Fréttablaðið - 26.11.2016, Page 40

Fréttablaðið - 26.11.2016, Page 40
laugardagur 17. desember opið kl. 13:00 – 16:00 sunnudagur 18. desember lokað mánudagur 19. desember opið kl. 08:00 – 17:00 þriðjudagur 20. desember opið kl. 08:00 – 17:00 miðvikudagur 21. desember opið kl. 08:00 – 17:00 fimmtudagur 22. desember opið kl. 08:00 – 17:00 Þorláksmessa 23. desember opið kl. 08:00 – 18:00 aðfangadagur 24. desember opið kl. 10:00 – 12:00 jóladagur 25. desember lokað annar í jólum 26. desember lokað þriðjudagur 27. desember opið kl. 10:00 – 16:00 miðvikudagur 28. desember opið kl. 08:00 – 16:00 fimmtudagur 29. desember opið kl. 08:00 – 16:00 föstudagur 30. desember opið kl. 08:00 – 16:00 gamlársdagur 31. desember lokað nýársdagur 1. janúar lokað mánudagur 2. janúar lokað þriðjudagur 3. janúar opið kl. 08:00 – 16:00 Aðalfundur Hjálparstarfs kirkjunnar var haldinn í Grensáskirkju laugardaginn 24. september 2016. Starfs­ skýrslu stofnunarinnar er að finna á vefsíðunni www.help.is undir liðnum um okkur – Ársskýrslur. Í stjórn Hjálparstarfsins starfsárið 2016–2017 eru: Ingibjörg Pálmadóttir formaður, Lóa Skarphéðinsdóttir og Páll Kr. Pálsson. Varamenn: Gunnar Sigurðsson og Hörður Jóhannesson. Framkvæmdastjóri: Bjarni Gíslason Margt smátt, 4 tbl. 28. árg. 2016 Ábyrgðarmaður: Kristín Ólafsdóttir Prentvinnsla: Umbrot: PIPAR\TBWA Prentun: Ísafoldarprentsmiðja Afgreiðslutími á skrifstofu Hjálparstarfs kirkjunnar, Háaleitisbraut 66, 103 Reykjavík, um jól og áramót 2016 SUMARIÐ ER KOMIÐ Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is Dæmi um 5 x100 auglýsingu Mynd (ferningur) Mynd (ferningur) lógó miðjusett Fyrirsögn í lit miðjusett Letur: CooperHewitt Light, hástafir stærð leturs ræðst af þessu svæði (fyllit út til hliðanna) HAPPDRÆTTI – búum öldruðum áhyggjulaust ævikvöld Hjálparstarf kirkjunnar • Er óháð og sjálfstæð hjálparstofnun sem hefur starfað síðan 1969 • Starfið felst í neyðaraðstoð við fólk sem býr við fátækt og að stuðla að valdeflingu þess • Faglegt mat á þörf liggur til grundvallar verkefnum innanlands og utan • Öll aðstoð er veitt án tillits til trúar, þjóðernis, litarháttar, kynferðis eða skoðana þeirra sem á henni þurfa að halda Á Íslandi starfar Hjálparstarf kirkjunnar með prest­ um, félagsþjónustu sveitarfélaga, Hjálpræðis hernum, Rauða krossinum, mæðrastyrksnefndum, kvenfélög­ um, heilbrigðisstofnunum og verkefna nefndum ráðu­ neyta. Félagsráðgjafar Hjálparstarfsins laga aðstoð sem veitt er að þörfum einstaklinganna sem til stofn­ unarinnar leita og leggja áherslu á að haga starfinu þannig að það sé hjálp til sjálfshjálpar og leiði til raunverulegra breytinga í lífi fólks. Í þróunarsamvinnu erlendis vinnur Hjálparstarfið með grasrótarsamtökum og Hjálparstarfi Lútherska heimssambandsins, LWFDWS, en fleiri en 2,7 milljónir jarðarbúa hafa notið aðstoðar samtakanna á árinu. Yfir 8.000 starfsmenn vinna með heimamönnum á hverjum stað sem þekkja vandann af eigin raun og menninguna, venjur og tungumál. LWFDWS er fimmti stærsti samstarfsaðili Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna, UNHCR, í heiminum. Mannúðaraðstoð erlendis veitir Hjálparstarf kirkj­ unnar í samstarfi við Alþjóðahjálparstarf kirkna ACT Alliance í kjölfar náttúruhamfara og vegna vopnaðra átaka. Aðstoðin er veitt án skilyrða og aðgreiningar og fer fram eftir alþjóðlegum stöðlum um neyðarað­ stoð og ströngum siðareglum. Í ACT Alliance bindast 146 kirkjutengdar hjálparstofnanir böndum og starfa fleiri en 25.000 sjálfboðaliðar og starfsfólk á þeirra vegum í 140 löndum að því að bæta líf fólks sem býr við fátækt og óréttlæti. 