Gerðir kirkjuþings - 2009, Síða 39
39
Nefndarálit
Á fund allsherjarnefndar komu herra Karl Sigurbjörnsson biskup Íslands, Pétur Kr.
Hafstein forseti kirkjuþings, sr. Jón A. Baldvinsson, vígslubiskup á Hólum, sr. Guðný
Hallgrímsdóttir sérþjónustuprestur fatlaðra, sr. Þorvaldur Karl Helgason biskupsritari,
Guðmundur Þór Guðmundsson framkvæmdastjóri kirkjuráðs og Anna Guðmunda
Ingvarsdóttir lögfræðingur hjá kirkjuráði.
Allsherjarnefnd þakkar skýrslu kirkjuráðs sem ásamt Árbók kirkjunnar 2008
endurspeglar fjölbreytt starf þjóðkirkjunnar.
Eins og fram kemur í skýrslunni þarf þjóðkirkjan að hagræða í rekstri vegna almenns
samdráttar í þjóðfélaginu. Allsherjarnefnd leggur áherslu á að hagræðingin bitni sem
minnst á grunnþjónustu safnaða þjóðkirkjunnar.
Allsherjarnefnd þakkar þjóðmálanefnd fyrir gott framlag kirkjunnar til umræðu um
þjóðmál á erfiðum tímum. Mikilvægt er að kirkjan móti stefnu um jákvæða
framtíðarsýn og er hvatt til þess að þjóðmálanefnd taki virkan þátt í mótun hennar.
Undanfarin ár hefur þjóðkirkjan staðið fyrir prestsþjónustu erlendis og hafa prestar
unnið gott starf á þeim vettvangi sem ber að þakka. Það er Íslendingum sem búsettir
eru erlendis, eða dvelja þar tímabundið, t.d. vegna sjúkrahúsvistar, dýrmætt að geta
leitað til kirkjunnar og hefð er fyrir slíkri þjónustu á Norðurlöndum og á Bretlandi.
Vegna efnahagsþrenginga lítur út fyrir að þessa þjónustu verði að skerða, a.m.k.
tímabundið. Engu að síður er mikilvægt að styðja við safnaðarstarf erlendis og kanna
þarf fleiri leiðir til þess að fjármagna það.
Kirkjuþing 2008 samþykkti að fela biskupi Íslands að gera áætlun um fræðslu um
kristna trú og starf meðal barna og unglinga á grunni fræðslustefnu þjóðkirkjunnar,
jafnt í söfnuðum landsins sem á öðrum vettvangi. Allsherjarnefnd leggur áherslu á að
öll börn hafi aðgang að barna- og unglingastarfi óháð búsetu. Hvatt er til aukins
samstarfs sókna og prestakalla til að ná þessum markmiðum. Nefndin hvetur
sérstaklega til að efla skírnarfræðsluna og auka stuðning við foreldra. Einnig hvetur
nefndin til að áfram verði unnið að undirbúningi að forskóla fermingarfræðslunnar.
Á kirkjuþingi 2008 var samþykkt frumvarp til þjóðkirkjulaga. Allsherjarnefnd hvetur
til þess að frumvarpið fái eðlilegan framgang.
Nefndin leggur til að kannaðar verði leiðir til að rýmka kosningarétt til kirkjuþings og
auka á þann hátt lýðræði innan þjóðkirkjunnar.
Allsherjarnefnd telur æskilegt að fram fari markviss umræða um efni og framsetningu
Árbókar kirkjunnar. Með nýrri upplýsingatækni er nauðsynlegt að skoða hvaða efni
eigi heima á vef kirkjunnar og hvað sé nauðsynlegt að birtist í Árbókinni og í hvaða
formi.
Allsherjarnefnd telur mikilvægt að kirkjuráð komi á framfæri við sóknir landsins hver
ávinningurinn er af lögmætri skráningu eigna og réttinda sóknanna með þinglýsingu
þeirra. Komið hefur fram vilji sókna að við þinglýsingar sé eignin skráð fyrst á nafn
sóknar og síðan þjóðkirkjunnar.