Fréttablaðið - 26.11.2016, Side 40
laugardagur 17. desember opið kl. 13:00 – 16:00
sunnudagur 18. desember lokað
mánudagur 19. desember opið kl. 08:00 – 17:00
þriðjudagur 20. desember opið kl. 08:00 – 17:00
miðvikudagur 21. desember opið kl. 08:00 – 17:00
fimmtudagur 22. desember opið kl. 08:00 – 17:00
Þorláksmessa 23. desember opið kl. 08:00 – 18:00
aðfangadagur 24. desember opið kl. 10:00 – 12:00
jóladagur 25. desember lokað
annar í jólum 26. desember lokað
þriðjudagur 27. desember opið kl. 10:00 – 16:00
miðvikudagur 28. desember opið kl. 08:00 – 16:00
fimmtudagur 29. desember opið kl. 08:00 – 16:00
föstudagur 30. desember opið kl. 08:00 – 16:00
gamlársdagur 31. desember lokað
nýársdagur 1. janúar lokað
mánudagur 2. janúar lokað
þriðjudagur 3. janúar opið kl. 08:00 – 16:00
Aðalfundur Hjálparstarfs kirkjunnar var haldinn í Grensáskirkju laugardaginn 24. september 2016. Starfs
skýrslu stofnunarinnar er að finna á vefsíðunni www.help.is undir liðnum um okkur – Ársskýrslur.
Í stjórn Hjálparstarfsins starfsárið 2016–2017 eru: Ingibjörg Pálmadóttir formaður, Lóa Skarphéðinsdóttir og
Páll Kr. Pálsson. Varamenn: Gunnar Sigurðsson og Hörður Jóhannesson.
Framkvæmdastjóri: Bjarni Gíslason
Margt smátt, 4 tbl. 28. árg. 2016
Ábyrgðarmaður: Kristín Ólafsdóttir
Prentvinnsla:
Umbrot: PIPAR\TBWA
Prentun: Ísafoldarprentsmiðja
Afgreiðslutími á skrifstofu Hjálparstarfs kirkjunnar,
Háaleitisbraut 66, 103 Reykjavík, um jól og áramót 2016
SUMARIÐ
ER KOMIÐ
Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is
Dæmi um 5 x100 auglýsingu
Mynd (ferningur) Mynd (ferningur)
lógó
miðjusett
Fyrirsögn í lit
miðjusett
Letur: CooperHewitt
Light, hástafir
stærð leturs
ræðst af
þessu svæði
(fyllit út til hliðanna)
HAPPDRÆTTI
– búum öldruðum
áhyggjulaust ævikvöld
Hjálparstarf kirkjunnar
• Er óháð og sjálfstæð hjálparstofnun sem hefur starfað síðan 1969
• Starfið felst í neyðaraðstoð við fólk sem býr við fátækt og að stuðla að valdeflingu þess
• Faglegt mat á þörf liggur til grundvallar verkefnum innanlands og utan
• Öll aðstoð er veitt án tillits til trúar, þjóðernis, litarháttar, kynferðis eða skoðana þeirra sem á henni þurfa að halda
Á Íslandi starfar Hjálparstarf kirkjunnar með prest
um, félagsþjónustu sveitarfélaga, Hjálpræðis hernum,
Rauða krossinum, mæðrastyrksnefndum, kvenfélög
um, heilbrigðisstofnunum og verkefna nefndum ráðu
neyta. Félagsráðgjafar Hjálparstarfsins laga aðstoð
sem veitt er að þörfum einstaklinganna sem til stofn
unarinnar leita og leggja áherslu á að haga starfinu
þannig að það sé hjálp til sjálfshjálpar og leiði til
raunverulegra breytinga í lífi fólks.
Í þróunarsamvinnu erlendis vinnur Hjálparstarfið
með grasrótarsamtökum og Hjálparstarfi Lútherska
heimssambandsins, LWFDWS, en fleiri en 2,7 milljónir
jarðarbúa hafa notið aðstoðar samtakanna á árinu.
Yfir 8.000 starfsmenn vinna með heimamönnum
á hverjum stað sem þekkja vandann af eigin raun
og menninguna, venjur og tungumál. LWFDWS er
fimmti stærsti samstarfsaðili Flóttamannastofnunar
Sameinuðu þjóðanna, UNHCR, í heiminum.
