Gerðir kirkjuþings - 2009, Side 46
46
Innlán eru á Einkareikningi sem miðast við vexti Seðlabankans á millibankamarkaði
með krónur -1 dags REIBID. Vextir reiknast mánaðarlega og bætast við höfuðstól.
Fjármunir verða færðir í áföngum inn á Ríkistryggða verðbréfasjóði, sem eru að
stórum hluta verðtryggðir. Þá verða einnig keypt bréf í Ríkisvíxlasjóði, sem er góður
kostur í vaxtalækkunarferli. Sjóðirnir eru ávallt lausir til útborgunar en verðtryggð
innlán eru bundin í þrjú ár.
Nefndarálit
Fjárhagsnefnd fór yfir ársreikninga og fjárhagsáætlanir þjóðkirkjunnar, stofnanir
hennar og sjóði. Fjárhagsnefnd fékk glöggt yfirlit um fjárhagsstöðu kirkjunnar, kröfur
ríkisvaldsins um hagræðingu á kostnaði vegna slæmrar stöðu ríkissjóðs og tillögur
kirkjuráðs um lækkun framlaga á ýmsum sviðum til þess að mæta hagræðingarkröfu
ríkisins. Vísað er í þessum efnum til kostnaðarumsagnar biskupsstofu sem fylgdi 25.
máli um viðaukasamning vegna kirkjujarðasamkomulagsins. Þar kemur fram glöggt
yfirlit um þær sparnaðarráðstafanir sem þegar eru á döfinni.
Sérstaklega var farið yfir fjárhagsáætlun þjóðkirkjunnar og sjóða kirkjunnar. Nefndin
þakkar skýra framsetningu reikninga og áætlana og yfirgripsmikil yfirlit og skýringar
á öllum rekstri sem undir þjóðkirkjuna heyra. Nefndin fór yfir endurskoðunarskýrslu
Ríkisendurskoðunar, en í skýrslunni er fjallað um ársreikninga embætta, sjóða,
stofnana og fyrirtækja þjóðkirkjunnar. Nefndin hafði til umfjöllunar samantekt árs-
reikninga sókna 2008, yfirlit unnið úr ársreikningum héraðssjóða fyrir árið 2008 og
skýrslu um úthlutanir styrkja úr Jöfnunarsjóði sókna á árunum 1991 – 2009 og tillögur
um úthlutun úr kirkjumálasjóði árið 2010.
Einnig lá fyrir skýrsla um kostnað sókna við endurskoðun og reikningshald á árunum
2007 og 2008. Þar kemur fram að kostnaður sókna vegna þessa er töluverður og
ástæða til að ætla að þar megi hagræða verulega.
• Vegna fyrirsjáanlegrar skerðingar á tekjum sókna beinir fjárhagsnefnd því til
kirkjuráðs að það fari þess á leit við héraðssjóði að þeir lækki framlag sókna til
sjóðanna um eitt til tvö prósentustig þar sem tök eru á.
• Fjárhagsnefnd fagnar því að tekin hefur verið upp sú nýbreytni að kynna á
hverju kirkjuþingi eitt viðfangsefni kirkjunnar. Fjárhagsnefnd vekur sérstaka
athygli á því að það verkefni sem kynnt var á kirkjuþingi 2009 – Hjálparstarf
kirkjunnar – fær aukna fjárveitingu á árinu 2010 og er það í samræmi við
áherslu kirkjuráðs og kirkjuþings á hjálparstarf í yfirstandandi þrengingum.
Fjárhagsnefnd beinir því til forsætisnefndar að barna- og æskulýðsstarf
þjóðkirkjunnar verði sérstaklega kynnt á kirkjuþingi 2010.
• Fjárhagsnefnd hefur valið þrjá kirkjuþingsfulltrúa úr sínum hópi, sem
jafnframt eru forráðamenn sókna, til þess að ganga á fund fjárlaganefndar
Alþingis og fylgja eftir ályktun kirkjuþings, (ef samþykkt verður) um að
dregið verði úr skerðingu á sóknargjaldi. Samkvæmt lögum um ráðstafanir í
ríkisfjármálum verður sóknargjaldið árið 2010 kr. 767 á mánuði. Skerðingin
árið 2010 er um 218 milljónir króna, eða 10,8 % ef miðað er við fjárlög 2009
en 371,3 milljónir króna miðað við óskert sóknargjöld árið 2009 eða um 17%