Fréttablaðið - 26.11.2016, Side 68
| AtvinnA | 26. nóvember 2016 LAUGARDAGUR16
Karlmaður um sextugt óskar eftir atvinnu
Í boði er áratuga starfsreynsla úr viðskiptalífinu hér á landi og
í útlöndum auk háskólamenntunar og framhaldsnáms.
Reglusamur, reykir ekki og getur hafið störf strax.
Áhugasamir vinsamlega sendið skilaboð með tölvupósti til
mikilstarfsreynsla@gmail.com
Arkitektar - Hönnuðir
Höfum til leigu 2 til 3 vinnustöðvar í opnu eða lokuðu
umhverfi í bjartri og velbúninni teiknistofu í miðborginni.
Upplýsingar í síma 893 5435.
GER innflutningur, rekstraraðili
Húsgagnahallarinnar, Betra Bak og Dorma
óskar eftir bílstjórum og lagerstarfsmönnum:
Bílstjóra- og lagerstörf
100% VINNA
Hægt er að hefja störf strax.
Umsóknir ásamt upplýsingum
um umsækjanda sendist á netfangið
vinna@ger.is
Starfsferilskrá og meðmæli eru æskileg
fylgigögn. Hreint sakavottorð er skilyrði.
Öllum umsóknum svarað.
Verkefnastjóri - Almenningsíþróttasvið ÍSÍ
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ) óskar eftir að ráða
verkefnastjóra á Almenningsíþróttasvið ÍSÍ.
Starfssvið:
• Almenn verkefni á Almenningsíþróttasviði ÍSÍ
• Vinna við heimasíður og samfélagsmiðla
almenningsíþróttaverkefna
• Aðkoma að gerð frétta- og fræðsluefnis
• Önnur tilfallandi verkefni
• Næsti yfirmaður er sviðsstjóri Almenningsíþróttasviðs ÍSÍ.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Menntun og/eða starfsreynsla sem nýst getur í starfinu.
• Góðir samskiptahæfileikar.
• Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
• Góð kunnátta í ensku og einu Norðurlandamáli.
• Góð tölvukunnátta.
• Mikill áhugi á heilsueflingu og hreyfingu.
Umsóknum skal skilað á skrifstofu ÍSÍ, Íþróttamiðstöðinni
Laugardal, 104 Reykjavík eða á netfangið isi@isi.is.
Umsóknarfrestur er til og með 5. desember 2016.
Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu ÍSÍ í síma 514 4000.
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands er æðsti aðili hinnar frjálsu
íþróttastarfsemi á Íslandi með um 287.000 félagsaðildir og 124.000
iðkendur. Hátt í 1.000 starfseiningar eru innan ÍSÍ þ.e. 32 sérsam-
bönd, 25 íþróttahéruð, 450 íþrótta- og ungmennafélög og rúmlega
400 deildir þeirra. Starfsemi ÍSÍ skiptist í þrjú svið; Almennings-
íþróttasvið, Afreks- og Ólympíusvið og Þróunar- og fræðslusvið. ÍSÍ
er aðili að Alþjóðaólympíunefndinni (IOC).
Helstu verkefni og ábyrgð
Annast skipulag, verkstjórn og samhæfingu innan fagsviðs ásamt svæðisstjóra, í samræmi
við stefnu og markmið Heilsugæslu höfuðborgar-
svæðisins
Er svæðisstjóra innan handar við daglegan
rekstur stöðvar og er staðgengill hans
Er faglegur yfirmaður á sínu sviði og sinnir klínísku starfi samhliða
Innleiðir nýjungar og vinnur að breytingum
á starfsemi til hagsbóta fyrir skjólstæðinga
stöðvar
Tekur þátt í gerð, innleiðingu og notkun
klínískra leiðbeininga
Stuðlar að góðri vinnustaðamenningu
Tekur þátt í vísinda-, þróunar- og gæðastarfi
Skipuleggur kennslu fyrir heilbrigðisstéttir í
samráði við fagstjóra lækninga, kennslustjóra
og lærimeistara
Hæfnikröfur
Íslenskt hjúkrunarleyfi er skilyrði
Framhaldsmenntun í hjúkrun æskileg
Reynsla af og áhugi á teymisvinnu
Reynsla af starfi í heilsugæslu er kostur
Nám og reynsla á sviði stjórnunar æskileg
Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
Leiðtogahæfni og metnaður til að ná árangri
í starfi
Frumkvæði og geta til að starfa sjálfstætt
Nánari upplýsingar
Kristjana S. Kjartansdóttir, yfirlæknir Heilsugæslunni
Hamraborg – kristjana.kjartansdottir@heilsugaeslan.is
sími 594 0500 og
Þórunn Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar,
thorunn.olafsdottir@heilsugaeslan.is, sími 585 1300.
Ábyrgð – Fagmennska – Traust – Þjónusta – Framþróun
Heilsugæslan á að vera fyrsti viðkomustaður í heilbrigðis-
þjónustunni þar sem ólíkum þörfum notenda er mætt og
þeim leiðbeint yfir í önnur kerfi heilbrigðisþjónustunnar
eftir því sem þörf er á.
Flóknari vandamál, þörf fyrir fjölbreyttari úrræði og skortur
á sérhæfðu starfsfólki kallar á nýja nálgun í starfsemi
heilsugæslustöðva.
Hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins er í gangi breyting
á skipulagi og rekstri heilsugæslustöðva sem miðar að því
að auka þjónustu við notendur, nýta betur fjármuni og að
bæta vinnuumhverfi starfsmanna.
Til að gera þjónustuna markvissari verður teymisvinna
grunnstef í starfsemi stöðva, ásamt innleiðingu aðferða
straumlínustjórnunar. Þverfagleg teymi heilbrigðisstarfsfólks
munu auðvelda stöðvum að taka á flóknum vandamálum
með fjölbreyttum úrræðum.
Í breyttu skipulagi mun starfsfólk fá aukið sjálfstæði til að
móta starfsemina og til að útfæra þjónustu sem mætir
þörfum íbúa og uppfyllir um leið kröfur um árangur
samkvæmt mælingum og mati.
Fagstjóri hjúkrunar
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Laust er til umsóknar starf fagstjóra hjúkrunar við Heilsugæsluna Hamraborg. Fagstjóri hjúkrunar ber
ábyrgð á skipulagningu hjúkrunarþjónustu í samráði við svæðisstjóra. Mikil áhersla er lögð á samvinnu
milli fagstétta innan stöðvar og að þjónustuþarfir skjólstæðinga séu ávallt í fyrirrúmi. Um er að ræða
krefjandi starf sem reynir á frumkvæði, skipulagshæfileika og samskiptahæfni. Ráðið verður í starfið til
tveggja ára frá og með 1. janúar nk. eða eftir nánara samkomulagi. Starfshlutfall er 100%.
Umsóknarfrestur er til og með 12. desember 2016.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu
berast Svövu Þorkelsdóttur, mannauðsstjóra Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík.
Viðtöl verða höfð við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið á þeim og innsendum gögnum.Tekið er mið af
jafnréttisstefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um
ráðningu liggur fyrir.
Sækja skal um starfið rafrænt á vef Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (www.heilsugaeslan.is) undir laus störf eða á Starfatorgi
(www.starfatorg.is).
2
6
-1
1
-2
0
1
6
0
4
:2
9
F
B
1
4
4
s
_
P
0
8
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
7
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
6
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
6
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
7
2
-3
C
7
0
1
B
7
2
-3
B
3
4
1
B
7
2
-3
9
F
8
1
B
7
2
-3
8
B
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
1
4
4
s
_
2
5
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K