Gerðir kirkjuþings - 2009, Page 120
120
27. mál kirkjuþings 2009
Flutt af kirkjuráði
Starfsreglur um meðferð kynferðisbrota
innan íslensku þjóðkirkjunnar.
1. gr. Með hugtakinu kynferðisbrot í reglum þessum er átt við þá háttsemi sem lýst er
refsiverðri í XXII. kafla almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og í barnaverndarlögum
nr. 80/2002.
Kynferðislegt ofbeldi er misnotkun á annarri manneskju þar sem gerandinn beitir eða
hótar að beita ofbeldi eða þvingar þolanda á annan hátt kynferðislega. Þessi
misnotkun getur verið allt frá káfi, þukli og klúru orðbragði upp í fullframið
nauðgunarbrot í skilningi almennra hegningarlaga.
Kynferðisleg áreitni er óvelkomin kynferðisleg hegðun sem skapar auðmýkjandi eða
fjandsamlegar aðstæður til vinnu, náms eða félagslegrar samvinnu hvort sem áreitnin
er líkamleg, orðbundin eða myndræn. Kynferðisleg áreitni felur í sér samskipti sem
einkennast af misnotkun á valdi, styrkleika eða stöðu þar sem kynferði þolandans er í
brennidepli. Það sem greinir slíka framkomu frá vinahótum og vinsamlegri stríðni er
að hún er í óþökk þess sem fyrir henni verður, hún er ekki gagnkvæm og ekki á
jafnræðisgrundvelli.
2. gr. Ef meint kynferðisbrot varðar barn, skal talsmaður eða sá sem hefur vitneskju
um ætlað kynferðisbrot, gegna skilyrðislausri tilkynningaskyldu til hlutaðeigandi
barnaverndarnefndar sbr. 16. og 17. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002.
3. gr. Kirkjuráð útnefnir fagráð um meðferð kynferðisbrotamála. Fagráð er skipað
þremur einstaklingum og þremur til vara, er hafa sérþekkingu á kynferðisbrotum. Einn
ráðsmanna skal vera lögfræðingur, annar skal vera guðfræðingur og sá þriðji skal vera
læknir, sálfræðingur eða hjúkrunarfræðingur, eða hafa sambærilega menntun.
Varamenn hvers ráðsmanns skulu uppfylla sömu skilyrði. Ráðsmenn skipa einn úr
sínum hópi til þess að vera formaður fagráðsins.
4. gr. Hlutverk fagráðs er eftirfarandi:
a) að fylgja eftir að mál sem varða kynferðisbrot og upp koma innan kirkjunnar,
fái viðhlítandi málsmeðferð samkvæmt landslögum og starfsreglum þessum.
b) að vera biskupi og kirkjuyfirvöldum til ráðgjafar varðandi mál er tengjast
kynferðisbrotum.
c) að tilnefna talsmenn, sbr. 5. gr. og veita þeim faglegan stuðning og ráðgjöf.
d) að fjalla um einstök mál sem vísað er til þess af úrskurðarnefnd eða
áfrýjunarnefnd og veita henni ráðgjöf um meðferð þeirra
e) að meta árangur starfsreglna og koma með tillögur til úrbóta ef með þarf
f) að hafa umsjón með fræðslu um kynferðisbrot innan kirkjunnar í samvinnu við
fræðsludeild kirkjunnar.
g) að sinna forvörnum á sviði kynferðisbrota.
5. gr. Biskup útnefnir til fjögurra ára í senn, á grundvelli tillagna fagráðs, sbr. 3. gr.,
talsmann/talsmenn þeirra sem telja sig þolendur kynferðisbrota innan kirkjunnar.
Kirkjuráð ákveður fjölda talsmanna og þjónustusvæði hvers þeirra. Talsmaður starfar í
umboði og ábyrgð fagráðs sem virkjar hann og fær honum verkefni.