Gerðir kirkjuþings - 2009, Page 73
73
biskupsdæmis Íslands er tilsjónin iðkuð af biskupi Íslands, og vígslubiskupum og
próföstum fyrir hans hönd. Vísitasíur eru mikilvægasti þáttur tilsjónarinnar.
Sá sem vígist til embættis prests eða djákna vinnur biskupi heit um að inna þjónustu
sína af hendi á grundvelli játninga og skipanar kirkjunnar. Á grundvelli þess er hinum
vígða þjóni veitt ábyrgð á grundvallarþáttum í þjónustu þjóðkirkjunnar og hann
sendur með það umboð. Sérhverjum þeim sem gegnir vígðri þjónustu er því gert að
svara fyrir það hvernig þjónustan er rækt og hvernig ákvæðum vígsluheitis
og vígslubréfs er sinnt, og gefa þær skýrslur sem biskup eða prófastur óska eftir og
varðar það sem tilsjónin nær til. Sóknarbörn geta leitað umsagnar prófasts og biskups
um þjónustu sóknar og prests.
Framkvæmd tilsjónarinnar
1. Tilsjón er ráðgjöf, stuðningur, uppörvun og hjálp sérstaklega hvað varðar
játningu, kenningu kirkjunnar, guðsþjónustu og sakramenti og aðrar
kirkjulegar athafnir. Svo og um mál sem skipað er með lögum og starfsreglum,
og með stefnumótun kirkjunnar.
2. Tilsjón er eftirlit með því hvernig vígðir þjónar, prestar og djáknar, rækja
embætti sín og sinna þjónustu orðs og sakramenta samkvæmt vígsluheiti sínu.
3. Í tilsjón felast úrskurðir um hæfi til að gegna embætti í þjóðkirkjunni.
4. Tilsjón er eftirlit með því hvernig söfnuðir, starfsmenn og stofnanir
þjóðkirkjunnar sinna skyldum sínum í ljósi trúar, játninga kirkjunnar, laga og
reglna.
Lög, reglur og aðrar réttarheimildir
• Kirkjuordinantia, 1537
• Erindisbréf handa biskupum, 1746
• Handbók kirkjunnar, 1981
• BEM-skýrslan, Skírn, máltíð og þjónusta, 1984
• Porvoo-samkomulagið, 1995
• Lög um stöðu, stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar nr. 78/1997
• Starfsreglur um presta nr. 735/1998
• Starfsreglur um djákna nr. 738/1998
• Starfsreglur um biskupafund nr. 964/2006
• Starfsreglur um vígslubiskupa nr. 968/2006
• Starfsreglur um prófasta nr. 966/2006
XIV. Innsetning í embætti og starfslok
Innsetning, starfslok
Með innsetningu í embætti er hinn vígði þjónn kynntur söfnuði sínum eða starfs-
vettvangi í guðsþjónustu. Í guðsþjónustunni staðfestir söfnuðurinn eða stofnunin vilja
sinn til að fylgja köllun sinni eftir og umlykur hinn vígða fyrirbæn sinni. Eins fer vel á
því að óvígðir starfsmenn safnaða séu settir inn í starf, svo sem organistar, með-
hjálparar, starfsfólk við barnastarf og öldrunarstarf og sóknarnefndarmenn, við guðs-
þjónustu safnaðarins.
Þegar vígður þjónn lýkur störfum vegna aldurs eða annarra orsaka, skal hann kvaddur
í guðsþjónustu safnaðarins við athöfn þar sem bæn er fram borin og blessun lýst yfir
hann.
Ýmis ákvæði
• Prófastur annast að jafnaði innsetningu presta og djákna í embætti.