Gerðir kirkjuþings - 2009, Side 102
102
Hlutverk Jafnréttisnefndar kirkjunnar er:
1. Að vera ráðgefandi fyrir biskup Íslands og kirkjuráð í málefnum er varða jafn-
rétti kynjanna.
2. Að hafa frumkvæði að fræðslu og aðgerðum, til að tryggja jafna stöðu og
jafnan rétt kvenna og karla innan kirkjunnar.
3. Að fylgjast með framkvæmd jafnréttisstefnunnar fyrir hönd biskups og kirkju-
ráðs og gera tillögu til kirkjuráðs um endurskoðun framkvæmdaáætlunarinnar
til þriggja ára í senn, skv. 2. mgr. 18. gr. laga nr. 10/20083.
4. Jafnréttisnefnd starfar í samstarfi við jafnréttisfulltrúa kirkjunnar. Biskup
Íslands skipar jafnréttisfulltrúann og setur honum erindisbréf að fengnum til-
lögum frá jafnréttisnefnd.
IV. Framkvæmdaáætlun fyrir árin 2010-2012
1. Jafnréttisfræðsla
Markmið laga nr. 10/2008 er ,,... að koma á og viðhalda jafnrétti og jöfnum tæki-
færum kvenna og karla og jafna þannig stöðu kynjanna á öllum sviðum samfélagsins.“
Kirkjan mun standa fyrir fræðslu um kynjasamþættingu sem felur í sér að skipuleggja,
bæta, þróa og leggja mat á stefnumótun og ákvarðanir þannig að sjónarhorn kynjajafn-
réttis sé fléttað inn í starf kirkjunnar á öllum sviðum hennar, sbr. 6. mgr. 2. gr.4 og 17.
gr. laga nr.10/20085. Einnig mun kirkjan stuðla að því að kynjasamþætting verði
þáttur í endurmenntun þeirra sem fyrir kirkjuna starfa.
Verkefni 1.1: Haldin verður ráðstefna í lok janúar 2010 á vegum jafnréttis-
nefndar kirkjunnar um jafnrétti og samþættingu kynjasjónarmiða. Í tengslum
við ráðstefnuna verður boðið upp á námskeið um samþættingu
kynjasjónarmiða í safnaðarstarfi. Er það sérstaklega ætlað prestum,
starfsfólki sókna, starfsfólki Biskupsstofu og yfirstjórn kirkjunnar.
Ábyrgð og framkvæmd: Jafnréttisnefnd kirkjunnar
Tímamörk: 1. júní 2010
Verkefni 1.2: Tekið verði mið af kynjasamþættingu við gerð fræðsluefnis til
nota í barna- og æskulýðsstarfi. Gefið verði út efni fyrir 2-4 samverustundir í
æskulýðsstarfi um kynjasamþættingu og jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og
karla.
Ábyrgð og framkvæmd: Biskup Íslands - fræðslusvið Biskupsstofu
Tímamörk: 1. september 2010
2. Málfar
Kirkjan skal í boðun sinni, helgihaldi og fræðslu, gæta þess að höfðað sé til beggja
kynja. Sérstaklega verði horft til málfars í handbók og sálmabók kirkjunnar.
3 „Fyrirtæki og stofnanir þar sem starfa fleiri en 25 starfsmenn að jafnaði á ársgrundvelli skulu setja sér
jafnréttisáætlun eða samþætta jafnréttissjónarmið í starfsmannastefnu sína. Skal þar m.a. sérstaklega
kveðið á um markmið og aðgerðir til að tryggja starfsmönnum þau réttindi sem kveðið er á um í 19.–22.
gr. Framkvæmdaáætlun skal fylgja jafnréttisáætluninni eða starfsmannastefnu en hvort tveggja skal
endurskoðað á þriggja ára fresti“.
4 2. gr „Sértækar aðgerðir: Sérstakar tímabundnar aðgerðir sem ætlað er að bæta stöðu eða auka
möguleika kvenna eða karla í því skyni að koma á jafnri stöðu kynjanna á ákveðnu sviði þar sem á
annað kynið hallar. Þar getur þurft tímabundið að veita öðru kyninu forgang til að ná jafnvægi.“
5 17. gr. „Kynjasamþættingar skal gætt við alla stefnumótun og áætlanagerð sem gerð er á vegum
ráðuneyta og opinberra stofnana er starfa á málefnasviði þeirra. Hið sama gildir um alla ákvörðunartöku
innan ráðuneyta og stofnana eftir því sem við getur átt.“