Gerðir kirkjuþings - 2009, Page 92
92
18. gr. Kirkjuráð getur leitað eftir fjárstuðningi viðkomandi sókna eða annarra aðila
vegna byggingar prestsseturs eða hluta þess eða verulegra umbóta en slíkur stuðningur
skal vera óafturkræfur og án skuldbindinga af hálfu kirkjumálasjóðs.
19. gr. Kirkjuráði er heimilt að undanskilja hluta prestsseturs, þegar laus embætti sem
prestssetur fylgir er auglýst. Skal það koma fram í auglýsingu um hið lausa embætti.
IV. Kafli. Leiga fasteigna, hlunninda, ítaka og annarra réttinda
20. gr. Fasteignanefnd felur sviðsstjóra eða tilteknum starfsmanni fasteignasviðs að
semja skriflega við alla þá sem nýta eignir kirkjumálasjóðs, hlunnindi, ítök og hvers
kyns réttindi og stuðla með öllum ráðum að öruggri vörslu þessarar eigna.
21. gr. Fjárhæð leigu allra fasteigna kirkjumálasjóðs svo og aðrir skilmálar skulu
ákveðnir í skriflegum leigusamningi.
Leiga af prestssetrum, þ.e. jörðum og húsum, auk hlunninda, ítaka og annarra réttinda
sem prestur nýtur vegna embættis síns, skal nema 3,3% af fasteignamati hins leigða á
ári.
Leiga prestssetra í eigu kirkjunnar skal ekki vera lægri en kr. 36 þús. á mánuði og ekki
hærri en kr. 70 þús. á mánuði og taka fjárhæðir þessar breytingum samkvæmt neyslu-
vísitölu. Um leigu fyrir aðrar eignir er samið.
Ákvörðun um leigugjald af prestssetrum skal tekin fyrir ár í senn og skal því jafnað á
gjaldaárið með mánaðarlegri greiðslu fyrirfram frá 1. mars til 28. febrúar. Tilkynna
skal ákvörðun þessa eigi síðar en 1. febrúar ár hvert.
Kirkjuráð setur reglur um greiðslur fyrir afnot presta af réttindum tengdum prests-
setrum svo sem réttindum vegna greiðslumarks og úthlutun arðs af hreindýraveiði. Þar
skal einnig kveðið á um tilfærslur á greiðslumarki milli prestssetursjarða og önnur
atriði.
22. gr. Fasteignanefnd er heimilt að lækka eða fella niður tímabundið leigugjald frá
því sem ákveðið er skv. 21. gr. vegna lögmætra leyfa prests eða veikinda.
Fasteignanefnd er einnig heimilt að lækka tímabundið leigugjald vegna kvaða eða
sérstakra aðstæðna.
Ákvarðanir um lækkun leigu falla sjálfkrafa úr gildi ef forsendur lækkunar breytast
eða þegar viðkomandi prestur lætur af embætti.
23. gr. Prestur nýtur arðs af hreinum hlunnindatekjum prestsseturs sem ekki eru talin
krefjast sérstaks vinnuframlags hans allt að kr. 600 þús. á ári. Ef slíkar hlunninda-
tekjur prestsseturs eru meiri skulu umframtekjur af þeim, allt að kr. 600 þús. renna
óskiptar í kirkjumálasjóð. Nemi slíkar heildar hlunnindatekjur af prestssetri hærri
upphæð en kr. 1.200 þús. á ári skal helmingur þeirra umframtekna renna til prestsins
og helmingur til kirkjumálasjóðs. Þessi sérstöku hlunnindi skulu tilgreind
nákvæmlega í haldsbréfi og skal getið um takmörkun arðgreiðslu í auglýsingu um
embætti. Fjárhæð þessi tekur breytingum samkvæmt vísitölu neysluverðs frá
gildistöku þessara starfsreglna.
Við leigu annarra jarða en prestssetra er fasteignanefnd heimilt að undanskilja
tilgreind hlunnindi eða hluta jarðar samkvæmt nánari ákvörðun og leigja sérstaklega.
Öðrum kosti renna hreinar tekjur þeirra hlunninda óskiptar í kirkjumálasjóð.