Fréttablaðið - 26.11.2016, Síða 68

Fréttablaðið - 26.11.2016, Síða 68
| AtvinnA | 26. nóvember 2016 LAUGARDAGUR16 Karlmaður um sextugt óskar eftir atvinnu Í boði er áratuga starfsreynsla úr viðskiptalífinu hér á landi og í útlöndum auk háskólamenntunar og framhaldsnáms. Reglusamur, reykir ekki og getur hafið störf strax. Áhugasamir vinsamlega sendið skilaboð með tölvupósti til mikilstarfsreynsla@gmail.com Arkitektar - Hönnuðir Höfum til leigu 2 til 3 vinnustöðvar í opnu eða lokuðu umhverfi í bjartri og velbúninni teiknistofu í miðborginni. Upplýsingar í síma 893 5435. GER innflutningur, rekstraraðili Húsgagnahallarinnar, Betra Bak og Dorma óskar eftir bílstjórum og lagerstarfsmönnum: Bílstjóra- og lagerstörf 100% VINNA Hægt er að hefja störf strax. Umsóknir ásamt upplýsingum um umsækjanda sendist á netfangið vinna@ger.is Starfsferilskrá og meðmæli eru æskileg fylgigögn. Hreint sakavottorð er skilyrði. Öllum umsóknum svarað. Verkefnastjóri - Almenningsíþróttasvið ÍSÍ Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ) óskar eftir að ráða verkefnastjóra á Almenningsíþróttasvið ÍSÍ. Starfssvið: • Almenn verkefni á Almenningsíþróttasviði ÍSÍ • Vinna við heimasíður og samfélagsmiðla almenningsíþróttaverkefna • Aðkoma að gerð frétta- og fræðsluefnis • Önnur tilfallandi verkefni • Næsti yfirmaður er sviðsstjóri Almenningsíþróttasviðs ÍSÍ. Menntunar- og hæfniskröfur: • Menntun og/eða starfsreynsla sem nýst getur í starfinu. • Góðir samskiptahæfileikar. • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð. • Góð kunnátta í ensku og einu Norðurlandamáli. • Góð tölvukunnátta. • Mikill áhugi á heilsueflingu og hreyfingu. Umsóknum skal skilað á skrifstofu ÍSÍ, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík eða á netfangið isi@isi.is. Umsóknarfrestur er til og með 5. desember 2016. Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu ÍSÍ í síma 514 4000. Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands er æðsti aðili hinnar frjálsu íþróttastarfsemi á Íslandi með um 287.000 félagsaðildir og 124.000 iðkendur. Hátt í 1.000 starfseiningar eru innan ÍSÍ þ.e. 32 sérsam- bönd, 25 íþróttahéruð, 450 íþrótta- og ungmennafélög og rúmlega 400 deildir þeirra. Starfsemi ÍSÍ skiptist í þrjú svið; Almennings- íþróttasvið, Afreks- og Ólympíusvið og Þróunar- og fræðslusvið. ÍSÍ er aðili að Alþjóðaólympíunefndinni (IOC). Helstu verkefni og ábyrgð Annast skipulag, verkstjórn og samhæfingu innan fagsviðs ásamt svæðisstjóra, í samræmi við stefnu og markmið Heilsugæslu höfuðborgar- svæðisins Er svæðisstjóra innan handar við daglegan rekstur stöðvar og er staðgengill hans Er faglegur yfirmaður á sínu sviði og sinnir klínísku starfi samhliða Innleiðir nýjungar og vinnur að breytingum á starfsemi til hagsbóta fyrir skjólstæðinga stöðvar Tekur þátt í gerð, innleiðingu og notkun klínískra leiðbeininga Stuðlar að góðri vinnustaðamenningu Tekur þátt í vísinda-, þróunar- og gæðastarfi Skipuleggur kennslu fyrir heilbrigðisstéttir í samráði við fagstjóra lækninga, kennslustjóra og lærimeistara Hæfnikröfur Íslenskt hjúkrunarleyfi er skilyrði Framhaldsmenntun í hjúkrun æskileg Reynsla af og áhugi á teymisvinnu Reynsla af starfi í heilsugæslu er kostur Nám og reynsla á sviði stjórnunar æskileg Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum Leiðtogahæfni og metnaður til að ná árangri í starfi Frumkvæði og geta til að starfa sjálfstætt Nánari upplýsingar Kristjana S. Kjartansdóttir, yfirlæknir Heilsugæslunni Hamraborg – kristjana.kjartansdottir@heilsugaeslan.is sími 594 0500 og Þórunn Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar, thorunn.olafsdottir@heilsugaeslan.is, sími 585 1300. Ábyrgð – Fagmennska – Traust – Þjónusta – Framþróun Heilsugæslan á að vera fyrsti viðkomustaður í heilbrigðis- þjónustunni þar sem ólíkum þörfum notenda er mætt og þeim leiðbeint yfir í önnur kerfi heilbrigðisþjónustunnar eftir því sem þörf er á. Flóknari vandamál, þörf fyrir fjölbreyttari úrræði og skortur á sérhæfðu starfsfólki kallar á nýja nálgun í starfsemi heilsugæslustöðva. Hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins er í gangi breyting á skipulagi og rekstri heilsugæslustöðva sem miðar að því að auka þjónustu við notendur, nýta betur fjármuni og að bæta vinnuumhverfi starfsmanna. Til að gera þjónustuna markvissari verður teymisvinna grunnstef í starfsemi stöðva, ásamt innleiðingu aðferða straumlínustjórnunar. Þverfagleg teymi heilbrigðisstarfsfólks munu auðvelda stöðvum að taka á flóknum vandamálum með fjölbreyttum úrræðum. Í breyttu skipulagi mun starfsfólk fá aukið sjálfstæði til að móta starfsemina og til að útfæra þjónustu sem mætir þörfum íbúa og uppfyllir um leið kröfur um árangur samkvæmt mælingum og mati. Fagstjóri hjúkrunar Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins Laust er til umsóknar starf fagstjóra hjúkrunar við Heilsugæsluna Hamraborg. Fagstjóri hjúkrunar ber ábyrgð á skipulagningu hjúkrunarþjónustu í samráði við svæðisstjóra. Mikil áhersla er lögð á samvinnu milli fagstétta innan stöðvar og að þjónustuþarfir skjólstæðinga séu ávallt í fyrirrúmi. Um er að ræða krefjandi starf sem reynir á frumkvæði, skipulagshæfileika og samskiptahæfni. Ráðið verður í starfið til tveggja ára frá og með 1. janúar nk. eða eftir nánara samkomulagi. Starfshlutfall er 100%. Umsóknarfrestur er til og með 12. desember 2016. Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Svövu Þorkelsdóttur, mannauðsstjóra Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. Viðtöl verða höfð við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið á þeim og innsendum gögnum.Tekið er mið af jafnréttisstefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Sækja skal um starfið rafrænt á vef Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (www.heilsugaeslan.is) undir laus störf eða á Starfatorgi (www.starfatorg.is). 2 6 -1 1 -2 0 1 6 0 4 :2 9 F B 1 4 4 s _ P 0 8 4 K .p 1 .p d f F B 1 4 4 s _ P 0 7 7 K .p 1 .p d f F B 1 4 4 s _ P 0 6 1 K .p 1 .p d f F B 1 4 4 s _ P 0 6 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 B 7 2 -3 C 7 0 1 B 7 2 -3 B 3 4 1 B 7 2 -3 9 F 8 1 B 7 2 -3 8 B C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 1 4 4 s _ 2 5 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.