Mannúðaraðstoð erlendis veitir Hjálparstarf kirkj
unnar í samstarfi við Alþjóðahjálparstarf kirkna ACT
Alliance í kjölfar náttúruhamfara og vegna vopnaðra
átaka. Aðstoðin er veitt án skilyrða og aðgreiningar
og fer fram eftir alþjóðlegum stöðlum um neyðarað
stoð og ströngum siðareglum. Í ACT Alliance bindast
146 kirkjutengdar hjálparstofnanir böndum og starfa
fleiri en 25.000 sjálfboðaliðar og starfsfólk á þeirra
vegum í 140 löndum að því að bæta líf fólks sem býr
við fátækt og óréttlæti.
2 – Margt smátt ...
Fólk sem lent hefur í lífsháska segir gjarnan frá því að
það hafi eftir þá reynslu metið upp á nýtt hvað það er
sem skiptir máli í lífinu. Sama segja margir sem hafa
ferðast til fjarlægra landa og mætt aðstæðum sem þá
óraði ekki fyrir að gætu verið raunveruleiki, mætt
fólki sem býr við erfið kjör og heldur vart lífi en sýnir
samt styrk og gleði þrátt fyrir allt. Þá vaknar oft
löngun og vilji til að leggja sitt af mörkum til að bæta
hag þeirra sem líða skort.
Ég vildi óska þess að ég gæti boðið öllum að koma í
heimsókn á verkefnasvæði Hjálparstarfs kirkjunnar í
Eþíópíu. Ekki bara til að sjá erfiðar aðstæður fólks og
skilja betur stöðu þess heldur miklu fremur til að sjá
möguleikana sem eru fyrir hendi til að bæta aðstæð
ur, sjá þann góða árangur sem náðst hefur. Skynja og
skilja þann styrk og getu sem Sómalífólkið í Jijigahér
aði býr yfir. Þann kraft og vilja sem það hefur til að
vinna að eigin farsæld.
Hjálparstarf kirkjunnar gerir ekkert fyrir fólk, en það
gerir mjög margt með fólki. Öldungar þorpsins þar
sem grafa á brunn eru með í ráðum frá upphafi, sam
félagið sjálft ber ábyrgð á framkvæmdum í samráði
við starfsfólk verkefnisins. Þar sem vantar upp á, t.d.
þegar vantar verkfæri til að grafa, steypu til að
styrkja brunninn og pumpu til að pumpa vatninu upp,
þá fæst það fyrir það fjármagn sem verkefnið hefur
yfir að ráða. En brunnurinn er alltaf eign samfélags
ins og á ábyrgð samfélagsins. Ekki gjöf frá neinum
heldur grafinn og gerður af fólkinu sjálfu með stuðn
ingi frá Íslandi.
Vatn er von
Ég vildi að ég gæti tekið þig með til að hitta stúlkurnar
sem áður notuðu morgnana til að sækja vatn og
komust því ekki í skóla en eftir að brunnurinn kom er
svo stutt að fara að þær geta hafið skólagöngu. Þá
skilur maður betur hvað skiptir máli í lífinu. Vatn er
sannarlega von fyrir þessar stúlkur og allt samfélag
ið. Vertu með í að veita von, taktu þátt í jólasöfnun
Hjálparstarfsins. Í þessu blaði getur þú lesið um fjöl
breytt starf Hjálparstarfsins á Íslandi og erlendis.
Lestu og láttu það hafa áhrif á þig, sjáðu hvað skiptir
máli í lífinu.
Bjarni Gíslason,
framkvæmdastjóri Hjálparstarfs kirkjunnar
Hvað skiptir
máli í lífinu?
Hjálparstarf kirkjunnar þakkar einstaklingum, félögum, fyrirtækjum og
stofnunum fyrir frábæran stuðning við starfið og óskar landsmönnum
öllum gleði og friðar á aðventu og yfir hátíðirnar!
GUESTHOUSE
Bjarni Gíslason og Ahmed Nur Abib starfsmaður verkefnis
Hjálparstarfs kirkjunnar í Jijiga í Sómalífylki í Eþíópíu ræða
við öldung þar um aðstæður og þarfir fólksins í héraðinu.
Margt smátt ... – 3
2
6
-1
1
-2
0
1
6
0
4
:2
9
F
B
1
4
4
s
_
P
1
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
1
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
7
1
-B
2
3
0
1
B
7
1
-B
0
F
4
1
B
7
1
-A
F
B
8
1
B
7
1
-A
E
7
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
1
4
4
s
_
2
5
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K