Gerðir kirkjuþings - 2009, Page 124
124
frumvarpið fái eðlilegan framgang. Við biskup Íslands og kirkjuráð munum í
sameiningu meta hvort lag verði til að knýja á um framgang málsins á vorþingi
Alþingis. Ef svo verður ekki kemur þetta þýðingarmikla mál til kasta nýs kirkjuþings
á hausti komanda.
Ég vil að lokum þakka kirkjuþingsmönnum öllum fyrir góðar samverustundir á þessu
þingi og fyrri þingum kjörtímabilsins, málefnalegar umræður og vönduð vinnubrögð.
Sum þeirra, sem nú hverfa af þingi, eiga að baki langa þingsetu og margs konar
eljuverk, sem hér skulu sérstaklega þökkuð að verðleikum án þess að ég geti nefnt
einstök nöfn. Hinu sama gegnir um starfsmenn þingsins, þeir eiga miklar þakkir
skyldar fyrir framúrskarandi störf sín og samviskusemi. Húsráðendum hér og
starfsfólki þakka ég hlýhug og velvild í garð kirkjuþings. Hjálparstarfi kirkjunnar, sem
hér er einnig til húsa, bið ég sérstakrar blessunar í knýjandi störfum á þrengingartíð.
Ég óska ykkur öllum góðrar heimferðar og heimkomu í þeirri einlægu von að störf
þessa kirkjuþings verði þjóðkirkjunni til styrktar og farsældar. Höfum í huga þessa
ferðabæn úr sálmi Sigurbjörns biskups:
Ég legg í þína helgu hönd
hjartað, ástvini, líf og önd,
ljós þinna orða, andi þinn
upplýsi sál og veginn minn.
Kirkjuþingi 2009 er slitið.