sóknarprestur í Hveragerði og Margrét Jónsdóttir, fulltrúi í héraðsnefnd
Árnesprófastsdæmis varamaður hans. Gildir skipun nefndarinnar til 30. júní 2011.
Stjórn prestssetra
Í nefndinni eru:
Aðalmenn:
Fulltrúi kirkjuráðs, Lárus Ægir Guðmundsson, formaður,
Fulltrúi kirkjuþings, Guðmunda Kristjánsdóttir, 1. varaformaður,
Fulltrúi Prestafélags Íslands, sr. Þorgrímur Daníelsson, 2. varaformaður.
Varamenn:
Ásbjörn Jónsson sem gegni stöðu formanns ef aðalmenn víkja sæti,
Helga Halldórsdóttir,
Sr. Halldóra Þorvarðardóttir.
Skipan stjórnar prestssetra tók gildi 1. janúar 2008.
Bygginga- og listanefnd
Kirkjuráð samþykkti að framlengja skipun bygginga- og listanefndar til loka árs 2009.
Formaður nefndarinnar er Jóhannes Ingibjartsson og aðrir nefndarmenn eru Guðrún
Jónsdóttir arkitekt og sr. Kristján Valur Ingólfsson lektor, verkefnisstjóri á
Biskupsstofu og settur sóknarprestur í Þingvallaprestakalli.
Orgelnefnd þjóðkirkjunnar
Í nefndinni eru Hörður Áskelsson organisti Hallgrímskirkju og söngmálastjóri
þjóðkirkjunnar; Björn Steinar Sólbergsson organisti í Hallgrímskirkju og skólastjóri