Gerðir kirkjuþings - 2009, Qupperneq 67
67
Lög, reglur og aðrar réttarheimildir
• Norsku lög 1685, II. bók
• Handbók kirkjunnar, 1981
• Barnaverndarlög 2002, 17. gr.
VIII. Ferming
Fermingin
Ferming er staðfesting. Hún er staðfesting þess að viðkomandi er skírður og vill játast
gjöf og köllun skírnarinnar og staðfesting kirkjunnar á því að hinn skírði hafi hlotið
uppfræðslu í grundvallaratriðum trúarinnar.
Það er hlutverk foreldra, guðfeðgina og safnaðarins að uppfræða hinn skírða í kristinni
trú og líferni.
Fermingarathöfnin er játning, bæn og blessun og altarisganga. Fermingarbarnið þiggur
fyrirbæn og handayfirlagningu sem tákn návistar heilags anda í lífi þess og að það er
sent út í heiminn sem samverkamaður Guðs í ríki hans.
Ferming stendur öllum til boða sem vilja játa trú sína á Krist í samfélagi kirkjunnar.
Inntak fermingarinnar
1. Fermingin felur í sér fræðslu um meginatriði trúarinnar, þátttöku í guðs-
þjónustulífi safnaðarins, svo og fermingarguðsþjónustu þar sem beðið er fyrir
fermingarbarninu með handayfirlagningu er það hefur játað trúna.
Fermingarbarnið er falið fyrirbæn safnaðarins, tekið til altaris og sent út í
heiminn sem samverkamaður Guðs í ríki hans.
Skilyrði fermingar
2. Sá sem skírður er í nafni heilagrar þrenningar og óskar þess skal fermdur.
Almennt skal miðað við að börn á 14. aldursári séu fermd. Heimilt er að ferma
yngri börn ef sérstakar ástæður krefjast og sóknarprestur metur svo. Enginn
skal fermdur án þess að hafa hlotið fræðslu sbr. 5. grein.
3. Ferming er safnaðarathöfn sem jafnan ætti að fara fram í almennri guðs-
þjónustu helgidagsins.
4. Heimilt er að ferma í sérstakri athöfn og á virkum degi ef sérstakar aðstæður
krefjast. Þess skal gætt að slíkar athafnir komi ekki í stað almennrar guðs-
þjónustu helgidagsins.
5. Fermingarfræðsla fylgi námskrá sem biskup Íslands setur og kirkjuþing
staðfestir. Sérhver sá sem fermdur er skal kunna bæn Drottins, postullegu
trúarjátninguna, boðorðin tíu, tvöfalda kærleiksboðorðið, signinguna og
blessunarorðin. Einungis skulu gerðar undantekningar frá þessum grundvallar-
skilyrðum ef sérstaklega stendur á.
Ábyrgð og umsjá
6. Sóknarprestur ber ábyrgð á skírnarfræðslu og fermingarundirbúningi.
7. Þegar prestur tekur við barni til fermingar, en það hefur hlotið uppfræðslu
annars staðar, skal gæta þess að fyrir liggi vottorð viðkomandi prests um að
það hafi lokið tilskilinni fermingarfræðslu.
8. Fermingu er ætlað að leiða inn í trúarlíf kirkjunnar. Þar skipar altaris-
sakramentið mikilvægan sess.
9. Heimilt er að taka ófermd börn til altaris á fermingarfræðslutímanum, í fylgd
eða með samþykki forráðanda.