Gerðir kirkjuþings - 2009, Page 72
72
Vígsla til þjónustu utan þjóðkirkjunnar
12. Biskupi er heimilt, sé eftir því leitað, að vígja til þjónustu prest eða djákna
innan hinna evangelísk-lútersku fríkirkjusafnaða sem starfa á sama játninga-
grundvelli og þjóðkirkjan.
13. Biskupi er heimilt, sé eftir því leitað, að vígja til prests- eða djáknaþjónustu
innan kirkna sem þjóðkirkjan er í samfélagi við á grundvelli hefðar og
samkirkjulegra samþykkta.
Vígsla kristniboða
14. Biskupi er heimilt að vígja prests- eða djáknavígslu kristniboða sem kallaðir
eru á vegum kristniboðsfélaga eða kirkjulegra aðila til starfs á kristniboðs-
akrinum. Að lokinni vígslu gefur biskup Íslands út vígslubréf sem tilgreinir
starfsvettvang og umboð kristniboðans.
Vígsla annarra trúfélaga
15. Biskupi er heimilt að viðurkenna prests- eða djáknavígslu í öðru kristnu trú-
félagi sem gilda til þjónustu í þjóðkirkjunni. Að undangenginni slíkri
ákvörðun skal biskup hafa prófað viðkomandi og handsalað heit að játningu og
skipan þjóðkirkjunnar. Ákvörðun biskups verður ekki áfrýjað.
Afturköllun umboðs vígslunnar
16. Biskup Íslands getur að undangenginni þeirri málsmeðferð sem lög og
starfsreglur kveða á um afturkallað tímabundið eða að fullu umboð vígslunnar
og fellt vígslubréf úr gildi ef vígður þjónn kirkjunnar:
a) óskar þess að umboð vígslunnar sé afturkallað
b) er sviptur embætti með dómi
c) segir sig úr þjóðkirkjunni eða evangelísk-lúterskum fríkirkjusöfnuði
d) hefur opinberlega hafnað játningum evangelísk-lúterskar kirkju
e) hefur brotið af sér í starfi, t.d. rofið þagnarskyldu, eða orðið uppvís að
hegðun eða atferli sem stríðir gegn vígsluheitum.
17. Við afturköllun umboðs vígslunnar telst viðkomandi óheimilt að gegna þeim
störfum sem vígðum þjóni kirkjunnar er ætlað og að bera embættisklæði
þjóðkirkjunnar.
18. Ákvörðun biskups um að afturkalla umboð vígslunnar verður ekki áfrýjað.
19. Biskup Íslands getur gefið út vígslubréf að nýju til þess sem sviptur hefur
verið vígsluumboði sínu telji biskup skilyrðum fullnægt.
Lög, reglur og aðrar réttarheimildir
• Kirkjuordinantia, 1537
• Konungsbréf um afsetta presta 7. okt. 1740
• Konungsbréf um uppreist presta sem vikið hefur verið frá embætti, 1756
• Erindisbréf handa biskupum, 1746
• Handbók kirkjunnar, 1981
• BEM-skýrslan, Skírn, máltíð og þjónusta, 1984
• Porvoo-samkomulagið, 1995
• Lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996
XIII. Tilsjón
Tilsjónin
Til að styrkja boðun, samfélag og einingu kirkjunnar er sérstök skipan á tilsjón,
episkope, með sóknum, söfnuðum, vígðum þjónum og stofnunum kirkjunnar. Innan