Morgunblaðið - 12.05.2016, Side 22
22 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. MAÍ 2016
VIÐTAL
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
„Þegar sú ákvörðun var tekin í febrúar
2009 að ríki og borg yfirtækju þennan
hálfbyggða minnisvarða um mikil-
mennskuhugmyndir forhrunsáranna
var það djörf ákvörðun sem hlaut að
vekja deilur,“ segir Halldór Guð-
mundsson, forstjóri tónlistar- og ráð-
stefnuhússins Hörpu. Fimm ár eru í
dag síðan formlegir opnunartónleikar
voru í Hörpu en hann tók við forstjóra-
stöðunni ári síðar. Þegar rætt er við
Halldór um þessi ár og baráttuna við
að halda rekstri hússins gangandi seg-
ir hann það oft hafa verið erfitt en
einnig afar ánægjulegt.
„Í upphafi þurfti að skrapa saman
lán hjá þeim bönkum sem eftir voru á
innanlandsmarkaði til þess að hægt
væri að ljúka við bygginguna. Frá
sjónarhóli okkar sem hér störfum var
það bæði djörf og víðsýn ákvörðun.
Annars hefðum við haft hér óbrot-
gjarnt minnismerki um mistök en vor-
um í stað þess að reisa minnisvarða um
endurreisn.
Eins og útkoman varð er þetta líka
vottur um þýðingu menningar á
krepputímum. Á ráðstefnu sem ég var
beðinn um að ávarpa hjá Evrópusam-
bandinu sagði ég að mér þætti Harpa
lifandi sannindamerki þess að ríki ættu
að fjárfesta í menningu í kreppu frem-
ur en eftir kreppu.“
Halldór segir að einmitt af því að
Harpa hafi risið vegna glæsilegrar
baráttu íslenska tónlistarmanna fyrir
tónlistarhúsi, og að þar hafi átt að vera
heimkynni Sinfóníuhljómsveitarinnar,
hafi starfsmenn jafnframt þurft að
sýna fram á að þetta væri hús allrar
tónlistar. „Þá hefur líka þurft að sýna
dugnað varðandi annars konar atburði,
til að mynda innlent sem alþjóðlegt
ráðstefnuhald sem skiptir miklu og
skilar góðum tekjum. Það eru allir jafn
velkomnir gestir í þessu húsi og við
þurfum stöðugt að vanda okkur, enda
erum við þjónustufyrirtæki fyrir eig-
endurna, sem er þjóðin. En þótt
stærsta afrekið hafi verið hjá fólkinu
sem opnaði þetta hús hefur starfs-
fólkið síðan líka sýnt einstakan dug við
að sinna þessu alhliða hlutverki.“
Kafka við Sæbrautina
Halldór neitar því ekki að stór-
einkennilegar þverstæður hafi verið í
rekstri hússins undanfarin ár.
„Ein er að eyða fjórum árum í mála-
ferli við eigendur sína. Þegar ég hóf
hér störf þurfti að byrja á því að
endurfjármagna bygginguna sjálfa. Sú
endurfjármögnun átti að gerast með
skuldabréfaútgáfu Landsbankans. En
bankinn tregðaðist lengi við, var ekki
nógu viss um að greiðsluloforð eig-
enda, það er ríkis og borgar, myndu
standast, og var þó sjálfur í eigu ríkis-
ins. Þetta var einkennileg hringrás og
fjöldi lögmanna var kvaddur til verka
áður en menn komust að þeirri niður-
stöðu sem lá fyrir í upphafi. Eins lá al-
gjörlega fyrir að enginn rekstur í
þessu húsi myndi geta staðið undir
öðrum eins fasteignagjöldum og hér
höfðu verið lögð á. Það þurfti að fara
með það mál alla leið fyrir Hæstarétt.
Við fórum í mál við eigendur hússins,
með samþykki eigenda, gegn ákvörð-
unum eigenda en þó með hagsmuni
eigenda í huga. Enda hef ég skrifað um
þetta og fleiri þverstæður örsögu sem
heitir Kafka við Sæbrautina, hvenær
sem ég nú birti hana!“
Nýjum útreikningi á fasteigna-
gjöldum Hörpu er enn ekki lokið en
Halldór segir Hæstarétt hafa verið af-
dráttarlausan um að þau yrðu reiknuð
samkvæmt tekjuvirði hússins. „Sem
var sú nálgun sem Harpa óskaði strax
árið 2011 eftir að yrði beitt. Ef menn
hefðu horft með sanngirni á málið, með
þeim hætti sem Hæstiréttur leggur
áherslu á, hefði það sparað okkur fjög-
urra ára úttektir og svimandi háan
kostnað.“
– Og hversu margar milljónir?