2 – Margt smátt ... Fólk sem lent hefur í lífsháska segir gjarnan frá því að það hafi eftir þá reynslu metið upp á nýtt hvað það er sem skiptir máli í lífinu. Sama segja margir sem hafa ferðast til fjarlægra landa og mætt aðstæðum sem þá óraði ekki fyrir að gætu verið raunveruleiki, mætt fólki sem býr við erfið kjör og heldur vart lífi en sýnir samt styrk og gleði þrátt fyrir allt. Þá vaknar oft löngun og vilji til að leggja sitt af mörkum til að bæta hag þeirra sem líða skort. Ég vildi óska þess að ég gæti boðið öllum að koma í heimsókn á verkefnasvæði Hjálparstarfs kirkjunnar í Eþíópíu. Ekki bara til að sjá erfiðar aðstæður fólks og skilja betur stöðu þess heldur miklu fremur til að sjá möguleikana sem eru fyrir hendi til að bæta aðstæð­ ur, sjá þann góða árangur sem náðst hefur. Skynja og skilja þann styrk og getu sem Sómalífólkið í Jijiga­hér­ aði býr yfir. Þann kraft og vilja sem það hefur til að vinna að eigin farsæld. Hjálparstarf kirkjunnar gerir ekkert fyrir fólk, en það gerir mjög margt með fólki. Öldungar þorpsins þar sem grafa á brunn eru með í ráðum frá upphafi, sam­ félagið sjálft ber ábyrgð á framkvæmdum í samráði við starfsfólk verkefnisins. Þar sem vantar upp á, t.d. þegar vantar verkfæri til að grafa, steypu til að styrkja brunninn og pumpu til að pumpa vatninu upp, þá fæst það fyrir það fjármagn sem verkefnið hefur yfir að ráða. En brunnurinn er alltaf eign samfélags­ ins og á ábyrgð samfélagsins. Ekki gjöf frá neinum heldur grafinn og gerður af fólkinu sjálfu með stuðn­ ingi frá Íslandi. Vatn er von Ég vildi að ég gæti tekið þig með til að hitta stúlkurnar sem áður notuðu morgnana til að sækja vatn og komust því ekki í skóla en eftir að brunnurinn kom er svo stutt að fara að þær geta hafið skólagöngu. Þá skilur maður betur hvað skiptir máli í lífinu. Vatn er sannarlega von fyrir þessar stúlkur og allt samfélag­ ið. Vertu með í að veita von, taktu þátt í jólasöfnun Hjálparstarfsins. Í þessu blaði getur þú lesið um fjöl­ breytt starf Hjálparstarfsins á Íslandi og erlendis. Lestu og láttu það hafa áhrif á þig, sjáðu hvað skiptir máli í lífinu. Bjarni Gíslason, framkvæmdastjóri Hjálparstarfs kirkjunnar Hvað skiptir máli í lífinu? Hjálparstarf kirkjunnar þakkar einstaklingum, félögum, fyrirtækjum og stofnunum fyrir frábæran stuðning við starfið og óskar landsmönnum öllum gleði og friðar á aðventu og yfir hátíðirnar! GUESTHOUSE Bjarni Gíslason og Ahmed Nur Abib starfsmaður verkefnis Hjálparstarfs kirkjunnar í Jijiga í Sómalífylki í Eþíópíu ræða við öldung þar um aðstæður og þarfir fólksins í héraðinu. Margt smátt ... – 3 2 6 -1 1 -2 0 1 6 0 4 :2 9 F B 1 4 4 s _ P 1 2 4 K .p 1 .p d f F B 1 4 4 s _ P 1 0 5 K .p 1 .p d f F B 1 4 4 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 1 4 4 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 B 7 1 -B 2 3 0 1 B 7 1 -B 0 F 4 1 B 7 1 -A F B 8 1 B 7 1 -A E 7 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 1 4 4 s _ 2 5 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.