„Það á eftir að koma í ljós. En þetta
hefur verið langsamlega erfiðast við
reksturinn. Oft vefst það fyrir útlend-
ingum sem dást að því að Íslendingar
skyldu hafa klárað þetta hús á erfiðum
tíma að um leið hafi verið tekin ákvörð-
un um að leggja á það svo þunga skatta
að það myndi aldrei geta risið undir
þeim.“
Halldór segir stoltur að í dag iði
Harpa af lífi. Húsið hafi getað aflað
þeirra miklu tekna sem gert var ráð
fyrir í upphafi, en í fyrstu áætlunum
hafi kostnaðurinn við að reka svona
hús hins vegar verið vanmetinn og þar
skipti himinhá gjöld miklu. Þá var frá
upphafi gert ráð fyrir ráðstefnuhóteli
við Hörpu. „Nú er bygging þess hafin
og það mun styrkja okkur mjög í al-
þjóðlegum ráðstefnurekstri. Í fyrra
voru ellefu alþjóðlegar ráðstefnur í
Hörpu, á þessu ári verða þær sextán.
Í alfyrstu hugmyndum Ólafs Elías-
sonar og félaga um útlit hússins má sjá
skissur af fuglabjargi. Nú erum við
orðin slíkt bjarg, margradda og iðandi
af lífi, og þannig verður það vonandi
áfram,“ segir hann.
Djörf og víðsýn ákvörðun
Fimm ár síðan Harpa, tónlistar- og ráðstefnuhús, var formlega tekin í notkun „Djörf ákvörðun
sem hlaut að vekja deilur,“ segir Halldór Guðmundsson um þá ákvörðun að ljúka við bygginguna
Morgunblaðið/Kristinn
Forstjórinn „Við fórum í mál við eigendur hússins, með samþykki eigenda, gegn ákvörðunum eigenda en þó með
hagsmuni eigenda í huga,“ segir Halldór Guðmundsson um átökin um útreikning fasteignagjalda Hörpu.
„Svo sannarlega hefur rekstur Hörpu
verið erfiður en ef við lítum til síðasta
árs komu hingað 1,7 milljónir gesta, það
eru yfir 600 tónleikar og 400 annars
konar viðburðir í húsinu,“ segir Halldór.
„Þetta sýnir að Harpa hefur orðið mið-
læg, ekki bara í tónlistinni heldur í
mannlífi í landinu.
Mér fannst strax að á ábyrgð okkar
sem höfum húsvörsluna með höndum
væri að láta fólki líða eins og það ætti húsið. Það voru kjörorðin frá upp-
hafi: Harpa, húsið þitt. Auðvitað munu ekki allir líta svo á, og fólk má
með góðum rétti vera andsnúið mörgu af því sem hér fer fram, en upp til
hópa eru Íslendingar stoltir af Hörpu og sækja sér hingað fróðleik, upp-
lyftingu og afþreyingu.“
1,7 milljónir gesta í fyrra
HARPA ER ORÐIN MIÐLÆG Í LÍFI LANDSMANNA
Ljósaverk Ólafs Elíassonar á Hörpu.
Alþjóðasamtök um íslenska hestinn
(FEIF) hafa hafnað einu umsókn-
inni sem barst um að halda Heims-
leika íslenska hestsins á árinu 2019.
Umsóknin var fyrir mótsstað í
Berlín. Samkvæmt reglum FEIF
þurfti samþykki viðkomandi lands-
sambands til að hægt væri að
ganga til samninga um mótshald en
þýska íslandshestasambandið,
IPZV, studdi ekki umsókn Berlínar.
Mótið 2019 hefur nú verið aug-
lýst að nýju og frestur til að sækja
um rennur út 10. júlí. Gunnar
Sturluson, formaður FEIF, segir
að ekki sé lengur krafist stuðnings
landssambanda. Breytingar á
reglum í þá veru hafi tekið gildi eft-
ir að mótið var auglýst í fyrra
skiptið. Hann kveðst eiga von á að
hestamannafélagið ISB í Berlín
endurnýi umsókn sína og telur
hugsanlegt að fleiri umsóknir ber-
ist, jafnvel frá öðrum stöðum í
Þýskalandi.
Deilur í Þýskalandi
ISB er lítið hestamannafélag. Í
forystu þess eru menn sem tóku
þátt í skipulagningu HM í Berlín
2013. Þeir nutu stuðnings Berlínar-
borgar við fyrri umsókn sínar.
Deilur hafa verið í þýska Íslands-
hestasambandinu um forystu og
stefnu. Hefur það komið fram í
hestamiðlum í Þýskalandi. Deilurn-
ar og ágreiningur um fjárhagslegt
uppgjör HM 2013 birtast meðal
annars í óeiningu um umsókn ISB
um að halda mótið í Berlín.
Næstu heimsleikar verða haldnir
í Oirschot í Hollandi á næsta ári.
Leikarnir voru haldnir á þessum
stað fyrir tíu árum. Gunnar segir að
undirbúningur gangi vel.
helgi@mbl.is
Studdu ekki HM
í Berlín 2019
Auglýst öðru sinni eftir umsóknum
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Berlín Íslenski fáninn var áberandi
enda margir Íslendingar á pöllum.